1. febrúar - 01.02.1936, Blaðsíða 2

1. febrúar - 01.02.1936, Blaðsíða 2
2 1. FEBRÚAR 1. febrúar og 1. febrúar er í dag. Víða um land minnast bindindismenn þessa dags. Minnast þess að eitt ár er Iiðið síðan sala sterkra drykkja hófst í landinu. Minnast þess, að hörmungar þær, sem áfengisnautn veldur, hefir komið enn greinilegar í ljós á síðastliðnu ári, en nokkru sinni fyr. Minnast þess, að íslendingar, á síðaftliðnu ári, keyptu áfengi fyrir mun meira fé en á fyrri árum. Bindindismenn minnast ógna áfengisins, sem steðj- að hafa meir og meir að síðastl. ár en dæmi eru til, með því að efla félagsskap sinn, efla samtökin gegn áfengisbölinu. Siglfirzkir bind- indismenn vilja gjöra sitt til efling ar bindindishreyfingunni, til efling- ar almennrar velmegunar, til efl- ingar nýs og betra lífs. í því skyni er blað þetta, 1. febrúar, gefið út og almennur funcíur haldinn um bindindismálið í dag í Bíó kl. 5. Á. síðasta þingi Sambands bind- indisfélaga í skólum, var samþykkt að skora á öll félög innan sam- bandsins og á alla bindindismenn á landinu, „að gjöra 1. febrúar að alþjóðlegum baráttudegi fyrir út- rýmingu áfengisins“. Eg vil nú í aambandi við þessa samþykkt stuttlega geta hér um atofnun og starf bindindisfélaga í skólum og samband það er þau stofnuðu og áður er greint frá. Haustið 1932 var stofnað í um straumum yfir landið, vín- flöskurnar eru taldar og krónurnar, í þúsundum og hundruðum þús- unda. sem inn koma fyrir þær, en hver telur tárin, sem falla vegna þessa vínflóðs og þeirrar bölvunar er af því leiðir? Pau telur enginn. — Pað er heldur ekki hægt, þau eru óteljandi. „íslands óhamingju verður allt að vopni" var einu sinni sagt. Sann- arlega fékk óhamingja íslands sitt skæðasta vopnlagtuppí hendurnar af þjóðinni sjálfri og löggjöfum hennar. Með þessu vopni mun hún vega að þjóninni og fella menn í hrönnum. Og hún mun ekki blíf« ast við að vega oft í sama kné- runn. Þjóðin lamast af víndrykkj. unni, sonur og dóttir drykkjumanns. ins verða veikari í lífsbaráttunni fyrir drykkjuskap föðursins, arfurinn til barnanna er hnignandi siðferði, minnkandi andlegur og líkamlegur þróttur, minnkandi mótstöðukraftur gegn skaðlegum áhrifum. Hryllir þig ekki við, sem lest þessar línur, ef þú ert þanaig á yegi staddur, að þú getir búist við að eftirláta börnum þínum slíkan arf, sem hér er lýst ? Fýsir þig ekki að fyrirbyggja að þau fái í skólum. Menntaskólanum í Reykjavík bind- indisfélag. Aðalhvatamaðurinn til félagsstofnunarinnar mun hafa ver* ið Helgi sál. Scheving úr Vest- mannaeyjum. Peasir ungu náms- menn í Reykjavík, unnendur bind- indismálsins, skrifuðu strax eftir félagsstófnunina ril allra framhalds- skóla í landinu og skýrðu þeim frá félagsstofnuninni og hugsjónum sínum, sem í stórum dráttum voru þessar: Peir sáu í anda hvern skól- ann á fætur öðrum stofna bindind- isfélög. Peir sáu alla, eða mestann hluta nemenda fylkja sér undir eitt merki, merki bindindismanna og vinna að sama takmarki. Takmark- inu: Breytum almenningsálitinu í áfengismálunum og rekum síðan Bakkus af höndum vorum. Peir