Vesturland

Volume

Vesturland - 16.06.1961, Page 3

Vesturland - 16.06.1961, Page 3
ísafjörður, 16. júní 1961. VESTURLAND 3 liíirilís Giilsdúttir Skólaslil Barnaskólanum á ísafirði var slitið hinn 18. maí s.l. Skólastjór- inn Jón H. Guðmundsson sleit skólanum og skýrði hann frá starfi skólans í vetur. Vegna kennara- skorts var ekki hægt að halda uppi fullri kennslu í vetur. Nokkrir bekkir skólans fengu því ekki kennslu nema fimm daga vikunn- ar. Talsverð brögð voru að veikind- um í skólanum á vetrinum. Barnaprófi luku 63 böm þar af 6 börn, sem ekki stóðust próf á s.L vori. 5 börn stóðust ekki próf- ið að þessu sinni. Hæstu einkunnir við barnapróf- ið fengu þessi börn: Kristín Oddsdóttir, 9,61, Sigrún Guðmundsdóttir 9,43, Sigurlína Ásbergsdóttir 9,38, allar í 16. deild, en hæstu einkunn í 15. deild hlaut SigríÖur B. Guðmundsdóttir 8,93. ★ Tónlistarskólanum á ísafirði var slitið 27. f. m. í Alþýðuhúsinu. Skólastjórinn Ragnar H. Ragnar skýrði frá starfi skólans á vetrin- um, en hann hefur nú starfað í þrettán ár. Fjöldi nemenda í skól- anutn í vetur var 50—60 og lagöi rúmur helmingur þeirra stund á píanóleik. Þá var og kennt á blásturshljóðfæri. Kennsla í blokk- flautu- og fiðluleik lagðist alveg niður í vetur, þar sem Nanna Jakobsdóttir, sem haft hefur þessa kennslu með höndum undanfarin ár fluttist úr bænum. Elísabet Kristjánsdóttir, sem kennt hefur píanóleik, veiktist um miðjian vet- ur og varð að hætta kennslu. Vil- berg Vilbergsson kenndi á blást- urshljóðfæri og stjórnaði Skóla- lúðrasveit ísafjarðar. Þessir nemendur hlutu verðlaun: Sigríður Einarsdóttir og Guðrún Halldórsdóttir í undirbúnings- og byrjunardeild, Ingvar Einarsson í yngri deild, Bárður Hafsteinsson í eldri deild, Kristjana Kjartansdótt- ir, Sigríður Ragnarsdóttir og Sig- rún Guðmundsdóttir í lokadeild. Píanóverðlaun hlutu Lára Rafnsdóttir, sem fékk 1200 kr. úr Minningarsjóði Halldórs Halldórs- soríar, bankastjói’a, og Anna Ás- aug Ragnarsdóttir, sem fékk saumaborð gefið af Húsgagna- verzlun ísafjarðar. Vorhljómleikar skólans voru haldnir í Alþýðuhúsinu og voru þeir mjög vel sóttir og vöktu mikla hrifningu áheyrenda. ★ Húsmæðraskólanum Ósk á Isa- firði var slitið 29. maí s.l. og lauk þar með 41. starfsári hans. Skólaslitaræðu flutti Þorbjörg Bjarnadóttir, skólastjóri. í skólan- um dvöldust í vetur 32 stúlkur. Hæstu einkunn í samanlögðum námsgreinum hlaut Elín Káradótt- ir 9,14 en hæstu einkunn í verk- legum greinum hlaut Hallfríður Tryggvadóttir og eru þær báðar frá Akureyri. Þorbjörg Bjarnadóttir var við nám í Bandaríkjunum um hálfs árs skeið og gegndi Jakobína Pálmadóttir störfum skólastjóra í fjarveru hennar eða til 10. marz. Ingibjörg Þorkelsdóttir annaðist kennslu í fjarveru skólastjórans. Frú Anna Sigfúsdóttir afhenti verðlaun úr sjóði frú Camillu Torfason, en verðlaunin hlutu Elín Káradóttir og Ilallfríður Tryggva- dóttir. Ein námsmeyja, Katrín Hákon- ardóttir frá Reykjavík, flutti skólastjóra og kennurum þakkir fyrir samstarfið á vetrinum og af- henti skólanum að gjöf kr. 3000,00 frá nemendunum. Þá afhenti hún skólanum einnig tré til gróður- setningar í skólagarðinum. Að loknum skólaslitum var öll- um viðstöddum boðið til kaffi- drykkju í borðstofu skólans. Þar töluðu Marías Þ. Guðmundsson, formaður skólanefndar og Sigurð- ur Bjarnason, ritstjóri. Skólakór- inn söng nokkur lög undir stjórn Ragnars H. Ragnar við undirleik Önnu Áslaugar Ragnarsdóttur. ★ Gagnfræðaskólanum á ísafirði var slitið hinn 3. júní s.l. í skólan- um voru 196 nemendur í vetur. Veikindi voru með meira móti og nokkrir nemendur urðu fyrir slys- um. Skólinn starfaði í átta deild- um, eða einni fleiri en á síðasta ári þar sem nú var starfrækt við skólann framhaldsdeild með náms- efni fyrsta bekkjar menntaskól'a. Hæstu einkunn í framhaldsdeild