Bæjarpósturinn - 28.02.1927, Qupperneq 1
: J'réttif frá I
H Æ N I
BÆJARPÖSTURINN
ÚT6EFANDI: SIG. ARNGRÍMSSON
jVerð 15 a.
einlakið..
3. árg.
Seyðisfirði, 28. febrúar 1927.
1. tölubl.
Þingtíðindi.
(Símskeyti frá FB.)
13/2. Eins og venja er til við
fyrstu umræðu fjárlaganna flutti
fjármálaráðherra aðalræðuna. Qaf
hann mjðg ítailegt og stórfróð-
legt yfirlit yfir fjárhaginn og gerði
grein fyrir fjárhagsstefnunni í fjár-
lagafrumvarpinu. Sagði hann tekj-
ur og gjöld ríkissjóðs 1926 hafa
sem næst staðist á, tekjurnar á
árinu hefðu orðið 12^2 miljón og
farið 21/2 miljón fram úr áætlun.
Skýrði hann frá, að raunveruleg-
ar tekjur af tóbaki hefðu orðið 410
þÚS. fram úr áætlun, og að verð-
tollur hefði farið 492 þús. fram
úr áætlun. í fjárlögunum fyrir 1926
var tekjuhalli áætlaður 473 þús.,
en tekist hafði að afsíýra honum.
Ennfremur hafði verið unt aö
greiða kæliskipsframlagið af tekj-
um ársins. í gjöldum ársins er
einnig innifalin 1 miljón króna
afborgun af skuldum ríkissjóðs.
Ráðherrann sagði, að þótt fjár-
hagsafkoman, hefði verið eftir öll-
um vonum 1926, þá feli hún í sér
alvarlegar áminningar um að fara
varlega á fjármálasviðinu. Qengi
íslenzku krónunnar hvað hann
hafa verið stöðugt alt árið 81.6%.
Til 5. febrúar höfðu, sagði hann,
verið veitt úr 5. og 6. flokki veð-
deildar alls 487 lán, að upphæð
3,544,700 kr., eftirspurnin verið
mikil og langt frá lokið að full-
nægja henni. Úr Ræktunarsjóði
höfðu verið veitt á árinu 281 lán,
að upphæð samtals 876,450 kr.,
en síðan sjóðuriun tók til starfa
1. okt. 1925, hefði nokkuð yfir 1
miljón verið lánað úr honum.
Tryggvi pórhallsson ber fram
frumvarp um afnám kennarastóls
í klassiskum fræðum við Háskól-
ann.
14/2. Héðinn V'aldemarsson ber
fram frv. um að bæjarstjórnum í
kaupstöðum og sveitastjórnum í
kauptúnum, er hafa yfir 300 íbúa,
sé skylt að semja atvinnuleysis-
skýrslur í febrúar- tnaí- ágúst- og
nóvember-byrjun árlega, og senda
Hagstofunni.
15/2. Héðinn Valdemarsson ber
fram frumv. til stjórnskipunarlaga
og breytingar á stjórnarskrá þann-
ig, að Alþingi sitji 25 þjóðkjörnir
þingmenn kosnir hlutbundnum
kosningurn um land alt, er sitji í
einni málstofu, kosnir til 4 ára, en
tölunni megi breyta með lögum.
Varamenn séu jafnmargir sem
þingmenn. Kosningarétt hafi allir
karlar og konur, 21 árs og eldri.
i196 39