Vesturland - 24.12.1978, Blaðsíða 3
Enn bregöur
Drottins birtu
Enn bregður Drottins birtu
á byggðir sérhvers lands,
því líkn Guðs eilíf lifir
og leitar syndugs manns.
Þú birtist, jólabarn,
sem œðsta ástgjöf Drottins
og imynd veru hans.
Allt böl og stn'ð skal batna,
oss brosir Drottins náð.
Öll sorg og kvöl skal sefast,
öll synd skal burtu máð.
Ó, blessað jólabarn!
Þér föllum vér til fóta
ogfelum allt vort ráð.
Sigurður Einarsson
Hörmulegt slys
Gautur Ágúst Úlfars-
son, sautján ára gamall
ísfirðingur lést er bifreið
sem hann var farþegi í
fór út af veginum á milli
ísafjarðar og Hnífsdals
aðfaranótt 10. þessa
mánaðar.
Auk Gauts heitins voru
þrír aðrir í bílnum. Slösuð-
ust þeir allir rninna, en einn
farþeganna var þó fluttur
með sjúkraflugvél til Reykja-
víkur.
Gautur Ágúst Úlfarsson,
var fæddur 2. nóvember
1961, sonur þeirra hjónanna
Jósefínu Gísladóttur og
Úlfars Ágústssonar kaup-
manns á fsafirði.
Þó Gautur heitinn hafi
verið ungur að árum, er
hann lést höfðum við sem
unnið höfum að útgáfu
Vesturlands notið góðra
starfskrafta hans. Glaðværð
hans og dugnaður er okkur
minnisstæður og minning
um þennan góða dreng verð-
ur okkur öllum lengi hug-
þekk.
Við viljum að lokum votta
foreldrum hans og systkinum
og aðstandendum öllum
okkar dýpstu samúð í þeirri
miklu sorg sem nú hefur svo
óvænt dunið yfir.
Útför Gauts var gerð frá
ísafjarðarkirkju laugardag-
inn 16. desember slðastt lið-
inn að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
Þórður Jóhanns-
son níræður
Þóröur Jóhannsson
úrsmiöur á ísafirði átti
níræöisafmæli 16. des-
ember síöast liöinn.
Þóröur er fæddur aö
Eiðshúsum í Miklaholts-
hreppi og voru foreldrar
hans þau hjónin Jóhann
Erlendsson bóndi og
söðlasmiður og kona
hans Anna Sigurðar-
dóttir.
Sextán ára fluttist Þórður
til fsafjarðar til að hefja nám
í úrsmíði. Hefur hann búið
þar síðan og unnið að iðn
sinni af eljusemi og vand-
virkni.
Þórður hefur alla tíð látið
félagsmál mikið til sín taka.
Hann var ötull báráttumað-
ur fyrir Góðtemplararegl-
una, tók þátt í leiklistarlífi
og starfsemi kóra. Hann er
einn af stofnendum Odd-
fellowreglunnar á fsafirði.
Þórður er dyggur og ákveð-
inn sjálfstæðismaður og
hefur starfað innan vébanda
Sjálfstæðsiflokksins af sömu
samviskuseminni og annars
staðar.
Eiginkona Þórðar er Krist-
ín Magnúsdóttir. Hún átti
áttræðisafmæli 22. ágúst
síðastliðinn. Þau hjónin
eignuðust sex börn, þrjá syni
og þrjár dætur.
)