Vesturland - 16.09.1939, Side 2
144
VESTURLAN D
Reglugerð
um sölu og úthlutun á nokkr-
um matvörutegundum.
Samkvæmt heimild í lögum nr.
37, 12. júní 1939 er hér með
sett eftirfarandi reglugerð:
1. gr.
Frá 18. sept. 1939 að telja er
bannað að selja rúgbrauð og
hveitibrauð, rúg, rúgmjöl, hveiti
hveitimjöl, hafragrjón, haframjöl,
hrisgrjón, matbaunir, bankabygg
og aðrar kornvörur, nema fóð-
urbygg, hafra og fóðurmaís, enn-
fremur kaffi og sykur, nema gegn
seðlum, setn út eru gefnir að
tilhlutun ríkisstjórnarinnar.
2. gr.
Rikisstjórnin sendir öllum
hreppsnefndum og bæjarstjórnum
skömmtunarseðla, miðaða við
mannfjölda á hverjum stað, og
skulu þær úthluta seðlum til allra
heimila, þannig að hverjum heim-
ilismanni sé ætlaður einn seðill.
Úthlutunin fer fram í fyrsta sinn
16. og 17. sept. n. k., á þann
hátt, að móttakendur skulu kvadd-
ir saman eða heimilisfeður í þeirra
stað.
Kostnað við prentun og út-
sendingu seðlanna til hrepps-
nefnda og bæjarstjórna ber ríkis-
sjóður, en hreppsnefnd eða
bæjarstjórn á hverjum stað annan
kostnað við úthlutunina.
3. gr.
Þá er úthlutun seðlanna fer
fram í fyrsta sinn skulu viðtak-
endur þeirra undirrita drengskap-
arvottorð um hve mikinn foröa
þeir eigi af vörutegundum, er
seðlarnir hljóða um, á þar til
gerð eyðublöð. Skal forðinn
dreginn frá við fyrstu eða aðra
úthlutun og hinar síðari, þar tii
honum er lokiö, með þvi að
klippa af seðlunum sem svarar
því vörutnagni, er forðanum
nemur. Eru allir heimilisfeður
skyldir, að viðlögðum sektum, að
mæta eða láta mæta til slíkrar
skýrslugjafar, jafnt þótt þeir eigi
nægar birgðir og þurfi þvi eigi
seðla fyrst um sinn.
4. gr.
Rikisstjórnin setur á stofn
skömmtunarskrifstofu, sem hefir
yfirumsjón með matvælaúthlutun
samkvæmt þessari reglugerð og
öðrum hliðstæðum ráðstöfunum
eftir nánari fyrirmælum ríkis-
stjórnarinnar.
5. gr.
Þá er úthlutun hefir farið fram
skulu hreppsnefndir og bæjar-
stjórnir senda skömmtunarskrif-
stofunni shnleiðis skýrslu um hve
miklar birgðir hafi verið samtals
á heimilum, hve mikið af 'seðl-
um hafi orðið afgangs og hve
miklu magni afklippingar hafa
numið. Ónotaðir seðlar og af-
klippingar skulu sendir skömmt-
unarskrifstofu með fyrstu póst-
ferð, en geyma skal drengskap-
aryfirlýsingar um birgðir til at-
hugunar við næstu úthlutanir,
Skömmtunarskrifstofan geturleyft
að ónotaðir seðlar verði að ein-
hverju leyfi eftir f vörzlum hrepps-
nefnda eða bæjarstjórna, til auka-
úthlutunar, ef þörf krefur.
6. gr.
Hinn 16.—17. sept. n. k. skulu
allir þeir, er verzla með fram-
angreindar vörutegundir fram-
kvæma birgðatalningu og gefa
hreppsnefndum eða bæjarstjórn-
um drengskaparvottorð á þar til
gerð eyðublöð um birgðir sinar
af þessum vörutegundum.
Heildarskýrslu um birgðir verzl-
ana i hverjum hreppi eða kaup-
stað skal senda skömmtunarskrif-
stofu simleiðis.
7. gr.
