Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 28.03.1980, Qupperneq 2

Vesturland - 28.03.1980, Qupperneq 2
2 ÚTGEFANDI: BLAÐNEFND: AFGREIÐSLA: RITSTJÓRI: eena aAxn-tnxxxH xiitaxs3x»jsmarM Kjördæmisráó Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi. Guömundur Þórðarson, Isafirði. Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík. Guðmundur Agnarsson, Bolungarvík. Stefán Skarphéðinsson, Patreksfirði. Friðbjörn Óskarsson, ísafirði. Að Uppsölum ísafirði sími 3232. Einar K. Guðfinnsson. Prentstofan ísrún hf. ísafiröi. „Beinir skattar eru of háir“ „Enn þarf að endurskoða skattalögin rækilega. Hinir beinu skattar eru of háir. Við stefnum einnig að því að heild- arupphæö hinna opinberu skatta bæði beinna og óbeinna verði ekki hærri en viss hund- raðstala af þjóðarframleiöslu. Ef skattamálum okkar væri komið í betra horf en nú er, mundi það um leiö örva og glæða atvinnulífið og skapa at- vinnurekstri einstaklinga betri möguleika og skilyrði." Þannig komst dr. Gunnar Thoroddsen varaformaður Sjálfstæðisflokksins að orði í ræðu, sem út var gefin í rit- gerðasafni um Sjálfstæðis- stefnuna í fyrra. Þessi orð vara- formannsins sem birtust al- menningi á valdadögum vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar, voru þörf og réttmæt. En því miður eiga þau enn við. Núver- andi ríkisstjórn hefur tekið þann kostinn að feta einstigi vinstri stjórnarinnar um klung- ur ríkisafskiptanna og kletta skattpíningarinnar. Málefnasamningur ríkis- stjórnarinnar, gaf strax til kynna hvað menn áttu í vænd- um. Loforð á loforð ofan, án nokkurar tilraunar til útskýring- ar á efndum. Með fjárlagafrum- varpinu hafa menn nú fengið að finna smjörþefinn af því, hvað loforðaglaðir stjórnmála- menn geta orðið skattgreið- endum dýrkeyptir. Samkvæmt hinu nýja fjár- lagafrumvarpi, mun tekjuskatt- ur einstaklinga hækka um 65,1 prósent, frá því sem var á síð- asta ári. Niðurstöðutölur rekstrarreikningsins hækka á hinn bóginn um 62,7 prósent. — ★ — í síðasta tölublaði Vestur- lands, sagði Matthías Bjarna- son alþingismaður, að núver- andi ríkisstjórn væri endurnýj- un á vinstra samstarfi. Þetta má vissulega til sannsvegar færa. Fyrrverandi vinstri stjórn gerði margvíslegar breytingar á skattalögum, strax haustið 1978, þegar hún komst til valda. Þessar breytingar fólu í sér hækkanir, svo sem öllum má vera kunnugt. Þessar skattaálögur hafa haldist í einu eða öðru formi. í fyrrahaust var meðal annars bætt við hækkun söluskatts um 2 prósentustig og vörugjaldshækkun er nam 6 prósentum. Núverandi ríkis- stjórn hyggst halda við þessum hækkuðu skattstofnum allt þetta ár. í grein í Morgunblaðinu fyrir skömmu benti Lárus Jónasson alþingismaður á að þessir skattar þýði um 15 milljarða í álögur á þjóðina. Því til viðbót- ar á að koma nýr skattur, orku- skattur, sem vægt áætlað yrði um 5 milljaröar króna. Lárus Jónsson segir ennfremur að þessir skattar vinstri stjórnar- innar og ríkisstjórnar dr. Gunn- ars Thoroddsen muni hafa í för með sér aukna skattheimtu er nemur 36 milljörðum króna. Við þetta má bæta að meiri- hluti Alþingis hefur nú sam- þykkt heimild handa sveitarfé- lögum að hækka útsvarsálagn- ingu sína. Það er auðvitað sanngjarnt og rétt að, sjálfræði sveitarféiaga sé aukið, með meiri tekjumöguleikum. En það er rangt að gera það með aukningu skattheimtunnar. Eðlilegast hefði verið að flytja tekjustofna frá ríkinu, til sveit- arfélaganna, án þess að til aukinnar skattlagningar hefði komið. Menn geta auðvitað haft margvíslegar skoðanir á skatt- lagningu. Og um hana deila menn í stjórnmálum. Skoðun sumra er að auka beri sam- neysluna, minnka ráðstöfunar- fé einstaklinganna og færa verkefni úr höndum þeirra til ríkisvaldsins. Þetta eru ríkisaf- skiptasinnar. Svo eru aðrir, er telja einstaklinga best til þess fallna að ráðstafa fé sínu sjálf- ir. Að mikil