Bæjarpósturinn - 21.11.1924, Page 1
gxmxxxtmxx
8 Fréttir frá Verð 15 aa. \
| Hænl oÆJAKrlij 1UKINN eintakið { orerximnanrTrr
ÚTGEFANDI: SI6. ARNGRÍHSSON
1. árg.
Seyöisfiröi, 21. nóv. 1924.
Símfregnir.
Rvík 17/n. FB.
Ráðstefna f Moskva
hófst síðast liðinn föstudag um
verzlunarsamning Rússa og Þjóð-
verja.
30 þúsunda sekt.
Togarinn Earl Kitchener var
dæmdur í 30 þúsund króna sekt
Og skipstjórinn í 3 mánaða ein-
fait fangelsi. Skaut hann málinu
til hæstaréttar.
Rvík 18/n. FB.
Áfengið í íslandinu
er alt fundið.
Terneskær er á kafi í sjó.
Strandmennirmr eru á leiðinni
hingað.
Geir reynir að ná Sonja út
í Vestmannaeyjum á næsla stór-
straumsflóði. Hún hefir kastast
lengra upp.
Botnvörpungarnir afla vel.
Sterlingspundið er nú 28,40.
Rvík 10/n. FB.
Enski botnvörpungurinn Wal-
dorff fékk 4000 króna sekt fyrir
ólöglegan veiðarfæraumbúnað.
Vínsmyglunin.
Hásetarnir af íslandinu, er sett-
ir voru í gæzluvarðhald, hafa ját-
ast eigendur áfeng sins.
15. tbl.
Tollsvik?
Sögusagnir ganga um það, að
komist hafi upp tollsvik, þegar al-
menria vöruskoðunin fór fram í
íslandinu, en ekkert opinbert enn.
Einn vínsali til í Rvík fékk 1000
kr. sekt.
Bretar
tilkynna, að þeir þoli engan und-
irróður af hálfu Rússa í brezkum
löndum.
Sorglegt slys.
3 menn á beztaaldri drukna.
Eftir að Goðafoss var farinn
frá Þórshöfn, að kvöldi hins 18.
þessa mánaðar, t'óru sex ntenn á
litlum báti til þess, að leggja við
festar vélbát, sem notaður hafði
verið við uppskipunina. Skamtfrá
landi, á að gizka 20 faðma, skrik-
aði einum mannanna fótur í bátn-
um, svo honum hvolfdi. Menn í
landi voru ekki úti við, en hijóð
heyrðist frá bátsmönnum eróhapp-
ið vildi til. Hlupu þeir þá þegar til
og hrundu fari á flot, og tókst að
bjarga þremur mannanna. 3 drukn-
uöu, Sigurður Jónsson, sonur
Jóns'Guðmundssonar kaupmanns
á Skálum á Langanesi, mikill