Vesturland

Árgangur

Vesturland - 18.07.1947, Blaðsíða 4

Vesturland - 18.07.1947, Blaðsíða 4
Landsmót stúdenta XXIV. árgangur Isafjörður, 18. júlí 1947 26. tölublað ísland þátttakandi í ráðstefnu um viðreisn Evrópu. Pétur Benediktsson, sendiherra er fulltrúi Islands á ráðstefnunni. Fulltrúi Islands á. sæti í nefnd, sem kosin var á ráð- stefnunni til þess að gera tillögur um landbúnaðarmál og matvælaf r a mleiðslu. Arngerðareyrar- bryggan fullgerð S. 1. miðvikudag var fullokið byggingu bryggjunnar á Arn- gerðareyri. Er hún 70 metra löng og þannig gerð að fremst er steinker óg síðan 10 m. lang- ur landgangur úr timbri upp að steyptri uppfyllingu. Bryggjan er hin traustbyggð- asta og að henni mikiil sam- göngubót. Yfirsmiður við bryggjugerð- ina var Kjartan Halldórsson frá Bæjum. Hefur hann einn- ig haft yfirumsjón með bryggj ugerðinni á Melgras- eyri. ■-----O------ Mikil umferð um Þor skaf j ar ðar heiði. Síðan að ferðir áætlunarbif- reiða hófust yfir Þorskafjarð- arheiði hefur verið mikil um- ferð um þessa leið. Hafa stund- um komið 3 áætlunarbifreiðir í ferð með allt að 100 manns. Margt ferðafólksins fer yfir í Reykjanes og um Inndjúpið en aðrir halda hingað til Isa- fjarðar og vestur á firðina. Fargjaldið með bifreiðunum mrlli Arngerðareyrar og Reykjavíkur hefur verið 130 kr. samkvæmt svokölluðum „vetrartaxta“. Er það furðu- lega hátt og væri fróðlegt að kynnast rökurn Póststjórnar- innar fyrir svo háu fargjaldi á þessari leið. Verður að krefj- ast þess að þessi „vetrartaxti“ verði tafarlaust afnuminn. ------0------ Dánarfregnir. Mánudaginn þann 7. júlí síðastl. andaðist úr hjartaslagi i Hafnarfirði, Guðmundur Sveinsson, fyrrverandi skrif- stofustjóri hjá Kaupfélagi Is- firðinga. Guðmundur heitinn flutti fyrir tæpu ári til Hafnar- fjarðar og tók þar við kaupfé- lagsstjórastarfinu. Hann lætur eftir sig konu og fimm börn. Guðmundur heitinn var vel látinn af öllum, sem kynntust honum, enda prúðmenni mik- ið, skyldurækinn og feglusam- ur. Hann var ötull starfsmaður Góðtemplarareglunnar hér á Isafirði og lét sér bindindis- málin jafnan miklu varða. Þann 5. þ. m. andaðist hér á Isafirði Guðbrandur Júlíus Vigfússon, verkamáður, Brunn- götu 20, 76 ára að aldri. Þann 20. fyrra mánaðar and- aðist á Sjúkrahúsi Isafjarðar eftir þunga sjúkdómslegu, Skúli Viggósson, sonur hjón- anna Kristínar Guðmundsdótt- ur og Viggós Guðmundssonar, Fj arðarstræti 21 hér i bænum. Sendiherra Breta, Sir Ger- ald Shepherd, og sendiherra Frakka, herra Henri Voillery, komu 4. þ. m. á fund utanrík- isráðherra og færðu honum samhljóða orðsendingar ríkis- stjórna sinna, þar sem Islandi er boðið að senda fulltrúa ó ráðstefnu um viðreisn Evrópu, um áætlanir varðandi fram- leiðslumöguleika og þarfir Evrópulandanna og um nauð- synlega skipulagningu i því skyni að koma þeim áformum fram. Fræðsluráð er skipað 5 mönnum eins og skólanefndin var, en þeir eru nú allir kosn- ir af bæjarstjórn og ráðið kýs sér sjálft formann, en formað- ur skólanefndarinnar var, sem kunnugt er skipaður af menntamálaráðherra. Bæjarstjórn hefur nú kosið eftirtalda 5 menn í fræðsluráð og 5 til vara: Aðalmenn: Frá Sjálfstæðisflokknum: Baldur Johnsen, héraðslæknir og Kristján Jónsson, fulltrúi bæj arfógeta. Frá Sósíalistaflokknum: Séra Sigurður Kristj ánsson, sóknar- prestur. Frá Alþýðuflokknum: Helgi Hannesson, kennari, og