Seölaúthlutun fer þannig fram,
eftir að fyrstu úthlutun er lokið,
að f lok hvers mánaðar eru af-
hentir seölar fyrir næsta mánuð
til þeirra, sem skila stofnum af
eldri seðlum, með áritun nafns
og heimilisfangs, og ermfremur
til jþeirra, sem íært geta sönnur
á, að þeir hafi ekki tengið seðla
við fyrri úthlutanir. Hreppsnefnc!-
um er heimilt að gefa sveita-
heimilum, sem vegna staðhátta
geta ckki dregið að sér matvæli
mánaðarlega að vetrinum, ávis-
anir um afhendingu á skömmt-
unarvöruin hjá kaupmanni þeim
eða kaupfélagi, sem þau skipta
við. Jafngildi ávísananna sésíð-
an klippt af seðlum heimilis-
manna áður en þeir eru afhentir
og afhent verzlun þeirri, sem
látið hefir úti vörurnar gegn
framvísun ávísananna.
8. gr.
Hver skömrntunarseðill gildir
fyrir einn mann í einn mánuð
(að undanskildu því áð fyrsti
skömmtunarseðillinn gildir til 1.
okt. 1939, og er um heliningur af
því magni, sem hér fer á eftii).
Skiplist hann i stofn og 30 reiti.
Eru 12 reitir fyrir hveiti eða
hveitibrauð, hver fyrir 200 g af
hveiti eða 250 g af hveitibrauði,
6 reitir fyrir rúgmjöl eða rúg-
brauð, hver fyrir' 500 g af rúg-
mjöli eða 750 g af rúgbrauði, 4
reitir íyrir hafragrjón, hver fyrir
250 g, 2 reitir fyrir hrlsgrjón,
braunir og allt annað kornmeti
en það, sem hér er talið að fram-
an, nema fóðurbygg, hafra og
fóðurmaís, hvor fyrir 250 g, 2
reitir fyrir kaffi, hvor fyrir 125
g af brcnndu og möluðu kaffi
eða 150 g af óbrenndu kaffi og
4 reitir fyrir sykur, hver fyrir
500 g. Má klippa seðlana i sund-
ur og skulu reitirnir afhentir jafn-
óðum og kaup fara fram, en
stofninn skal geyma þar til næsta
afhending fer fram. Skal honum
þá skilað, og verða nýir scðlar
aðeins afhentir gegn eldri stofni.
9. gr.
Heimilt er að kaupa bygggrjón
út á hafiamjölsseðla ef óskað er.
Ef svo er ástatt, að maður má
eigi borða rúgmjöl eða rúgbrauð
samkvæmt læknisráði, getur hann
sent skömmtunarskrifstofunni
beiðni um skipti á þeiin seðluin
fyrir hveitiseðla, og skulu rúg-
mjölsseðlarnir, er óskað er skipti
á, fylgja beiðninni ásamt læknis-
vottorði.
10. gr.
Auk hinnar venjulegu skömmt-
unar er leyfð aukáskömmtun á
rúgmjöli til nolkunar í slátur.
Er aukaskammturinn ákveðinn 2
kg. af rúgmjöli í hvert slátur.
Skulu þeir, sem kaupa slátur,
sýna skilríki frá seljanda um
kaupin, þeir sem hafa látið slátra
hjá öðrum, vottorð um hve mörg
slálur þeir hafi flutt heim, en
þeir, er slátra heima, skulu gefa
drengskaparyfirlýsingu um það,
hve mörg slátur þeir hafi tekiö
þar. Smásöluverzlunum er heim-
ilt að afgreiða rúgmjöl samkvæint
þessum skilríkjum, sem þeir af-
henda síðan lueppsnefndum á
sama hátt og segir í 12. gr., og
fá innkaupsleyfi í staðinn.
H. gr.
\
Skömmtunarskrifstofan afhend-
ir brauðgerðarhúsum ávísanir til
innkaupa á þeim skömmtunar-
vörum, er þeim kann að verða
leyft að nota i annað en hveiti-
brauð og rúgbrauð eftir reglum,
sem ríkisstjórnin setur henni. Á
sama hátt afhendir skömmtunar-
skrifstofan öðrum iðnfyrirtækjum
ávísanir til innkaupa á þeim
skömmtunarvörum, sem þau
kunna að nota. Ertnfremur mat-
söluhúsum, sjúkrahúsum og öðr-
um svipuðum stofnunum.
