Vesturland - 16.09.1939, Síða 3
VESTURLAND
145
íO >®<)SOS<)SOS( ® Lö]
$ *
* Góðar vörur
eru beztu vinir hag-
sýnnra húsmæðra.
Sólar- og Stjörnu-smjörlíki
og
Sólar-j urtafeiti
eru uppáhald allra hús-
mæðra, sem hafa reynt það.
Biðjið ávalt
u m þ að.
®
Vesturland telur sjálfsagt að
birta í heilu lagi reglugerðina
um matvælaskömtunina. Skamt-
urinn má heita óbreyttur frá því
sem var í síðustu heimsstyrjöld
1914—1918; þó er nokkuð dreg-
ið úr kaffiskamtinum. Reynslan
varð þá sú, að skaniturinn dugði
yfirleitt vel; áttu sumir jafnvel
talsverðan afgang. Söm mun
reynslan verða nú, þar sem mat-
airæði er stórum fjölbreyttara og
meira á boðstólum af innlendum
matvörum, sem geta bætt upp
hinar skömtuðu vörur. Samkvæmt
úthlutuninni verður vikuskamtur
eða V4 mánaðar fyrir mann þessi:
500 gr. sykur
75 — kaffibaunir eða
627a — brent og malað kaffi
250 — haframjöl
125 — hrísgrjón eða aðrar
kornvörur
600 — hveiti eða
750 — hveitibrauð
750 — rúgmjöl eða
1125 — rúgbrauð.
Bæjarskrifstofan annast mat-
vælaúthlutunina hér.
Fer úthlutunin fram f fyrsta
sinn í dag og á morgun kl. 10
—12 og 13 — 19, og verður þá
úthlutað til loka yfirstandandi
mánaðar. Síðan fer fram úthlut-
un fyrir mánuð í senn í byrjun
hvers mánaðar.
Eflaust verður mest þröng og
vafningur við þessa fyrstu út-
hlutun, en almenningur getur
stuðlað mjög að þvi, að þeir
verði sem minstir, og af hálfu
skrifstofunnar verður reynt að
láta afgreiðsluna ganga sem lið-
legast, svo fólk þurfi litið að bíða.
100 þúsund tunnur
af kartöflum.
í útvarpserindi, er Steingrímur
Steinþórsson búnaðarmálastjóri
flutti nú I vikunni, gat hann
þess, að áætla mætti, að kart-
öfluuppskeran hér á landi yrði
í haust a. m. k. 100 þús. tunnur.
Eru það stórstígar framfarir
sein orðið hafa í kartöfluræktinni
síðustu árin. t>ó má betur ef
duga skal.
Bauuvörur
vegna ófriðar.
Tilkynning frá ríkisstjórninní.
Ríkisstjórninni barst 5. þ. m.
svohljóðandi símskeyti frá
danska sendiráðinu í London:
Eftirfarandi vörur taldar bann-
vörur vegria ófriðar:
Algerðar bannvörur:
A Vopn af öllurn gerðum,
skotfæri, sprengiefni, kemisk efni
eða efni, sem hægt er að nota 1
„kemisku stríði“, svo og vélar
til framleiðslu eða viðgerðar
þessara hluta, hlutir eða stykki f
ofantaldar vörur, vörur, sern
nauðsynlegar eru eða vel til
fallnar við notkun þeirra, efni
allskonar sem notuð eru til fram-
leiðslu þeirra, ennfremur vörur,
sem eru nauðsynlegar eða vel
til fallnar til framleiðslu eða
notkunar ofangreindra efna.
B. Eldsneyti allskonar, allskon-
ar flutningatæki á landi, á sjó
og í lofti, svo og vélar notaðar
við framleiðslu eða viðgerð þeirra,
tæki, vörur eða skepnur, sem
nauðsynlegar eru eða vel til
fallnar við notkun þeirra, efni
allskonar, sem notuð eru við
framleiðslu þeirra, vörur sem
nauðsynlegar eru eða vel til
fallnar til framleiðslu eða notkun-
ar slíkra efna.
C. Samgöngutæki af öllum
gerðunr, allskonar tól, verkfæri,
tæki, útbúnaður, landabréf eða
sjókort, rnyndir, pappírar og aðrir
lilutir, vélar eða plögg, sem nauð-
synleg eru eða vel fallin til liern-
aðaraðgerða, ennfretnur vörur,
sem nauðsynlegar eru eða vel
fallnal til fratnleiðslu eða notkun-
ar ofantaldra hluta.
D. Mynt, ómótað gull, silfur,
gjaldeyrir, skuldaviðurkenningar,
svo og allskonar málmar, efni,
rnyntir, skildir, vélar, eða aðrir
hlutir, sem nauðsynlegir eru eða
vel til fallnir til framleiðslu ofan-
taldra hluta.
