Vesturland - 02.02.1953, Blaðsíða 3
VESTURLAND
3
tllllllllltlllllllllllllHIMIIIIIIIItaillHlllllllllllllllllllllllllillMlltlllllllUIUlllllllHllllllllllllllillllllllllllllllllRlllllllllllllllllllllllllllUlllllllUlltllllliaillllllllllllllllllllllllllllllUIUIIIIHIIlllllllllllliilllM
I H.F. EIMSKIPAFÉLAGISLANDS. 1
Tilkynning til hluthafa.
Hérmeð skal vakin athygli á því, að samkv. 5. gr. samþykkta
félagsins, skulu hlutabréf í félaginu hljóða á nafn eiganda, og
skal stjórnin halda skrá yfir alla hluthafa, enda skal stjórn fé-
lagsins tilkynnt öll eigendaskipti sem verða á hlutabréfum félags-
ins, og þegar um sölu er að ræða, þarf samþykki stjórnarinnar til
þess að hún sé gild gagnvart féiaginu.
Til þess að unnt sé að framfylgja þessum fyrirmælum um
nafnskráningu hlutabréfanna, og að halda rétta nafnaskrá yfir
alla hluthafa, er hérmeð skorað á alla þá, er eignast hafa hluta-
bréf í félaginu og ekki hafa enn látið skrásetja eigendaskiftin,
að tilkynna aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík eigendaskiptin
hið fyrsta og taka jafnframt fram hvort um arftöku, gjöf eða
kaup hlutabréfanna sé að ræða. Taka verður fram upphæð, flokk
og númer hlutabréfanna, svo og nafn og heimilisfang fyrri
eigenda þeirra. Eyðublöð undir tdkynningar þessar fást á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík, sem skrásetur eigendaskiptin.
Það skal tekið fram, að fyrr en eigendaskiptin hafa verið
skrásett, njóta hluthafar ekki fullra réttinda í félaginu samkv.
10. gr. samþykktanna, t.d. er ekki hægt að fá aðgang að aðal-
fundum félagsins, eða veita öðrum umboð til þess að mæta þar.
Þá skal og bent á það, að enn eiga allmargir hluthafa eftir
að skipta á arðmiðastofnum hlutabréfa sinna og fá afhentar nýj-
ar arðmiðaarkir með arðmiðum fyrir árin 1943—1961, og er æski-
legt að hluthafar athugi hvort þeir hafa fengið hinar nýju arð-
mJðaarkir, og ef svo er ekki, að klippa stofninn frá hlutabréfinu
og skipta á honum fyrir nýjar, hið fyrsta.
Stjórn H.f. Eimskipafélag Islands.
liilll|llllllllltlllllM|lll!ll!l|llllllllllilll|lll»f>i|i IHIHI. r.iMlhlitlllt.iMlllllilllllllllllllMlllltllllllllllllllllllllttltlltlllllllllllUIIIIMIIIItlltllMltlllllliriltlllllllltlltlltlllllllltllttlMlltlllinilllltlltVttltll
Nr. 1/1953.
TILKYNNING
TIL INNFLYTJENDA.
I samráði við Viðskiptamálaráðuneytið hefur verið ákveðið að frá og
með deginum í dag beri innflytjendum að skila verðútreikningum yfir
eftirtaldar innfluttar vörutegundir áður en sala hefst:
Hveiti, rúgmjöl, haframjöl.
Sykur.
Kaffi óbrennt.
Léreft, sirs, tvisttau, flónel.
Nærfatnaður karla og kvenna, úr bómull.
Ullarefni, allskonar.
Prjónafatnaður úr ull.
Nylon-sokkar.
Búsáhöld úr aluminium.
Búsáhöld úr leir og gleri.
Reykjavík, 15. janúar 1953.
VERÐGÆZLUSTJÓRINN.
Frá Húsmæðraskólaxmm ísafirði
Vegna veikindaforfalla getur einn nemandi komist að við matreiðslu-
nám nú þegar. Upplýsingar í skólanum.
SKÓLASTJÓRI
Prentötdfan lerún h.f. >— íaafix’Oi.
GAMLIR SKATAR OG
SKÁTAFORELDRAR.
