Bækur og höfundar - 01.09.1938, Blaðsíða 3

Bækur og höfundar - 01.09.1938, Blaðsíða 3
BÆKUR OO HÖFUNDAR 3 Hrímhvíta móðir 1. Mér þykir gamari að lesa ljóð, en opna flestar nýjar kvæðabækur með nokkurum kvíða. Það eru svo margir, sem yrkja á þessu landi, og fjöldinn allur heldur, að þeir geri það með þeim ágætum, að fáum sé unnt að leysa viðfangsefnin betur af hendi, og allt of mörgum virðist það hrein og bein ástríða að koma ljóðum sínum út í bókarfomú. Árangur þessa verður sá, að á markaðinn kemur fjöldi af lélegum Ijóðabókunr, sem valda öllum, er kaupa þær og lesa, sárum vonbrigðum, svo að þeir verða varkárir í því að fleygja peningum út fyrir þessa tegund skáldskaparrita. Og það kemtir síðan niður að einhverju leyti á góðum kvæðabókum. 2. Það komst enginn kvíði að, þegar mér barst í hendur Hrímhvíta móðir eftir Jóhann- es úr Kötlum. Ég hlakkaði til að lesa bókina, því að eg vissi, að höfundurinn er prýði- 'legur ljóðasiniður og ekki vanur að kasta höndunum til þess, sem hann gerir, og hef- ur alltaf verið að vaxa með hverri nýrri kvæðabók, sem hann hefur látið frá sér fara. Hagmælskan er honum í blóðið borin og hann hefur haft vit og vil'ja til þess að aga sjálfan sig og sýna þolinmæði og natni við verk sitt. Og Iestur þessa söguljóðs olli engum vonbrigðum. Þetta er eflaust erfiðasta viðfangsefnið, sem Jóhannes úr Kötlum hefur glímt við, því að það er mikiu auðveldara að yrkja eitt og eitt kvæði um sérstakt efni, heldur en að taka á þann hátt, sem hann gjörir, sögu Jandsins og yrkja hana í stórum dráttum í samfelldu söguljóði. Að vísu er það aug- Jióst, að öll kvæðin eru ekki jafngóð, en fau eru ölf vel ort, þótt finna megi ef til vill að einstaka erindi. En hvenær er slíklt *kki hægt, og hvenær er það á rökum reist? Allir íslenzkir ljóðavinir ættu að eiga bókina. Dale Carnegie: How to Win Friends and Influence People Fyrir skömmu kom út í Ameríku bók sú. er að ofan greinir. Höfundurinn er 46 ára gamall, og hefur bókin selzt með þeim ein- dæmum, að fullyrt er, að biblían ein star.di þar framar. Og um hvað fjallar svo þessi bók? Eins og titillinn ber með sér, gefur hún leiðbeiningar um, hvernig höfundur hennar álítur, að menn eigi að umgangast aðra, ef þeir óska eftir að afla sér vina og verða áhrifaríkir í því, setn þeir taka sér fyrir hendur. En Dale Carnegie hefur um langt árabil liaft það að atvinnu að leiðbeina fólki á þessu sviði í stofnun einni, er ber nafn hans. Hafa sunúr þekktustu athafnainenn í Bandaríkjunum setið á skólabekk hjá höf- undinum og þakka leiðbeiningum hans að verulegu leyti gengi sitt í lífinu. Sólstafir Það er ekkert óalgengt, að íslenzkir bænd- ur yrki ljóð og að þeir gefi þau út í bókar- formi, en kvæði þessa önfirzka bónda eru með öðrum svip en maður á að venjast í íslenzkri ljóðagerð. Og þó að ekki væri nema vegna þessarar staðreyndar, er næg ástæða til þess að bjóða hann velkominn á mark- aðinn með þessa fyrstu bók sína. Auðvitað væri þetta út í loftið sag4, ef ekki fylgdi efnisvalinu leikni í formi og með- ferð málsins. En Guðmundur Ingi yrkir vel og kemur með ný viðfangsefni, svo að þess vegna er bók hans góður fengur. Hann lof- syngur hina máttugu mold, því að hann er maður, sein gekk út að sá og vatdi sér lögnnótt, þegar vor lá yfir dalnum, og sáði höfírum í inijúka mold í margfaldrar uppskeru von, og hann er ánægður með líf sitt og starf, þótt hann sé öreiginn Guðmundur Ingi í . . önfirzkur bóndasveinn. Hann yrkir um hvíta drykkinn — mjólkina — grænkál og fiárhúsailm og hvítar gimbrar og lirúta og rothey, bygg og salat.

x

Bækur og höfundar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bækur og höfundar
https://timarit.is/publication/649

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.