Bæjarpósturinn - 25.07.1924, Síða 2
BÆJARPÓSTURINN
íekist að framleiða gull úr kvika-
silfri. Framleiðslan kostar 20 mil-
jónir gullmörk á hvert kilógramm.
Hefir þetta því enga hagsmuna-
lega þýðingu, en aftur á móti
stórkostlega fyrir frumeindakenn-
inguna.
Frá þingi Norömanna.
Bannlagafrumvarp norsku stjórn-
arinnar var felt í óöalsþinginu á
miðvikudaginn með 63 atkvæðum
gegn 49, og búist við líkum af-
drifum f lögþinginu.
Samv nna í stjórnmálum verður
reynd milli hægri og vinstri flokk-
anna; mistakist hún, segir Bergs-
stjórnin af sér.
Rvík 21/t. FB.
Lundúnafundurinn.
Bandaríkjamenn og Bretar setja
skilyrði fyair lánveitingum til Þjóð-
verja, þau, að sérfræðingatillög-
urnar verði samþyktar í öllum at-
riðum.
Þjódverjar úndirbúa löggjöf, nauð-
synlega til framkvæmda tillaganna.
Rússarvígbúa Eystrasaltsflotann.
Vélbáturinn Shanghai kom hing-
að í morgun frá Bergen á leið til
Grænlands og Ameriku.
Síldveiðin fer vaxandi, hæstur
afli hefir oröið 900 mál.
Rvík 22/7. FB.
Lundúnafundurinn.
Nefndarálit hefir komið fram um
vanrækslur Þjóðverja í uppfyllingu
skaðabótamálsins, og um skifting
skaðabótafjár miili bandamanna,
og bæði ágreiningslaus. Frakkar
hafa samþykt að Bandaríkjamaður
taki í sínar hendur yfirstjórn skaða-
bótagreiðslanna. En samkomulag
hefir ekki fengist um yfirráðin í
Ruhrhéraðinu.
Stjórnin í Grikklandi
hefir fengið vantraustsyfirlýsingu.
Sá kvað heita Kaphandaris, sem
myndar þar nýja stjórn.
Togarinn Earl Kitchener
fékk 10,000 gullkróna sekt og afl-
inn seldist fyrir 10,500 krónur.
Rvík 23/7. FB.
Bretar og Rússar.
Samninganefndir Breta og Rússa
hafa gert verzlunarsamning f Lond-
on, sem Bretar telja sér með öllu
gagnslausan. Er Rússum gefin
heimild til að hefja 10 miljóna
punda inneign, sem keisarastjórn-
in átti í enskum bönkum. ^
Norðmenn og kjöttollurinn.
Bændaflokkurinn hefir gert fyr-
irspurn í þinginu um kjöttolls-
samningana. Eru bændur og út-
gerðarmenn óánægðir mjög yfir
úrslitunum. Holmbo verzlunarráð-
herra svaraði og varði samninga-
gerðirnar og samninginn.
HeimsflugiÖ.
10 herskip tii Reykjavíkur.
10 herskip frá Bandaríkjunum
eru væntanleg til Reykjavíkur um
mánuðamótin í tilefni af heims-
fluginu.
Norska hafrannsóknarskipiö
„Michael Sars“ kom í gær. Er
það við hvalgöngurannsóknir og
fer til Vestur-Grænlands.
Prentsmiöja Austurlands