sáu ennfremur nemendurna tvístr- ast úr skólunum, sáu þá koma út í l'fið sem bindindismenn. Sáu þá starfa, sáu þá hafa áhrif, sáu þá vinna sig nær og nær takmarkinu. Peir sáu að fordæmið var þegar gefið. Hugsjónir þessara manna hafa ræzt að þvi leyti, að skólar, hver á fætur öðrum, hafa nú stofnað með sér félög og skal fyrst telja þessa skóla í Reykjavík: Kennara- skólinn, Samvinnuskólinn og Gagn- fræðaskólarnir báðir. Síðan b*tt- ust í hópinn: Kvennaskólinn og Háskólinn. Flensborgarskólinn í Hafnarfirði stofnaði félag hjá sér þannig lagað veganesti frá þér er þau leggja út í lífið ? Og þótt þú sért ekki drykkjumaður og teljir þér og börnum þínum þessvegna enga hættu búna af þessum ástæð- um, villtu þá samt ekkí leggja fram krafta þina til þess að annara börn sleppi við þá óhamingju, er þau geta átt í vændum? Allir góðir íslendingar, menn og konur. Tökum höndum saman og bindumst heitum um að vinna af alefli móti áfengi og nautn þesi í landinu, Málefnið er þess vert að fyrir því sé barist. Hugsjónin, að útrýma öllu áfengi úr landinu, er einhver sú fegursta sem hægter að vinna fyrir. Verum samtaka um að vinna að þessu málefni, og umfram allt kapp- kostum að innræta hinum ungu og uppvaxandi réttan skilning á þessu mikla velferðarmáli þjóðarinnar. Peirra er framtíðin og þeirra er að fullkomna það, sem við nú erum að vinna að. Hannes Jónasson. Villa hefir slœðst inn í framanritaða grein. Fyr«ta Good-Templarastúkan hér 4 landl var stofnuð 10. jan. en ekkl 10. febr. og svo og Gagnfræðaskólarnir í þessum kaupstöðum : Siglufirði, ísa- firði, Vestmannneyjum og Nes- kaupstað. í Menntaskólanum á Akureyri var stofnað félag og er það nú orðið eitt fjölmennasta fé- lagið. Héraðsskólarnir létu og láta ekki sitt eftir liggja hvað snertir félagsstofnánir. í þeim skólum sem nú verða taldir hafa verið stofnuð félög. Skólarnir eru: að Laugarvatni, Núpi, Eiðum, Reykholri og Laug- um. Síðast en ekki sizt tel eg hið nýstofnaða félag meðal bændaefn- anna á Hvanneyri. Almenna gleði vakti það, þegar heyrðist um stofn- un bindindisfélags í Háskólanum, þessum skóla sem sjálfsagðastur var til forgöngu í þeirri hreifingu, sem vöknuð er í bindindismálum með- al nemenda í skólum. Sjálfsagðast- ur vegna tignar sinnar í röð menntastofnananna og sjálfsagðast- ur vegna þess að úr þessum skóla koma menn, sem líklegastir eru, vegna menntunar sinnar, að verða foringjar meðal þjóðarinnar. Bindindisfélögin í skólunum stofn- uðu í marz 1932 með sér samband er heitir Sambind bindindisfélaga í skólum. Aðeins 3 félög stóðu að þessari sambandsstofnun. Fyrsti forseti þess varð Helgi sál. Schev- ing og var hann það til dauða- dags. Nú eru í sambandinu 17 fé« lög og telur það um 1250 meðlimi. Frá sambandsstofnun hafa verið haldin 4 þing í Reykjavík og þar hafa mætt fulltrúar þeirra félaga, sem tækifæri höfðu til þess. Samband bindindisfélaga í skól- um hefir sent menn i kringum allt Iand í fyrirlestrarferðir um. bind- indismál. Ennfremur hefir það hald- ið uppi í Reykjavík hinum svo- kölluðu fræðslukvöldum. Eru þar fengnir til að