Brautin


Brautin - 29.06.1928, Blaðsíða 4

Brautin - 29.06.1928, Blaðsíða 4
2 BRAUTI N gcKnjoooooocKSOoaaaoooooog BRAUTIN § kemur út á föstudögum. — O O Árgangurinn kostar 6,00 kr. Q O Einstök blöð kosta 15 aura. g Afgreiðslan verður fyrst um § sinn i verslun Gurmþóriinnar O Hallclórsdóttur & Co. Eim- O skipafélagshúsinu. — Simi 491. O O O oooooooooooooooooooooooo Silkibúðin Bankastræti 12. - Reykjavík. Selur flestar tegundir af garni, kvenfatnað og barnaföt, bæði til- búin og efni í þau, sem sendist eftir pöntunum gegn póstkröfum út um alt land. Heilsufræöi. _________________________ Nú ;'i tímum heyra menn svo mikið talað uin gildi mjólkur- innar, sem mikilvæga fæðuteg- und fyrir uppvaxandi kynslóð. A'ísindamenn hafa sannað hve þýðingarmikið það sé, að börn og alt ungviði fái nægilega mikla mjólk á uppvaxtarárum sínum; einnig hafa þeir sannað, að mjólkin eigi sinn mikilvæga þátt í þroska og vexti beina. Sem betur fer eru margir for- eldrar tem skilja þetta, en þó eru nokkrir svo kærulausir um börn, að þeir skifta sér ekkert af hvort þau bragða mjóllc eða ekki. í öðrum tilfellum eru lika börnin þannig gerð, að þau hafa hreint og beint viðbjóð á mjólkinni, en slík börn verða mæðurnar að fræða um það, að öll þeirra heilbrigði og vöxtur sé undir því kominn, hvort þau fáisl til að drekka mjólk eða ekki. SkóJi einn í Washington gerði fyrir skömnlu tilraun eina, mjög inerkilega, en þó svo einfalda, að öll börn skólans gætu fylgst með henni og haft full not af. Tilraunin var á þann hátt, að tekriar voru nokkrar rottur, á al- veg sama þroskaskeiði, og fædd- ar mismunandi. Nr. 1 á hveiti- brariði og vatni, nr. 2 fransk- brauði og sykri, nr. 3 fransk- brauði og kaffi, nr. 4 fransk- brauði og kjöti og nr. 5 fransk- brauði og mjólk; allar fengu þær að drekka eins mikið vatn og þær vildu. Eftir tveggja vikna tíma fengu börnin að sjá þær aftur, og mikill var munurinn á þeim. Rottur þær, sem fengið höfðu mjóík, sköruðu langt frarn úr hinum, þær voru stórar og holdugar, það stirndi á hár þeirra, og þær voru sprækar og hressar. Hinar voru allar að meira eða minna leyti illa út- lítandi og óþriflegar í alla staði. Þær, sem höfðu fengið kjötið, höfðu framstandandi augu, og litn út eins og þær væru með hitaveiki. Þær, sem höfðu feng- ið brauð og kaffi, höfðu yfir sjer svo mikinn óróa og voru mjög hræddar. í lok fyrstu viku voru rott- urnar vigtaðar og þá kom í ljós, að; Nr. 1 (brauð og vatn) höfðu þyngst um 2 gr. Nr. 2 (franskbrauð og sykur) höfðu Ijettst um 10,6 gr. Nr. 3 (franskbrauð og kaffi) höfðu ljettst um 11,2 gr. Nr. 4 (franskbrauð og kjöt) höfðu þyngst um 14,5 gr. Nr. 5 (franskbrauð og mjólk) höfðu þyngst um 31,2 gr. Þessi tafla sýnir greinilega muninn á gildi hinna mismun- andi fæðutegunda. En ennþá merkilegra þótti börnunum að skoða bein dýr- anna eftir að þau höfðu verið drepin. Munurinn á tönnum og beinum dýranna var svo áþreif- anlegur, að börnin voru ekki í hinum minsta vafa um ágæti mjólkurinnar fyrir myndun og þroska beinanna. Lærleggirnir voru t. d. mældir og þeir stystu voru 1,5 cm., en á mjólkurrott- unum 5 cm. Stystir voru legg- irnir á rottum þeim, sem lifað höfðu á brauði og vatni. A bein- um þeirra, sem lifað höfðu á sykri og kaffi, voru einkennileg litbrigði og tennur voru litlar og Ijótar í öllum nema