Vesturland - 11.01.1941, Síða 2
6
VESTURLAND
Lýðræðisbrot kirkjumálaráðherrans.
Veiting prestsembættanna í Reykjavík.
Bróðir Eysteins ranglega skipaður prestur.
Tilkynning frá ríkisstjórninni.
Þar til öðruvísi verður ákveðið munu hin brezku varðskip,
sem hafa eftirlit með siglingum við Reykjavik, halda sig kringum
0,7 sjómílur í 300° stefnu frá Engeyjarvita.
Reykjavík, 13. desember 1940.
Forsætis og kirkjumálaráð-
herrann Hermann Jónasson hefir
nú nýverið veitt prestsembættir,
f Reykjavik, og bersýnilega ekki
getað neitað sér um þá tíða venju
Framsóknarmanna, að ganga á
móti vilja kjósendanna og fremja
lýðræðisbrot. Hefir honum þótt
það því sjálfsagðara, þar sem í
hlut átti einn af vandamönnum
Framsóknarflokksins, bróðirvið-
skiftamálaráðherrans.
Biskup landsins, herra Sigur-
geir Sigurðsson, lagði til að þeim
yrðu veitt embættin. sem flest
atkvæði fengu í hverri sókn, og
er það í fullkomnu samræmi við
hefðgróna og ríkjandi venju í
þessum efnum.
í Hallgrimssókn voru kosnir
tveir prestar. Langflest atkvæði
fengu þeir síra Sigurbjörn Ein-
arsson og síra Jón Auðuns. —
Næstur þeim að atkvæðatölu var
síra Sigurjón Árnason, en bróðir
Eysteins viðskiftamálaráöherra,
síra Jakob Jónsson, var fjórði
maður að atkvæðatölu.
Forsætis-, dóms- og kirkju-
málaráðherrann, Hermann Jón-
asson, veitti séra Jakob annað
prestsembættið Hallgrímssókn,
gegn tillögum biskups og það
Kaupgjaldsmálin.
Frá þvf síðasta blað kom út
hefir þetta helzt gerst f kaup-
gjaldsmálunum:
Verkalýðsfélagið Baldur hér í
bænum hefir nú gert kaupgjalds-
samninga við flesta atvinnurek-
endur. Samkvæmt samningum
þessum hækkar kaup í dagvinnu
um 5 aura á klukkustund, og
kaup við isfiskvinnu verður kr.
2.20 á kl.st., jafnt á hvaða tíma
sólarhrings sem er. Á alltkaup-
gjald greiðist fuli dýrtiðaruppbót.
Kaup í dagvinnu, hjá at-
vinnurekendum, verður þvi, mið-
að við núverandi dýrtíðarupp-
bót, kr. 1.92 á kl.st., en i vinnu
hjá bæjarsjóði kr. 2.16 á klst,
Verkalýðsfélagið á Flateyri
hefir undirritað samninga við
vinnuveitendur þar.
Verkalýðsfélagið Dagsbrún í
Reykjavik hefir við alsherjarat-
kvæðagreiðsiu samþykkt kaup-
gjaldssamninga þá, sem sam-
komulag hafði orðið uin milli
vinnuveitenda og samninga-
nefndar Dagsbrúnar. Er þvi aflétt
verkfalli félagsins.
Verkamannafélagið Hlif i Hafn-
arfirði hefir undirritað samninga
við vinnuveitendur þar, á likum
grundvelli og Dagsbrún í Rvík.
Verkfall stendur enn yfir hjá
Iðju, félagi verksmiðjufólks í
þótt séra Jakob fengi 230 atkv.
færra við kosningarnar en séra
Jón Auðuns.
Að vera forsætis- og dóms-
málaráðherra ætti með réttu að
teljast hin mesta virðingarstaða
í landinu, og þeim sem þá stöðu
rækja fyrir þjóðfélagið ætti að
vera skylt að vinna þau störf
svo að þeim sjálfum og þjóð-
félaginu væri sómi að.
Lýðræðinu í landinu og sjálf-
stæði þjóðarinnar stafar meiri
hætta af þeim ráðherrum og
stjórnmálaflokkum sem þverbrjóta
kosningarrétt og iýðræði, en af
erlendum stundar-yfirráðum, því
þessir menn deyfa lýðræðiskend
þjóðarinnar, vegna flokksofstæk-
isins verða þeir óhappamenn í
stjórnmálalífi þjóðar sinnar.
Sama má segja um þau lítii-
menni, sem taka við stöðum og
embættum úr hendi óhappamann-
anna.
Þrífist aldrei slíkir menn I þjóð-
félagi voru. Það er með réttu
talið ósæmilegt að hafa rangt
við f leik og unglingar sem það
gera fá fyrirlitningu leiksystkina
sinna. Hversu miklu fyrirlitlegra
er þá ekki að hafa rangt við
í opinberum trúnaðarstörfum.
Reykjavík. Hefir ekkert verið
unnið í verksmiðjum þar siðan
um áramót.
Verkfall háseta á togurum
stendur nú einnig yfir, og er
meirihluti togaraflotans stöðvað-
ur af þessum sökum.
Sáttasemjari ríkisins mun hafa
fengið vinnudeiiur þessar til
meðferðar.
Sókn Grikkja í Albaníu
heldur enn áfram. Hafa Grikk-
ir nú tekið herskildi borgina
Klisura, en um þá borg hafa
staðið harðir bardagar undan-
farið.