halda fyrirlestra þekktir menn úr ýmsuin greinum, eru oft sýndar skuggamyndir í sam- bandi við fyrirlestrana eða sérstak- lega. Aðalmálgagn Bindindisfélaga í skólum er blaðið Hvöt. Kemur það út fjórum til fimm sinnum á vetri. Blaðið er sent ókeypis til allra félaga í skólum landsins. Eins og sjá má er starf Sam* bands bindindisfélaga í skólum orð- ið nokkuð umfangsmikið og þarf þó nokkuð fé til starfsemi sinnar. Sökum þess hefir Alþingi látið Sambandi bindindisfélaga í skólum í té hluta af því fé sem veitt er í fjárlögunum til bindindismála. Eg heti hér í stuttu máli sagt sögu bindindisfélaga í skólum og sambands þess er þau hafa stofnað og starf þess út á við. Að lokum vil eg skýra ftá, hversvegna bind- indisfélög í skólum telja nauðsyn- legt að námsfólk um allt land sam- einist til átaka gegn áfengisbölinu. Pað er mælt að gott málefni skorti ií og æ stuðningsmenn. Prátt fyrir fjölda liðsmanna má vegna málefnisins ætíð bæta fleirum við og *r beinlínis nauðsynlegt. Bindindismálið er nú eitt af þess- um góðu málum, sem fýsír að fá fieiri stuðningsmenn, fleiri liðsmenn. Pað er herjað í allar áttir. Fólk í öllum stéttum, á öllum aldri og í öllum stjórnmálaflokkuum hafa nú þegar látið bindindismálinu í té mikinn stuðning. Einn af síðuitu liðsaukunum voru nemendur í skólum. Peir hafa nú, fleiri hundruð að tölu, hafist handa í bardaganum við Bakkua. Skóla- nemendur þeir, sem stcðu að fé- lagsstofnun hver innan sins skóla, hafa að eg hygg litið svo á. Skól- arnir bera nú orðið svo'mikla á- byrgð á áhrifum á lífi og menn- ingu þjóðarinnar í framtíðinni að þeir þurfa að skifta sér af bindind- ismálinu og þa.ð er skylda nem- endanna með aðstoð skólastjóra og kennara að gera það. Með fengnu sameiginlegu áhuga- efni allra nemenda fæst aukin kynn- ing, sem getur orðið öllum aðiljum til góðs er stundir líða. Aukin fræðsla um bindindismálið kemur í kjölfar samtakanna, sem þegar eru hafin um bindindismálið. Prjár ástæður hafa verið nefndar, allar þrjár hafa þær hjálpað til aðstofna félög til að halda þeim við lýði. Pað sem einkennir þennan fé- lagsskap er hið mikla æskufjör. Ef til vill dvínar það með aldr- inum, en þótt það dvíni þá er von flestra sú, að þeir aldrei reyni að örva fjörið með því er getur orðið þeim að fjörtjóni, á eg þar við áfengið. Heldur örvi þeir sitt æsku- fjör með því að leyta styrks í starfi sínu og hugsjónum. 1. febrúar mun liða eins og aðrir dagar, en með hverjum degi sem líður færist nær sá dagur, sem boðar 3tórvægilegar breytingar í áfengismálum íslendinga, sá dagur sem býður Bakkusi útgöngu fyrir fullt og allt* Jón Kjarítnsson. Liquid Veneer er bezti húsgagna- áburðurinn. Gestur Fanndal. ■■■■ ■ mmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmamm^mmmmmmmmmmmmmmmm Mjólkurkðnnur V atnsglös Matardiskar Verzlun Helga Ásgrímssonar. Mjög ódýr epli ásamt appelsínum og vinberjum fást í Kjötbúð Siglufjarðar,

x

1. febrúar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. febrúar
https://timarit.is/publication/664

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.