Takmarkaðar bannvörur:
E. Allskonar . fæðutegundir,
skepnufóður og klæðnaður, svo
Sjúkrasamlag ísafjarðai’:
ITf'tplit yf*ii? Feksínirinn
frá 1. janúar til 31 ágúst;
1937: 1938: 1939:
Sjúkrahúsvist . . 28 924.50 26.214.05 24.312.50
Lyfjakostnaður . 9.37888 10061.33 12.308.53
Læknishjálp . 12.792.79 11.204 00 11.115.25
Reksturskostnaður 3639.58 4.318.90 4.235.15
Fæðingastyrkur 610.00 765.00 750.00
Nuddkostnaður 59725 452.50 580.00
Ljóslækningar . 72 00 106.00
Dagpeningar . . 5.924.50 3.403.50 1.771.00
Umbúðir . . . 79.77 89.36
Kirtlataka . . 60.00
61.867.50 56 571.05 55.327.79
Tekjur . . . . 55.521.75 48 564.75 57.02490
Halli . . . . . 6.345.75 8.006.30
Hagnaður . . . 1.697.11
Styrkur til Samlagsmanna yfir Rekstur Samlagsins hefir geng-
þetta tímabil hefir verið setn hér ið erfiðlega til þessa, enda hefir
segir: sjúkrahúsvist orðið hærri hér en
Sjúkrahúsvist kr. 79.451.05 hjá hinum sjúkrasamlögunum.
Læknishjálp » 35.112 04 Nokkuð virðist þetta vera að
Lyf ii 31.748.74 breytast til batnaðar, og reynist
Rekstur » 12.193.63 það svo til frambúðar verða
Fæðingastyrkur » 2.125 00 réttindi. samlagsmanna sjálfsagt
Nudd » 1.629.75 aukin eitthvað.
Ljóslækningar . » 178.00 Ráðgert er að halda almenn-
Dagpeningar » 11.099.00 an fund Samlagsmanna síðar
Umbúðir » 169.13 í haust, þar sem skýrt verður
Kirtlataka » 60 00 ýtarlega frá hag og rekstri Sam-
Kr. 173.766.34 lagsins.
Tilkynning til ísfirðinga.
Samkvæmt reglugerð ríkisstjórnarinnar dags. 9. þ. m. um sölu
og úíhlutun á nokkrutn matvælategundum, hefst skömtun nokkurra
matvælategunda 18. þ. m.
Vörur þær er skömtunin að þessu sinni tekur til, eru: Kaffi,
sykur, rúgbrauð, hveitibrauð, rúgur, rúgmjöl, hveiti, hveitimjöl,
hafragrjón, haframjöl, hrísgrjón, matbaunir, bankabygg og aðrar
kornvörutegundir, nema fóðurbygg, fóðurhafrar og fóðurbygg.
Skömtun þessi verður framkvæmd á þann hátt, að hver mað-
ur fær seðil, er veitir honum rétt til kaupa á matvælategundum
þeirn, er skamtaðar verða. Seðillinn gildir fyrir einn almanaksmán-
uð. í fyrsta sinn þó aðcins til loka þessa mánaðar. Stofn seðils-
ins ber að geyma vel, og afhenda hann við næstu úthlutun.
Seðlarnir fyrir sepfembermánuð, verða afhentir á bæjarskrif-
siofunni dagana 16. og 17. þ. m. (laugardag og sunnudag) frá
kl. 10 til 12 og frá kl. 13 til 19. Ber því viðtakendum seðlanna
eða heimilisfeðrum í þeirra stað að mæta á téðum stað ng tima,
og skulu þeir jafnframt því að veita seðlunum móttöku, gefa upp
og undrrita drengskaparvottorð uin það, hvort, og hve mikinn
forða þeir eigi af áðurlöldum matvælum.
Athugið! Allir heimilisfeður eru skyldir að mæta, eða láta
mæta fyrir sig — að viðlögðum sektum — til skýrslugjafar þeirr-
ar er að ofan getur, enda þótt þeir eigi svo miklar matvæla-
birgðir, að þeir þurfi ekki matvælaseðla fyrst um sinn.
ísafirði, 14. september 1939.
F. h. bæjarstjórnar ísafjarðar.
Jens Hólmgeirsson.
og vörur og efni, sem notuð eru
til framleiðslu þeirra.
Forsætisráðuneytið, utanríkis-
máladeild, 6. september 1939.
Prentstofan ísrún.
í»eir nemendur H ú s-
mæðraskólans, sem
staddir eru í bænum, eru vin-
samlega beðnir að mæta í skól-
anuiri miðvikudaginn 20. sept-
ember kl. 4 e. m.
Forstöðukonan.