hlaut Bragi L. Ólafsson 9,00. Gagnfræðaprófi úr 4. verknáms- deild luku 25 nemendur. Hæstu einkunn á gagnfræðaprófi hlaut Þorbjörg ólafsdóttir 8,97, en hún fékk 9,18 í prófseinkunn. Landspróf miðskóla þreyttu 11 nemendur. Stóðust þeir allir mið- skólapróf, en 9 nemendur fengu framhaldseinkunnina 6,00. Hæstu einkunn í deildinni hlaut Hulda B. Sigurðardóttir 8,88 í landsprófsgreinum og er það ágæt einkunn þar sem landsprófið er þyngsta prófið, sem tekið er við skólann. í 3. verknámsdeild voru 26 nem- endur. Hæstu einkunn hlaut Jón Þ. Kristjánsson 8,25. Unglingapróf er tekið upp úr öðrum bekk. I 2. bóknámsdeild hlaut Finnur Birgisson hæstu eink- unn 8,86. Nemendur í deildinni voru 28. 1 2. verknámsdeild voru 30 nem- endur. Hæstu einkunn hlaut Bald- ur Ólafsson 8,37. 1 1. bóknámsdeild voru nemend- ur 33. Hæstu einkunn hlaut Guð- mundur Níelsson 8,57. 1 1. verknámsdeild voru 33 nem- endur. Hæstu einkunn hlaut Bjami Jónsson, 8,20. Að venju voru hæstu nemendum í hverri deild veitt bókaverðlaun. Auk þess fengu umsjónarmaður skóla, Oddur Guðmundsson, hringjari og gangaverðir bókaverð- laun. Verðlaun úr sjóðnum Aldar- minning Jóns Sigurðssonar fékk Anna Sigtryggsdóttir, sem lauk gagnfræðaprófi úr 4. verknáms- deild með ágætri einkunn. í lok ræðu sinnar mælti skóla- stjórinn, Guðjón Kristinsson, hvatningarorð til nemendanna og þá einkum til þeirra, sem nú kveðja skólann. Þá þakkaði hann kennurum, nemendum og öðrum starfsmönnum skólans gott sam- starf og gat þess, iað hann og kona hans, Guðný Frímannsdóttir hefðu sagt upp starfi sínu við skólann þar sem hann tæki við öðru starfi. andaðist að Fjórðungssjúkrahús- inu á Isafirði 11. maí s.l. Hún var fædd 14. október 1878. Árið 1900 giftist hún Þorsteini Guðmundssyni, klæðskera, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þor- steinn heitinn rak hér saumastofu og klæðskeraverzlun í fjölda ára. Frú Þórdís var landsþekkt fyrir hannyrðir sínar og útsaum. Hlaut hún ágæta dóma fyrir listaverk sín. Hún var hin mesta rausnarkona og vinsæl meðal þeirra, sem höfðu af henni kynni. o o o Fiskimannapróf: Stýrimannaskólanum var sagt upp í 70 sinn á þessu vori. Að þessu sinni útskrifuðust þessir nemendur frá Vestfjörðum úr skólanum: Birgir Guðjónsson, Drangsnesi, Gísli Erlingur Kristinsson, Þing- eyri, Henrý Þór Kristjánsson, Hnífsdal, Sveinn Þórður Jónsson, Bíldudal. Um kvöldið héldu nemendur lokahóf í Góðtemplarahúsinu og buðu þangað kennurum og próf- dómendum. Á sunnudag héldu nemendur 3. bóknámsdeildar og 4. verknáms- deildar norður í iand með Esju í sitt árlega skólaferðalag undir fararstjórn Guðnýjar Frímanns- dóttur og Margrétar Kristjáns- dóttur. Qtt ajj Loeiju tacji Framsóknarmenn í atvinnurekendastétt hafa að und- anförnu haft mikinn áhuga fyrir kauphækkunum. ------ Móðuharðindasvæðið varð fyrst til að fá þessar náðar- gjafir.---Sagt er að formaður kaupfélagsstjórnarinn- ar, Ragnar læknir, hafi ekki náð kosningu, sem fulltrúi á aðalfund K. I.---Heyrst hefur að umsjónamenn sorp- haugasvæðisins á Torfnesi ætli að beita sér fyrir stofnun fegrunarfélags í bænum. --- Djúpbátsfélagið er nú að hefja undirbúning að fjáröflun til byggingar á nýjum Djúpbát. — Leigan á pósthólfum hækkaði um 500%.----- Það er öðru máli að gegna þegar einstaklingar og félög þurfa að fá nauðsynlega lagfæringu á verðlagsmálum. ---- Útvegsbankinn hefur sagt upp lóð þeirri er hann fékk við Engjaveg fyrir rúmu ári. ---Það hefði mátt spara sér þá pólitísku misbeitingu sem beitt var í því máli.----Fyrir dyrum stendur hækkun á rafmagnsgjöld- um hjá Rafveitu ísafjarðar. ----- Lengi má bæta á Brúnku.-----Ragnar læknir er ennþá að falla. — Marías Þ. Guðmundsson var kosinn stjórnarfonnaður í Kaupfé- lagi ísfirðinga í hans stað.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.