Varð mikill fögnuður í Grikk-
landi, er það spurðist að Klisura
væri fallin. #
Grísk tundurdufladeild fór ný-
lega inn i Adríahaf til árása á
borgfna Vallona. Skutu herskip-
in á borgina og ollu miklu tjóni.
Héldu sfðan heimleiðis án þess
að til viðureignar kæmi við ítölsk
herskip.
ítalir hafa nú um stund haft
sig meira frammi í loftárásum á
grískar borgir, en verið hefir um
hríð. Gerðu þeir nú í vikunni
snarpar árásir á Saloniki og ollu
þar talsverðu tjóni.
Athugasemd enn.
í siðasta bl. Vesturlands hefir
hr. Elias Ingimarsson ritað at-
hugasemd út af greinarkorni:
Frá Hnífsdælingum, sem birtist
i 48. tbl. f. á.
Þótt fyrnefnt greinarkorn sé
ekki eftir mig, bið eg yður, hr.
ritstjóri, að birta eftirfarandi:
Eg tel athugasemd hr. E. I.
ekki á rökum bygða, ef gera á
réttan samanburð á Hnífsdal eins
og hann var áður og eins og
hann er nú.
Því miður er útgerðin í Hnífs-
dal talsvert minni nú en áður.
Þegar útvegurinn var mestur
voru hér 20 vélbátar 5—8 smál.
og 20 trillubátar og árabátar.
Nú er fiskiflotinn 5 vélbátar 12
til 18 smál. og svo vélb. Glaður,
sem er skráður frá Hnifsdal, en
Hnífsdælingar hafa lítið haft af
að segja, nema að nokkrir menn
fengu þar skiprúm á síldveiðum
s. 1. sumar, en þess hafa þeir
notið á fleiri bátum. Árabátar og
trillubátar eru nú að eins 1—2.
Svo er annað í þessu máli.
Bryggja sú, er sett var í Skelja-
vík, hefir dregið útveginn frá
piássinu og enn sem komið er
er hún vafasamur gróði fyrir það
Þvi miður er útlit fyrir að svo
verði enn um langa stund, þar
sem aðstaða á landi við bryggj-
una er hvergi nærri ákjósanleg.
Legupláss fyrir bátana er líka
takmarkað og slys þau á bátum,
sem orðið hafa þar síðustu árin
sýna glögglega, að bátalegan er
ótrygg, enda hefir komið fyrir
að orðið hefir að fá bát frá ísa-
firði til þess að bjarga bátum
á legunni við bryggjuna. Þykir
mér ólíklegt. að útvegurinn auk-
ist að ráði meðan aðstaðan ekki
batnar, en máske hr. E. I. hafi
það alt i hendi sinni.
Mér eru vel kunnar ástæðurn-
ar fyrir þvi. að hafnarmannvirki
okkar Hnífsdælinga var valinn
staður i Skeljavik. Má hr. E. I.
miklast af hlutdeild sinni I því
máli min vegna, ef hann vill, en
ekki verður það gert með þeim
rökum, að það hafi bætt hag
okkar Hnifsdælinga í heild í einu
né neinu.
Eg sé ekki neilt niðrandi við
það þótt Hnifsdalur sé nefndur
fremur sveitaþorp en verstöð.
Hann er það nú, þótt hr. E. I.
vilji halda öðru fram. Sú mikla
atvinna við fiskverkun sem var
i Hnffsdal áður máfti heita nær
því horfin þegar núveraudi styrj-
öld skall yfir. Þess vegna hefir
fjöldi Hnifsdælinga orðið að sitja
atvinnulitlir heima, ieita burtu til
atvinnu, en sumir flutt sig bú-
ferlum. Mætti hr. E. 1. vera þetta
vel kunnugt, þar sem hann hefir
verið hér oddviti um hríð og
mikill ráðamaður.
Margt fleira væri ástæða til að
leiðrétta í athugasemd hr. E. I.,
en eg læt þetta nægja að sinni.
Hnifsdal, 6. janúar 1941.
Valdemar Þorvarðsson.
Vestfjarða-annáll.
íbúatala ísafjarðar.
Samkvæmt hinu árlega mann-
tali, er bæjarstjórn lætur taka,
voru hér skráðir 2939 fbúar nú
um s. 1. áramót, þar at eiga 130
lögheimili annarstaðar. Heimilis-
fastir íbúar eru því 2809.
Mannalát.
25. f. m. andaðist að Fossum
í Skutulsfirði Þórdís Helgadóttir,
7 ára gömul.
1. þ. m. andaðist í sjúkrahúsi
ísafjarðar ekkjan Málfriður Jóns-
dóttir frá Hnifsdai, 73 ára gömul.
Raforka til hitunar
lækkar frá síðasta mælaflestri
f 8 au. kwst.
Árshátíð Templara
hér fór fram s. I. sunnudag
við góða aðsókn og mikinn
áhuga. Er Templurum Ijóst, að
áfengisskömtunin bætir ekki úr
ástandinu, sem margir bjuggust
þó við að verða myndi.
Trúlofuð
eru á Flateyri: Frk. Hallfriður
Guðbjartsdóttir og Guðmundur
V. Jóhannesson skipstjóri. Enn-
fr. frk. Guðjóna Guðbjartsdóttir
og Sturla Ebenezersson kaupm.
Stúlka óskast strax.
Anna Jónsdóttir,
Hrannargötu 4.
Stúlka óskast strax.
Ritstjóri visar á.
Morgunn,
tímarit Sálarransóknarfélags ís-
lands, fæst hjá undirrituðum.
Arngr. Fr. Bjarnason.