12. gr.
Smásöluveizlanir (og brauð-
gerðarhús) alhenda hreppsnefnd-
um eða bæjarstjórnum þáskömmt-
unarseðla, er þeir fá fyrir seldar
vörur, og eigi siðar en 5. dag
næsta tnánaðar, og fá I slaðinn
hjá þeim vottorð um, hve miklu
þeir hafi skilaö. Frá sama tíma
eru eldri seðlar ógildir. Vottorð
þessi, eitt eða fleiri, sem jafn-
framt eru leyfi til innkaupa, skulu
þeir láta fylgja pöntunum sínum
til heildsöluverzlana. Hafi smá-
söluverzlun eigi fengið nægilegt
seðlamagn til þess að fá þær
vörur, er hún þarf, sökum þess,
að hún hefir upphaflcga haft of
litlar vörubirgðir, er hreppsnefnd-
uin og bæjarstjórnum heimilt að
gefa út innkaupsleyli fyrirfram,
en leyfi þessi skulu þær bókfæra
og gæta þess vandlega, að seðl-
um sé slðan skilað fyrir þeim.
Ef smásöluverzlun er innflylj-
andi, má eigi afhenda henni
skömmtunarvörur til sölu frá af-
greiðslu skipsins eða annarri
geymslu, sem hreppsnefnd eða
bæjarstjórn samþykkir og hefir
eftirlit með, nema með leyfi
hreppsnefndar eða bæjarstjórnar,
sem þær gefa eigi nema smá-
söluverzlunin hafi skilað sam-
svarandi seðlamagni, eða svo
stendur á, sem hér segir á und-
an. — Hreppsnefndir og bæjar-
stjórnirskulu slðan sendaskömmt-
unarskrifstofunni seðlana, ásamt
skýrslum um innkaupsleyfi þau,
sem þær hafa gefið út.
13. gr.
Ef smásöluveizlanir eða neyt-
endur þykjast órélti beiltir af
hreppsnefndum og bæjarstjórn-
um geta aðilar áfrýjað gerðum
hennar til skömmtunarskrifstof-
unnar, sem síðan úrskurðar málið
í samráði við ríkisstjórnina.
14. gr.
Heildsöluverzlunum er bannað
að afgreiða skömtunarvörur til
smásöluverzlana nema gegn inn-
kaupsleyfi hreppsnefnda, bæjar-
stjórna eða skömtunarskrifstofu.
Þær skulu framkvæma birgða-
talningu 16.—17. sept. og senda
skömmtunarskrifstofunni skýrslu
um hana og ennfremur um öll
innkaup sfn j Jnóðurn. Innkaups-
leyfi smásöluverzlana, útgefin af
hreppsnefndum eða bæjarstjórn-
um, skulu þeir senda skömmtun-
arskrifstofunni er þeir hafa af-
greitt pantanir þær, sem voru
sendar með.
15. gr.
Nú telur skömmtunarskrifstof-
an nauðsynlegt að flytja ein-
hverja vörutegund, er reglugerð
þessi fjallar um, frá einum lands-
hluta til annars, en eigendur var-
anna vilja eigi láta þær lausar,
er ríkisstjórninni þá heirnilt að
taka vörur þessar eignarnámi og
selja þær aftur á þeim stað,
er skömmtunarskrifslofan telur
nauðsynlegt.
16. gr.
Skömmtunarskrifstofan veitir
smásöluverzlunum innkaupsleyfi
aukalega fyrir venjulegri rýrnun
á skömmtunarvörum vegna flutn-
ings og sölu, og ennfremur hafi
vara farizt eða skemmzt svo að
hún er ekki söluhæf til manneldis,
enda verði sönnun færð á þetta,
sern skömmtunarskrifstofan tekur
gilda.
17. gr.
Brot á reglugerð þessari varða
sektum allt að 10 000 krónum, og
skal farið með mál út af þeim
sein almenn lögreglumál.
18. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar
gildi.
í ríklsstjórn íslnnds, !). sept. 15)30.
Eysteinn Jónsson. Ólafur Thors.
JakobMöller.HermannJónasson,