Birgir Finnsson framkvæmdarstjóri. V a r a m e n n : Frá Sjálfstæðisflokknum: Frú Guðbjörg Bárðárdóttir og Matthías Bjarnason, bóksali. Frá Sósíalistaflokknum: Har- aldur Steinþórsson, ráðsmað- ur. Frá Alþýðuflokknum: Sig- urður Guðmundsson, bakara- meistari og frú Ingibjörg Eijn- arsdóttir. Til ráðstefnu þessarar, sem hefjast mun í París hinn 12. júlí n. k., er boðað á grund- velli þeirra hugmynda, sem fram komu á ræðu utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna liinn 5. júni s. 1.., og er öllum Ev- rópuríkjanna, nema Spáni, boðin þátttaka. Ríkisstj órnin hefur ákveðið að senda fulltrúa á ráðstefnu þessa og var Island tíunda rík- ið í röðinni, sem tilkynnti þátt- töku sína í ráðstefnunni. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sina ungfrú Unnur Kon- ráðsdóttir, Grundargötu 4 og Eyjólfur Níels Bjarnason, raf- virkjanemi, Aðalstræti 22, hér i bæ. MUNIÐ AÐ BORGA VESTURLAND Gjalddagi Vesturlands var 1. júlí. Það eru vinsam- leg tilmæli blaðsins til allra kaupenda sinna að þeir greiði árgjaldið, 10 kr., hið allra fyrsta til afgreiðslunn- ar, Uppsölum, Isafirði. Landsmót stúdenta verður haldið í Reykjavík og Reyk- holti um næstu helgi. Aðalum- ræðuefni verður handritamál- ið. Heiðursgestur á mótinu verð- ur Sigurður Guðmundsson skólameistari á Akureyri. Stúdentar héðan, sem búast við að verða eða geta verið syðra um þessar mundir, geta fengið nánari upplýsingar um mótið hjá Kjartani J. Jó- hannssyni, lækni. ------0------- Viðskiptasamningur milli Islands og Sovétríkjanna. 1 febrúarmánuði s. 1. sendi ríkisstjórnin sendinefnd til Ráðstjórnarríkjanna til við- ræðna um ýms viðskiptamál. Nefndina skipuðu: Pétur Benediktsson sendi- herra, og var hann formaður nefndarinnar. Pétur Thorsteinsson sendiráðs- ritari, varaformaður nefndar- innar. Björn Ólafsson fyrrv. ráð- herra. Helgi Pétursson, fram- kvæmdast j óri. Ársæll Sigurðsson fram- kvæmdastjóri. Og ráðunautur nefndarinnar Sveinn Jónsson útgerðarmað- ur. Árangurinn af sendiförinni var sá, að hinn 21. f. m. voru undirritaðir kaup- og sölu- samningar milli -Islands og Sovétrikj anna. Var samið um sölu á verulegu niagni af síld- arlýsisframleiðslu Islendinga sumarið 1947 og á tiltekriu magni af hraðfrystum fiski. Endanlegt magn hans verður þó ekki ákveðið og fiskinum ekki afskipað fyrr en sýnt er, hversu mikið magn a.f lýsi fell- ur í hlut Ráðstjórnarríkjanna af sumarframleiðslunni. Enn- fremur var samið um sölu á verulegu magni af saltsíld og þorskalýsi. Frá Ráðstjórnarríkjunum munu Islendingar kaupa, lcol, sement, timbur og lítilsháttar af krossvið og salti. starfar á sama hátt og síðast liðinn vetur. Þriðja deild hefst jafnframt barnaskólanum 15. október n. k., en fyrsta og önnur deild hefjast 3. janúar. Skriflegar um- sóknir um þriðju deild óskast sendar fyrir 1. september, en umsóknir um fyrstu og aðra deild fyrir 15. nóvember til undirritaðs, sem gefur nánari vitneskju. Þóroddur Guðmundsson skólastjóri. Fræðsluráð ísafjarðarkaupstaðar. Bæjarstjórn samþykkti fyrir nokkru að kjósa Fræðslu- ráð Isafjarðarkaupstaðar, er kæmi í stað skólanefndar gagnfræðaskólans og barnaskólans, en vildi þó fyrst fá til þess heimild menntamálaráðuneytisins. Er sú heimild nú fengin, enda hafði fræðslumálastjóri mælt með því að fræðsluráð yrði kosið.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.