Vesturland - 28.03.1980, Qupperneq 3
3
laus vinna. ósérhlífni og um-
hyggja fyrir hcimili og fjölskyldu.
Pétur Jóhannsson var hávaöalaus
maður. hógvær og dagfarsprúðui
og lagði cngum nianni illt til. I
vinahópi á góðri stund brá hann
þó gjarnan á glaðværð og glens
og margar ánægjulcgar minning-
ar á cg. scm þessar línur skrifa um
notalcgl rabb að kvöldinu. þcgar
Pétur var kominn i land af sjón-
um. um mcnn og málefni. sjó-
mcnnsku og aflabrögð og sitthvað
fleira. er á döfinni var.
Þau Pétur og Sigriður eignuð-
ust fjögur falleg og mannvænlcg
börn. Þau cru: Páll Ægir 21 árs
við nám í Stýrimannaskóla ís-
lands. mikill efnispiltur. mcð hug-
ann allan við sjó og sjömennsku.
Hann var ckki hár i loftinu. þcgar
hann hóf róðra með pabba sínum
á Vísi. Hin þrjú yngri í föðurhús-
um eru: Kristín 15 ára. Hannes
Sigurður bráðum 10 ára. og svo
litli Pétur Valgarð 5 ára. Pétur átti
auk þcss einn son. áður cn hann
kvæntist. Guöberg 27 ára. scm
búsettur er á Tálknafirði.
Ég vcit að Sigríður hefur tckið
þessu þunga áfalli cins og hctja.
og víst á hún dýran auð í garði.
þar scm cr barnahópurinn hcnn-
ar. sem nú nýtur styrks og hugg-
unar undir verndarvæng kær-
leiksríkrar móður þcssa sorgar-
daga. Ástríkir foreldrar hennar
standa þeim öllum við hlið. sem
og annað frændlið og vinir á
Bíldudal. í svo litlu byggðarlagi á
hvert mannsbarn hlutdeild í sorg
og söknuði ástvina hina tvcggja
ágætismanna. sem nú cr séö á
bak.
Ég og fjölskylda mín vottum
Sigriði vinkonu minni og hennar
fólki öllu okkar innilcgustu sam-
úð og þökk fyrir elskulega vináttu
á liðnum árum. Einnig Margréti
Einarsdóllur. konu Hjálmars Ein-
arssonar og ungu börnunum
hennar fjórum.
Sómamanninum Sigurði Ciísla-
syni frá Selárdal. hcimilisvini
þeirra Sigriöar og Péturs. scm
búið hefur hjá þcim undanfarin
ár að Dalbraut 18. scndi ég cinnig
einlægar samúðarkvcðjur. vcgna
andláts Cicsts bróður hans. cr
fórst i bifreiöaslysi á Hálfdáni af
völdum mannskaðaveðursins.
sem varð sjómönnunum sex að
grandi.
Góöur Guö veili ástvinum
þeirra öldum huggun og styrk i
sorg þcirra. kjark til að liorfa
vondjörf fram á veginn mól
hækkandi sól. til vorsins i nánd.
Sigurlaug Bjarnadóttir
frá Vigur.
Laus staða
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra
á skattstofu Vestfjarðaumdæmis. Skrif-
leg umsókn sendist undirrituðum fyrir
10. apríl n.k.
ísafirði 14. mars 1980
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi
Bifreiðin í 1053
Audi 100 G.T. árgerð 1975 er til sölu.
Upplýsingar gefur
Halldór Pálsson
í síma 3607
Minning
PÉTUR
Framluiltl af bls. 4
Báturinn hans. Vísir. I6 tonna
eikarbátur. smiðaður hjá Marscl-
íusi I943. hafði rcynst honum
mikil happafleyta. og Pétur búinn
að endurbæta hann og endur-
Byggja. svo að allir vissu. að hann
gaf ekki hinum yngri eftir að
traustleika og sjófærni. í siðustu
sjóferð Péturs á Vísi mun hann
hafa átt varla meira cn slcinsnar
ófarið i höfn. þcgar yfir lauk í
•rylltum veðurham og sortaéli.
har mátti víst ckki sköpum renna.
I samtali nú á dögunum við
Sigríði. eftirlifandi konu Péturs.
rifjaði hún upp gamlan draum. er
hún hafði sagt mér fyrir nokkrum
hrum. cn ég var búin að gleyma.
Það var Kristínu. móður Péturs.
sem dreymdi þcnnan draum. þeg-
ar hún ung stúlka um tvítugt
stundaði nám hér syðra við
Kvennaskólann í Reykjavík.