Vegna mikillar vöntunar á skáta-
búningum, eru það vinsamleg til-
mæli til fyrrverandi skáta og
skátaforeldra, sem hafa undir
höndum skátabúninga, að þeir gefi
okkur kost á því að kaupa þá.
Upplýsingar gefa:
Gunnlaugur sími 123 og 205
Hafsteinn sími 22 og 10
Gunne.r sími 256
Þorge'r sími 39.
TIL SÖLU.
Fjögurrahellna Norge rafmagns-
eldavél með bökunarofni, ofni til
að halda heitu i og pottageymslu.
Afgr. vísar á.
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS.
Fáeinir hálfmiðar og nokkrir
f jórðungsmiðar eru til sölu í 2. fl.
Sala og endumýjun hófst 24.
janúar. Itf.omlð tímanlega með
miða yðar.
Hapjidrætti Háskóia Isiands.
Umboðlð á r&fb#i.
Staksteinar
Þar sem enginn þekkir mann......
Hannibal skýrði frá því í Al-
þýðublaðinu, að hann hefði fengið
skeyti frá norska „Alþýðuflokkn-
um“ í tilefni fimmtugsafmælisins.
1 Noregi hefur Hannibal aldrei
dvalið.
Dönsku kratarnir munu ekki
hafa sent Hannibal skeyti, en í
Danmörku hefur hann oft dvalið
og síðast á liðnu sumri.
-■»
Reglusamur bæjarstjóri.
Þann 18. apríl 1952 gaf bæjar-
stjórinn, Jón Guðjónsson, út víxil
fyrir hönd bæjarsjóðs til seljenda
hlutabréfa í íshúsfélagi ísfirðinga
h.f., að upphæð kr. 690.000,00 —
sexhundruð og níutíu þúsund krón-
ur —. Þessi víxill var ekki bók-
færður í bókum bæjarsjóðs í nóv-
embermánuði s.l., eða sjö mánuð-
um eftir að hami var gefinn út.
Þykir þetta ekki bera vott um
reglusemi í bókhaldi bæjarsjóðs
undir hinni „styrku“ hönd Jóns
Guðjónssonar.
Víxill þessi var greiddur 7. des.
með aðstoð ríkissjóðs, en vafasamt
er, að hann hafi enn verið ífók-
færður hjá bæjarsjóði.
VITIÐ ÞIÐ?
í f járhagsáætlun bæjarsjóðs fyr-
ir árið 1953 er áætlað:
að það muni kosta kr. 44.000,00
fjörutíu og fjögur þúsund krón-
ur— í vinnulaun við að skúra og
kynda Gagnfræðaskólann, sem
starfar aðeins í rúma 8 mánuði
á ári.
Þetta eru aðeins vinnulaun. Elds
neyti og hreinlætisvörur eru fyrir
utan þetta. Það er áætlað krónur
25 þús.
Að fyrlr bókhald og gjaldkera-
starf við Sjúkrahúsið er greitt
kr. 41.000,00 — fjörutíu og eitt
þúsund krónur — á ári.
Á sama tíma er jafnað niður á
ísfirzka borgara útsvörum, eftir
hærri skattstiga en þekkist annars
staðar á landinu.
-------O--------
Gjöf til hjálparsveitar skáta
Á aðalfundi kvennadeildar Slysa-
varnarfélagsins á Isafirði, 23. þ.m.
var einróma samþ. að gefa Hjálp-
arsveit Skátafél. Einherjar kr. 2
þús. til kaupa á nauðsynlegum út-
búnaði, svo sem leitarljósum o.fl.
Hjálparsveitin er alltaf kvödd til
ef leita þarf af týndu fólki hér í
bæ, eða nágrenninu, sem oft kem-
ur fyrir, — og hafa skátarnir allt-
af brugðist skjótt við og vinna þar
með gott starf í almenningsþágu.
Hjálparsveitin er skipuð 20 elztu
skátunum og hafa alla forystu og
skipulag á hendi í slíkum leitum,
undir yfirumsjón lögreglunnar.
Er þetta höfðingleg gjöf og sýn-
ir skilning kvennadeildarinnar á
st’arfi HjálþarsVeitar skáta.