skattheimta sé sið- ferðilega röng og jafngildi nán- ast eingaupptöku. — ★ — Nokkru Ijósi var varpað á skattastefnu stjórnmálaflokk- anna fyrir síðustu kosningar. Kom þar sitthvað athyglisvert fram. Meðal annars það að Framsóknarmenn töldu ekki fært að auka skattheimtuna frekar. Sjálfstæðismenn álitu að minnka ætti skattbyrði al- menings. Þar á meðal boðuðu þeir afnám vinstri stjórnar skattanna, kæmust þeir til valda. Framsóknarflokkurinn og fimm sjáifstæðismenn standa að núverandi ríkisstjórn. Sú staðreynd er öllum Ijós að skattastefna stjórnarinnar er Stjórnarliðar ýmsir hafa nú um stundir iðkað hráskinnaieik einn af miklu kappi. Hafa þeir kyrjað þann söng að orkuskatt- ur sá er leggja á á landsmenn, geti einn reynst búbót fyrir þann hóp er þarf að búa við olíukyndingu. Þetta nær engri átt. Friðrik Sophusson alþingis- maður, er á sæti í fjárveitingar- nefnd, varpaði Ijósi á þetta mál í nýlegri blaðagrein. í grein hans kemur fram að sam- kvæmt hinu nýja fjárlagafrum- varpi, mun olíustyrkur í núver- andi mynd falla út. Röksemdir fjármálaráðherra fyrir þessu háttarlagi, eru þær, að hér sé um millifærslu að ræða og skipti því engu máli. Staðreyndin er hins vegar sú, eins og Friðrik bendir á, að a.m.k. þriðjungur fjárlaga er f formi einhvers konar milli- færslna. Og með því að beita röksemdarfærslu Ragnars Arn- alds, mætti eins taka um þriðj- ung allra útgjalda úr fjárlaga- ekki í neinu samræmi við kosningayfirlýsingar Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks- ins. Það liggur því Ijóst fyrir að þeir þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks er leggja blessun sína yfir skattheimt- una, hafa ekki staðið við lof- orðin er þeir gáfu kjósendum sínum, síðast liðið haust. Varnarorð dr. Gunnars Thor- oddsen um skattheimtuna, er vikið var að í upphafi, eiga vissulega enn erindi inn í þjóð- málabaráttuna. Sumum gætu þau orðið áminning, öðrum hvatning og höfundinum von- andi tilefni til að láta nú gjörðir fylgja orðum. E.K.G. frumvarpinu. Friðrik Sophusson bendir jafnframt á að ástæðan fyrir þessum sérkennilegu aðgerð- um virðist vera sú að nota eigi 2,3 milljarða króna, sem áður fóru til niðurgreiðslu á olíu, til einhverra allt annarra hluta, en síðan verði lagðir á nýjir skattar. —„Slík framkoma byggist á því að nýta sér bág- indi fólks til að auka skatt- heimtuna og þar með ríkisum- svifin, á fölskum forsendum," segir Friðrik í grein sinni. Fyllsta ástæða er til þess að taka undir þessi orð þing- mannsins. Það er óhugnalegt til þess að vita, að stjórnvöld lúti svo lágt að seilast dýpra í vasa skattborgara undir yfir- varpi aðstoðar við fólk á olíu- kyndingarsvæðunum. Slíkt á ekkert skylt við byggðastefnu, en er hins vegar til þess fallið að kasta rýrð á starf þeirra mörgu er hafa reynt að bæta kjör og aðstæður þeirra er í hinum dreifðari byggðum búa. Hráskinnaleikur Aukin atvinnutækifæri ATVINNA Vélvirkinn s/f óskar aö ráöa skrifstofu- mann. Þarf aö geta unnið sjálfstætt. Viljum einnig ráöa járniönaöarmenn. Upplýsingar gefur Víðir í síma 7348 og 7272. Vélvirkinn s/f Bolungarvík Skákmeistarar á ferð Framlwlcl af bls. I bændur eftir 3fr af þeirri launa- hækkun. sem þá átti að koma til framkvæmda eins og launastétt- irnar í landinu. í staðinn heitti rikisstjórnin sér fyrir ýmsum fé- lagsmálapðkkum fyrir launþega en bændur fengu fyrirheit um setningu laga um forfalla- og af- leysingaþjónustu. voru þau log samþykkt í maí s.l. Félagslegar aðgerðir til hagsbóta fyrir laun- þega munu þegar fyrir nokkru komnar til framkvæmda en for- fallaþjónustan er ekki enn tekin til starfa. Afleysingamennirnir verða starfsmenn búnaðarsamband- anna. hins vegar skal ríkissjóður samkv. lögum leggja fram fé til að greiða föst mánaðarlaun fyrir 40 st. vinnuviku. Viðkomnandi bóndi greiðir ferðakostnað og yf- irvinnu og skaffar fæði og