Kristinu fannst hún stödd hcima
a Bildudal og sá þá allt í cinu
sortaský á himni. er bar yfir frá
suðvestri í átt til norðurfjalla. í
skýinu sá hún bregða fyrir tölunni
'980. Kristín sagöi tengdadóttur
sinni frá þessum draumi. þcgar
Sigríður gekk með yngsta son
þeirra Péturs. sem nú er fimm ára
°g ber nafn föður síns. Pétur
^algarð. cn Pétri eldra sögðu þær
a'drei drauminn. Kristín gerði sér
vissar hugmyndir um þýðingu
hessa draums. sem þó tcngdust
ekki á neinn hátt þeim mikla
sorgardegi 25. fcb. 1980. Með
heim mæðginum. Kristínu og
Bétri var alla líð mikið ástríki.
É'valdi hún löngum á sumrum
með fjölskyldu hans heima á
Bíldudal. eftir h ún fluttist búferl-
um ti| Reykjavíkur árið 1971.
Kristín cr látin fyrir þremur ár-
um.
Pétur var mikill hamingjumað-
ur i sínu einkalífi. Árið I959. I0.
sept. gekk hann að eiga eftirlif-
andi eiginkonu sína. Sigríði Páls-
rdóttur. Hannessonar hrcppstjóra
a Bíldudal. af Vatnsfjarðarætt. og
konu hans Báru Kristjánsdóttur
frá Húsavík. af Þingeyskum ætt-
um. Sigríður er vel gefin mann-
koslakona og hjónaband þcirra
Péturs eins farsælt og hamingju-
nkt og best varö á kosið. svo að
har bar aldrei skugga á. Pétur var
einstakur heimilisfaðir og hau
hjonin samhent í bcsta lagi. cnda
heimilisbragur allur til fyrir-
myndar á hinu fallcga og hlýlega
heimili þeirra að Dalbraut I8 á
B'ldudal. Þar liggur að baki þrot-
Minning
Framlwld af hls. 4
ur i starfi sínu á sjónum. Það vita
allir scm liann þekklu. að liann
átti fáa sina líka hvað það snerti.
Enda gat ckki hjá þvi farið að
slíkum manni fyígdi mikil afla-
sæld i starfinu. Hann var ungur
að árum og við hann voru miklar
vonir tcngdar bæði af föður hans
og bróður. en þeir feðgar allir
hafa veriö miklir atorkumenn á
sviði rækjuverkunar og útgerð þar
aö lútandi. Haukur var nýbúinn
að festa kaup á stærri bát. sem
hann ætlaði raunar að vera byrj-
aður á við veiöarnar. en atvikin
höguöu því þannig til. að það
dróst fram yfir þann tíma. scm
ætlað var. Mcð Hauki i skiprúmi
var Daniel Jóhannsson. kornung-
ur og efnilegur sjómaður. scm
hafði í nokkur undanfarin ár vcr-
ið háscti á skuttogara héðan frá
ísafirði. cn fyrir rúmu hálfu ári
langaði hann að breyta lil og
starfa á smærri bátum um tíma.
Mjög vcl fór á mcð þeini Hauki
og Daníel cnda Danícl mjög dug-
lcgur sjómaður. sem fylgdi skip-
stjóra sinum fast eftir.
Mcð þcssum fáu minningar-
orðum. viljum viö þakka þcssum
félögum okkar fyrir samfylgdina
á liðnum árum. Við munum ávalt
minnast þeirra mcð söknuði.
Stórl skarð cr höggvið í raöir
okkar. Viö scndum eiginkonum.
börnum og forcldrum þcssara fé-
laga okkar innilcgar samúðar-
kveðjur og við biðjum Guð að
styrkja þau á þcssum döpru skiln-
aðartím um.
Þá sendum við cinnig innilegar
samúðarkvcöjur til fjölskyldna
Péturs V. Jóhannssonar. skip-
stjóra og Hjálmars Einarssonar.
scm fórust mcð rækjubátnum Visi
frá Bíldudal þennan sama dag.
Guð styrki ykkur öll.
Rækjusjómenn við
Isafjaröardjúp.
/-----------------------------------\
Aóalfundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 2. maí 1980, kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum
félagsins samkvæmt 15. grein sam-
þykktanna.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík, 25. til
30. apríl.
Stjórnin
EIMSKIP
yimmmm
\^J ean» swmaaam ðaáamaxmmmm
NÝ AFGREIÐSIA
TÁLKNAFIRÐI
AUKIN ÞJÓNUSTA
Landsbanki íslands, Bíldudal, hefur opnað
afgreiðslu á Tálknafirði. Afgreiðslan verður
opin fyrst um sinn á mánudögum og
föstudögum kl. 12.00 til 15.00. Sími 94-2579.
Afgreiðslan á Tálknafirði annast öll innlend
og erlend bankaviðskipti.
LANDSBANKINN
Banki alhxi landsmanna
JÓN FR. EINARSSON
Byggingaþjónustan Bolungarvík
Símar: 7351 og 7353
Bolvíkingar - nágrannar!
Gólfdúkar og gólfteppi í miklu úrvali
Einnig spónaplötur í mörgum gerðum
Allarbyggingavöruráeinumstað