þeim, sem höfðu fengið mjólk. Ljót- ust voru bein þeirra dýranna, sem fengið höfðu brauð og sykur. Þar voru ekki einungis Iitbrigðin, heldur voru öll liða- mót ófullkomin og liðaböndin léleg. — Börnunum varð það fyllilega ljóst hvilík eyðilegging það var fyrir þroska beinanna að borða sælgæti, þar sem þau sáu að bein dýranna, sem lifðu á vatni og brauði, voru þroskameiri en hinna, sem lifað höfðu á brauði og sykri. Beinagrindin á „mjólk- urrottunum" var sterk og vel þroskuð og tennurnar voru mjallahvítar. Hjá rottum þeim, sem lifað höfðu á kjöti, fundu menn töluverða fitukekki i kringum nýrun. Nú ættu ÖII börn, sem þetta heyra, að steinhætta sælgætis- átinu, sem ekkert gerir þeim nema ilt eitt, en kaupa og drekka heldur mjólk í staðinn og grundvalla þar með undir- stöðuna undir góðri heilsu, og þar með líkamlegri og sálarlegri vellíðan. Höfum ávalt fyrirliggjandi mikið árval af alskonar vefn- aðarvöru. Tilbúnum fatnaði fyrir konur og karla o. fl, o. fl. Vörur sendar um alt land gegn póstkröfu. Marteinn Einarsson & Co. Brautin. Brautir liggja bæja milli, bera menn og hl.uti um storð. Brautir liggja mann frá manni; mentabraut er gullvægt orð. Brautir ganga maður, meyja, mætast þau á ástarslóð. Æskubrautin yndislega á sér fagran vonar-óð. Hugans braut er hraðast farin, hefta þar ei nokkur bönd. Þýtur hana skatna skarinn, skundar fram í dulin lönd. Löndin drauma, löndin heima, lönd sem byggir ættlands þjóð. Skorar hún á alla — alla ennþá meiri dug og móð. Brautir þurfum margar, margar, menning tengja land og þjóð. Járnbraut, sporbraut — orku og eining okkur syngja fossins ljóð. Tengjum krafta fossa og fljóða, fáum menn og börn í lið. Munum ætíð orðið þetta: allir samfin stöndum við. (Einar Björnsson). Símn.: Sportvöruhús. — Box 384. ZEISS-IKON: } myndavélar ( filmur. Sjónaukar, loftvogir, sólargleraugu. — SUotvopn og skotfæri, alskonar lax- og silungsveiðitæki. MEST ÚRVAL. LÆGST VERÐ. I_jÁKARL, harðfiskur, riklingur, og skorið neftóbak, mælir með sér sjálft, eins og reyndar all- ar aðrar vörur á Laugaveg 26 hjá Kr.J. Hagbarð. Fatabúðin Heilsar ykkur blaðið Brautin, berast vill um strönd og sveit. Upp til dala, út til sjávar, inn í séshvern heiinareit. Biðjufn henni brautargengis, bera vill hún friðarorð. Mæla ei flátt og fordild hafna, farast henni þannig orð: hefir ávalt fyrirliggj- andi stærst, best og ódýrast úrval af „Hugans dug ef höfuni allir halda munum sigurbraut. Göngum hana guðs í nafni, göngum jafnt í sæld og þraut. Vinnum landi og lýð til heilla, leggjum pund í vogarskál. Sýngirninnar svæfum eldinn, séum hrein og laus við tál“. x MALTOL Dajerskt O L PILSNER Best. Ódýrast. INNLENT Ka rlmannafötum. í næsta blaði Brautarinnar byrjar neðanmálsaga, sem heitir: Guð hennar mömmu eftir Elísabet Beskow, sænskan höfund, sem mörgum er kunn fyrir sínar ágætu sögur Præsten í Kalunborg og Hans Hustru. Er þetta 3. bókin. Mun Brautin hjer eftir flytja sögur sinar í hinu gamla góða formi, svo hægt sé að mynda úr því bók, sem kaupandinn getur klipt út og átt, þó hann eyðileggi annað. SMÆLKI. Kennarinn: Hver var fyrsti inaðurinn? Jón lilli: Ingólfur Arnarson. Kennarinn: Nei, Jón litli, Adam hjet hann. Jón litli: Já, ef útlendingar eru taldir með. Prentsmiðian Gutenberg.

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.