Brautin - 11.10.1929, Blaðsíða 3

Brautin - 11.10.1929, Blaðsíða 3
B R A U T I N 3 öooaoo«oeooo«oooaö«oooog BRAUTIN Ö kemur út á föstudögum. Ö Mánaðargjald fyrir fasta á- skrifendur er 50 aura; einstök blöð kosta 15 aura. AFGREIÐSLA blaðsins er á Laugaveg 20 A. — Slmi 571. -'Opin kl. 6—7 daglega. O » g a » ö O Ö » 5 « öööööööööoööaoööööööööoö fengið nokkra eflirgjöf á skuld- um sínum. Þeir bafa reynt af öllum kröftum að greiða okur- vexlina og aldrei möglað neitt. Nú á að þyngja álögur þeirra stórum. Skuldirnar hrúgast upp. Þeir hælta að geta staðið í skii- um með vaxtagreiðslur, og loks verða þeir að gefast upp og missa það litla, sem þeir gátu talið sína eign. Sama er með fátæka fólkið í bæjunum. Skuldir þess verða þyngri og þyngri. Afkoman erf- iðari og erfiðari, og loks verður það lika að leggja árar í bát. Bölvun okursins þroskast best í skjóli bráðónýtrar og þekking- arlausrar fjármálastiórnar. fenlmin Kjöt og Fistsr. Baldursgötu. — Sími 828. NÝTT KJÖT í heilum kroppum og smásölu. Góða saltkjötið er komið; selt í heilum tunnum og smásölu. MÖR. — SVIÐ. — LIFUR 09 HJÖRTU. W Skaga-kartöflur og rófur af Álftanesi. §amtök lækua gegn rtónismálaráðlierra. Læknar hafa nokkuð lengi verið óánægðir með, hvernig veitingavaldið hagar sér með veitingu læknaeuibætta; en þó hefir þessi óánægja enn aukist stórum, eftir að núverandi dómsmálaráðherra tókvið stjórn. þykir mörgum læknum keyra svo úr hófi fram ranglæti og hlutdrægni við skipun læknis- embætta, að lílt sé viö unandi. Til þess að reyna að bætu úr þessu, hafa læknar nýlega gert með sér sterk og öflug samtök og munu um 9/io allra lækna á landinu hafa samþykt þátttöku í þeim. Mannborg og Metzner H§, Harmonium fyrirliggjandi. 11 ÍSkoÖiÖ þau áður l|Í m kaup annarstaðar. en þér festið STURLAUGUR JONSSON & Co. Hafnarstræti 9. 2. hæð. S í m i 1 8 8 0. Aðferð sú, sem læknar hyggja að nota, er þessi: Gnginn læknir má framar senda umsókn sina um laust embætti eða stöðu, beint til stjórnarráðsins, eins og hingað til hefir tíðkast, heldur skulu allar umsóknir sendast beint lil Læknafjelagsins. Sérstök 3ja manna nefnd (einn fyrir yngri lækna, einn fyrir þá eldri, og einn af háskólakennurum lækna- deildarinnar) rannsakar allar umsóknir nákvæmlega, og eftir sérstökum reglum, sem læknarnir hafa komið sér saman um, velur nefndin einn eða tvo lækna, sem hún álítur að rétt eigi á að fá embættið, og þeirra umsóknir einar fara svo áfram ti! stjórnarráðsins, aðrar ekki. Hefir þá dómsmála- ráðberra engan annan úrkost en veita þeim læknisembættið, sem Læknafjelagið leyfir að sækja, eða fær að eins að velja milli 2ja, ef það leyfir 2 að sækja. þessar ráðstafanir eru óvana- legar og vafasamt hvort þær eru heppilegar, enda mun nauð- syn ein hafa knúð lækna vora til slíkra harðvltugra ráðstaf- ana gegn veitingarvaldinu. Væri betur að báöir aðilar, ráðherra og Læknafélagið, fyndu góðar og réttlátar reglur fyrir veit- ingu í embætti, reglur, sem báðir gætu virt og komið sér saman um, ea forðuðust sem mest að grfpa til örþrifaráða, x sem auka stifni og audúð þeirra, sem saman eiga að vinna, og eru auk þess vitrum mönnum tæplega samboðin. 225 En er Veru nú bar að, með hrygð og kvíða í huga, hrós- aði hún happi yfir þvi, að Elsa var í skóla við kenslu, og gat því náð tali af móður Vilhelms i einrúmi. Hún sagði henni umsvifalaust frá öllu, er hún vissi um, að fyrir hefði komið, og hún skýrði henni frá því i von um huggun og hjálp, þvi að frú Teresa var einkar vel fallin til að veila slíka aðstoð, það vissi Vera, þar sem ekkert fékk raskað jafnvægi sálar lxennar, en var ávalt bjartsýn og vongóð. En jafnvel henni varð svo mikið um það, er Vera skýrði henni frá, að hana setti hljóða, sat þögul og náföl. Þegar Vera sá það, varð hún svo hrygg í huga, að henni lá við örvinglan. — Nótlin verður myrkari en nokkru sinni fyr, amma góð. Það rofar ekki fyrir degi. — Oft er dimmast rétt á undan dagrenningu; veistu ekki það? Og drottin. stendur á ströndinni, þótt vér fáum eigi eygt hann fyrir myrkrinu. En Vera gat eklti notið huggunar þessara orða; það sem þau táknuðu var ekki nógu áþreifanlegt til að lægja óróann i sál hennar. Hvað ætli Vilhelm segi um það, að Allan skuli vera far- inn til afa síns? Ælli honum svíði það ekki enn sárara, en sjálfur burtreksturinn? —. Efalaust hefir það áhrif á hann, játaði frú Gripenstam. En á hvern hátt getum við ekki giskað á. Þetta getur alt snúist til góðs. Við vitum svo lítið. Eg trúi á handleiðslu Guð hennar mðmmu. 222 ur næst lífi minu, ef hann nær til min, þegar hann fær að vila það. Hjálpaðu mér því til að komast undan. — Rekinn! Fyrir hvað? stundi hún upp, ytirkomin af hrygð. — Það er langt mál. Frá því get eg ekki sagt nú. Kom þú, svo förum við til ömmn. Hann togaði hana með sér, og hún fylgdist með honum eins og í leiðslu. Henni var ómögulegt að hugsa skýrt, gat enga ákvörðun tekið, ekki vakið vilja sinn til mótstöðu. Allan sá, að honum hafði ekki skjátlast mikið; hún væri utan við sig, og hragð sitt mundi hepnast. Á götunni kallaði Allan á leiguvagn, hjálpaði móður sinni upp í hann, nefndi nafnið á gistihúsin.u þar sem amma hans hélt til. Vera einblíndi ráðalaus á hið hörundsdökka, friða and- lit sonar síns, sem var kafrjótt af einheitni örvæntingar- innar. — Hvað hefir þú í hyggju, Allan? — Eg ætla með ömmu tii Falsta, svaraði hann þcgar. Hún lofar með efalaust með sér. Heldurðu ekki það, mamma? Eg er eftirlætið hennar, og skal, svei mér, sjá um, að eg verði líka eftirlæti afa. Hjá þeim getur faðir minn ekki náð til min. Vera vissi ekki, hverju svara skyldi, svo gagntekin var hún af hinni kænlegu dirfsku Allans, og var ráðalaus gagn- varf einbeitni hans. Þegar þau komu i gistihúsið, varð Allan fyrir svörum. I fáum orðum sagði hann ömmu sinni hreint og beint, að

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.