1. febrúar - 01.02.1936, Síða 3
1. FEBRUAR
3
Freistingar
BIN DINDISFELAG
Gagnfræðaskóla Siglufjarðar
heldur fund Iaugardaginn 8. þ. m. kl. 5 e. h. í Gagnfræðaskólanum.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Siglufirði, 1. febr. 1936.
STJÓRNIN.
ATH. Samkvæmt lögum félageins geta þeir gerst félagar, sem
stundað hafa nám í Unglingaskólanum og Gagnfræða-
skólanum Siglufirði.
Pað er aðeins eitt
íslenzkt
líftryggingarfélag,
Líftryggingardeild. og það býður betri kjör en nokkuð
annað líftryggingarfélag starfandi hér
á landi.
Líftryggi nga rdeild
Sjóvátryggingarfél. íslands h.f.
Umboð á Siglufirði hefir
Pormóður Eyólfsson, konsúll.
Reynslan hefir sýnt að mörgum,
sem lent hafa í viðjum áfengis-
nautnarinnar hefir reynst erfitt að
losna þaðan aftur, þó hafa bind-
indísfélögin hjálpað mörgum i
þessu efni, auk þess sem þau hafa
vemdað marga frá því að lenda
nokkurntíma í þessum hættulegu
viðjum.
Fátt er meira gleðiefni þeim,
sem í bindinidsfélögunum starfa,
en að taka við þeim mönnum í fé-
lagsskap sinn, sem þrá að losna
undan böli áfengisins, og leiða þá
til fullkomins signrs. Pað hefirlíka
jafnan reynst hin bezta hjálp, að
leita stuðnings þeirra manna, sem
sjálfir hafa verið sterkir á svellinu,
en auk þess ríkir af samúð og
skilningi. Petta eiga bindindisfélög-
in að veita þeim, sem þangað
leyta, en eru ajálfir breyzkir og
þurfa stuðning.
Fyrir þeim, sem hverfa vilja frá
ofdrykkju til reglusemi, verða í
fyrstu ótal freistingar, sem þeir
þurfa að yfirstíga. Pær stafa ýmist
frá lokkandi áhrifum vínsins sjálfs,
eða þær koma utan að, jafnvel frá
vinum og kunningjum.
Vínið er eins og kunnugt er eit*
urefni, sem líkaminn vill hafa eftir
að það hefir einu sinni náð tökum
á honum. Vínið er líka í fyrstu
mjög hættulegt, vegna þess að það
veitir stundargleði og léttir af á-
hyggjum. Pað er freistandi gleði-
og orkugjafi daufgerðum og hug-
litlum mönnum, sem þora ekki
eða vilja ekki horfast í augu við
veruleika lífsins á heilþrigðum
grundvelli. Pessar freistingar verða
mörgum hættulegar, sem komast í
kynni við seiðmagn áfengisáhrif-
anna og á þeim gengur mörgum
erfiðlega að sigrast, þó þeir vilji
snúa burt frá áfengisnautninni.
Til þess að sigra þessa hlið á-
fengisfreistinganna þarf harða bar-
áttu við sjálfan sig og mikla vilja-
festu,
En freistingarnar koma líka utan
að.
Vilji einhver snúa frá áfengis-
nautn og byrja nýtt líf í reglusemi,
er ekki ótítt að hans sé freistað af
vinum og kunningjum bæði vilj-
andi og óviljandi. Hér er um al-
varlegt mál að ræða, sem vert er
að íhuga.
Allir hljóta að vera sammála
um þörfina fyrir drykkjumann að
losna úr viðjum áfengisins, undir
því hvort það tekst getur gæfa
hans í lífinu verið komin. Eitt
spor áfram eða aftur á bak getur
þýtt gæfu eða ógæfu.
Pað er því hinn mesti ódreng*
skapur að freista þeirra manna
með áfengi, aem vilja segja skilið
við það, getur það auðveldlega
orðið þess valdandi að þeir lendi
aftur é lastabrautinni.
Peir sem neyta víns í hófi, án
þess að telja 9ér það sjálfum skaða,
ættu að forðast að leggja slíkar
snörur fyrir aðra, jafnvel vini sína,
sem eru breyzkari en þeir sjálfir,
enda gerir slikt enginn góður
drengur, ef hann í alvöru hugsar
um það, hve hættulegt það getur
orðið, þeim sem hann í fljótræði
hyggst að gera gott.
Allir hljóta að viðurkenna, að
ofdrykkja er böl, ekki einungis
fyrir þá sjálfa, sem lenda út á
þeirri braut, heldurlíka fyrir heim-
ili þeirra og ástvini og sorg öllum,
sem hlut eiga að máli. Og menn
hljóta líka að viðurkenna, að stór
sigur er unninn í hverju einstöku
tilfelli, þegar það tekst að frelaa
menn frá slíku böli.
Enginn vill verða ofdrykkjumað-
ur, þegar hann byrjar að neyta
áfengis, en leiðin tíl ofdrykkjunnar
er greiðíær fyrir mörgum, það
hefur reynslan sýnt. En leiðin frá
ofdrykkjunni er erfið, og á þeirri
leið verða margar freistingar, en
sigurinn er líka mikill . og við
hverja freisting, sem tekst að yfir-
vinna bæta menn fyrir gamlar
syndir og öðla9t að lokum fullkom-
inn sigur. Sá sigur er fyrir mörgum
sönn hamingja.
Ó. J. Porldksson.
Samband bindisfélaga í skólum
hefir á síðasta þingi ráðið sem
fastan starfsmann sambandsins
Eirík Pálsson lögfræðinema. Hefir
hann nú þegar ferðast milli skóla
sunnanlands til eflingar bindindis-
félögunum.
Stjórn Sambands bindisfélaga í
skólum skipa nú Daníel Ágústín-
usson forseti. Pórarinn Pórarinnsson
ritari, Sigurður Olafsson gjaldkeri,
Stefán Júlíusson og Haukur Por-
steinsson. Eru þetta allt ungir
menn brennandi af áhuga og æsku-
fjöri og má mikils vænta af þeim
í framtíðinni.
Hvanneyrarkirkja.
Messa á sunnudaginn 2. febrúar
kl. 2 síðdegis. Sjómannaguðsþjón-
usta. Tekið á móti gjöfum í
Björgunarskútusjóð Norðurlands eftir
messu.
Sóknarþresturinn.
ALMENNUR FUNDUR
um bindindismálið verður haldinn laugar-
daginn l. februar kl. 5 s. d. að tilhlutun
Bindindisfél. Gagnfræðaskóla Siglufjarðar,
Stúkunnar Framsókn nr. 187 og Áfengis-
varnanefndar Si^lufjarðarkaupstaðar.
RÆÐUMENN ■
Jón Jónsson, skólastjóri.
Frú Póra Jónsdóttir.
Ra£nar Guðjónsson, kennari.
Kristján Dýrfjörð, rafvirki,
Friðrik^ Hjartar, skölastjóri.
Pétur Björnsson, kaupmaður.
Siglfirðingar! Fjölmennið! SISSZ