hús- næði. Greiðsla ríkisins er ein- göngu bundin forfallavinnu vegna veikinda bænda. afleys- ingavinnu vegna orlofs verða bændur sjálfir að borga. Útgjöld ríkissjóðs verða um 290 millj. kr. miðað við verðlag I. mars s.l. og 60 stöðugildi eins og leyfilegt er aö hámarki samkv. lögunum. Þessi kostnaður ríkis- sjóðs verður þvi um 65.900 kr. á hvern bónda i landinu á núver- andi verðlagi. Til samanburðar má geta þess að launahækku.n sú sem bændur afsöluöu sér l. des. I978 nam 181.000 kr. að meöal- tali á hvern bónda. sem neytend- ur heföu annars orðið að greiða i hærra verðlagi búvara. Á launaliö verðlagsgrundvallarins nú næmi 3'í hækkun 300.000 kr. Útgjöld ríkissjóðs til forfallaþjónustunnar verða þvi miklu lægri fjárhæð en bændur landsins hafa gefiö eftir af launum sínum i þessu sam- bandi. Lögin um forfalla- og afleys- ingaþjónustuna eiga að koma til framkvæmda á þessu ári. í nýút- komnu fjárlagafrumvarpi rnun gert ráð fyrir 46 millj. kr. framlagi til starfseminnar eða sem nægir fyrir árslaunum u.þ.b. I0 slarfs- manna eða sjötta hlut þess sem lofað hefir veriö. Engilbert Ingvarsson Minning - HJÁLMAR Framlialtl af bls. 4 hallað þó að við segjum að hjónin Sigríður Ágústsdóttir og Gunnar Þórðarson hafi reynsl þeim ein- stakir vinir eða öllu heldur sem u m h yggj usam i r foreId rar. Margrét og Hjálmar eignuöust fjögur börn: Ingveldur Lilja. fædd 10.5.66. Sverrir Halldór f. 6.9. 69.. Petrina Guðrún f. 28.5. 78. Klarti Berg- lind f. 4.9. 79. Margrét á af fyrra hjónabandi soninn Einar Steins- son f. 3.4. 63. Við biöjum þann sem öllu ræð- ur að styrkja eiginkonu og börnin ungu i þeirra miklu sorg. Endurminningar um góðan dreng og vissa um lífiö eflir dauð- an munu lina sárustu þjáningar. Tryggoröur, trúnað festum, til ódugnaðar hvergi brá, ei var tál auðnu-hresstum, eður lausmælgi fundin hjá, einlægur út af hjarta, ásthugull vinum þó, siðgæðisblómann bjarta, bar víst, en ekki dró, þroskaði dygðum þanninn, þægur sitt unga líf, framleiddi fjörs um ranninn, fast við þá sögu ég blíf. Úr Þorláksveri. Við sendum fjölskyldu Pélurs V. Jóhannssonar skipstjóra og fjölskyldum sjómannanna allra. sem fórust við ísafjarðardjúp þennan sorgardag okkar innileg- ustu sanuiöarkveöjur. Sigrún og Kári. Tveir stórmeistarar hafa látið gamminn geisa við skákborðin í Bolungarvík, undanfarið. Það eru þeir Jón L. Árnason og Walter Browne, frá Bandaríkjunum, Báðir uðru þeir kumpánar sigursælir. Jón tefldi á 24 borðum. Vtmn hann I9 skákir og gerði fimm jafnlefli. Browne. lefldi hins vegar á 40 borðum. og sigraði í 37 þeirra. Tveir Bolvíkingar. þeir Daði Ciuðmundsson og Ciuðmundur Ciuðfinnsson voru honum of- jarlar og Ciuömundur F.inars- son gerði jafntefli við hann. Browne lagði slund á fleira en skáklisl í Bolungarvík. Á- saml bolviskum Lions - mönn- um og Einari S. Eintirssyni. formanni skáksambands ís- lands. gæddi liann sér á Ijúf- fengum sjávarréttum á kútt- magakvöldi. sem Lions klúbb- urinn efnir til árlega. Er það skoöum margra Bolvíkinga að kjarnarík sjávarfæðan luifi aukið skákmeistaranum mjög þrólt við skákhoröiö. Eins og að jafnaöi. er mikið líf í skákinni i Bolungarvik. .lólahraðskákmót drengja var háð á milli jóla og nýárs. Sig- urvegari varð Kristján Heiðar Pálsson. en næstir honum komu þeir Kagnar Sæbjörns- son og Magnús Arnórsson. Hraðskákmól fór fram i des- ember. Var teflt eftir Monrad kerfi. luiælftíma skákir. Sigur- vegari varð Daöi Guðmunds- son. AÐALFUNDUR Sæfara, félags sportbátaeigenda á ísafirði, verður haldinn í Sjómanna- stofunni á ísafirði sunnudaginn 13. apríl 1980 kl. 13:30 FUNDAREFNI: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Skipulag sumarstarfsins 3. Önnur mál Félagar eru hvattir til aö mæta og vinsamlegast aö greiöa félagsgjöldin fyrir áriö 1979 sem allra fyrst. <ít iórnin

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.