20. maí - 20.05.1937, Síða 2
2
20. MAÍ
Aukið öryggi er allra hagur. Sækið
Æskan og
umhverfið.
Nú er komið vor, og skólarnir
að mestu hættir störfum. Hundruð
af börnum og unglingum hafa
ekkert að starfa. En öll æska þrá-
ir starf en ekki hvíld. Æskumað-
urinn er fullur af fjöri og býr yfir
mikilli orku, sem leita að við-
fangsefni. — Það, sem hér liggur
beinast fyrir unglingunum, þegar
ekkert sérstakt er að starfa, er
gatan og röltið um hana. — Það
sem þarf að beina hugum ungl-
inganna að, þegar ekkert er að
starfa, eru íþróttir. í íþróttunum
fær æskumaðurinn viðfangsefni, er
svalar starfslöngun hans og um
leið eykur heilbrigði hans og þrótt.
— í gegnum íþróttirnar fær hann
aukna líkamlega og andlega
menningu. — En íþróttirnar verða
aldrei að neinu menningartæki
innan um gangandi fólk og farar-
tæki á götum bæjarins. íþróttun-
um verður að ætla afmarkað svæði
á hentugum stað. Það svæði, sem
íþróttamönnum og öðrum æsku-
lýð þessa bæjar er nú ætlað, er
algerlega ófullnægjandi. T.d. nú í
miðjum maí, er það alls ekki
komið undan snjó og »enginn
gengur þá gangstétt, sem grafin er
undir snjó.«
í þessum bæ eru um 800 börn
og unglingar, en svæðið, sem
þeim er ætlaðtil að leika sérá, um
200 fermetrar.. Með öðrum orðum
4 börn á hvern fermetra. — Er
nú hægt að búast við að slíkur
aðbúnaður sé líklegur til þess að
ala upp hrausta og þróttmikla
æsku? Nei, áreiðanlega ekki. —
Aðbúnaður, sem þessi hlýtur að
veikja æskuna en styrkir hana
ekki. — Allt, sem við vinnum,
eigum við að vinna fyrir framtíð-
ina fyrst og fremst.
Þetta bæjarfélag hefir engin efni
á því, að láta jafnmikið menning-
artæki og íþróttirnar eru, vera ó-
notað, en það er það ennþá af
þess hálfu. — Þeim peningum, sem
varið er til eflingar íþróttunum, er
áreiðanlega vel varið. Þeir koma
aftur inn í minnkuðu framlagi til
sjúkrahúsa. Með auknu íþróttalífi
skapast aukin hreysti. Það er gott
að hafa stór sjúkrahús, en það er
betra að þurfa sem minnst á þeim
að halda.
Vonandi verður gert meira fyrir
íþróttirnar og æskuna í þessum
bæ á næstu tveimur áratugum en
gert hefir verið þá tvo síðustu. —
Ég á enga ósk betri til handa
þessum bæ en þá, að honum tak-
ist að skapa hér hrausta og táp-
mikla æsku, er verði þess máttug
að færa mannkyninu að einhverju
leyti meira vor. — Æskan á
framtíðina. Framtíðin verður það
sem æskan er.
íþróttavinur.
íslenzki
fáninn
„Fram undir blaktandi fána vors lands,
frelsisins heilaga tákninu bjarta“,
Fagur er hann og svipmikill
íslenzki fáninn, og vel hefir skáld-
inu tekist að lýsa því, hvað hann
er og hvað hann á að vera í hug-
um íslenzkra manna og kvenna.
Fáninn er ímynd þess frelsis og
sjálfstæðis, sem þjóðin hafði bajist
svo lengi fyrir, og þráð svo heitt.
— Baráttan fyrir fánanum var
hörð, því Danir sýndu þá lítinn
skilning og enn minni velvilja öllu
því, sem stefndi að auknu sjálf-
stæði þessarar þjóðar. — Þó hafð-
ist það fram fyrir forgöngu góðra
manna, að með stjórnarskránni
19. júni 1915 fékk þjóðin sérstak-
an fána, sem þó mátti aðeins
nota innan íslenzkrar landhelgar.
Ánægjan yfir þeim úrslitum var
því galli blandin, en fyrsta áfang-
anum var þó náð, og það gaf
góðar vonir um sigur. — Enda
lauk málinu svo, að 1. desember
1918 var fáninn löggiltur sem
þjóðarfáni íslendinga. Þá var því
marki náð, sem stefnt hafði verið
að. — Sjálfstæðið var fengið, og
fáninn var sigurmerki frelsisins. —
Margir mætir menn höfðu lagt fram
hæfileika sina og starfskrafta í
þeirri baráttu, sem háð var í sjálf-
stæðis- og fánamálinu. Slíkt ber
ekki að harma, því enginn hlutur,
sem varanlegt gildi hefir, fæst
fyrirhafnarlaust. En vel megum vér
minnast þeirra manna með þakk-
læti, er vér sjáum íslenzka fánann
blakta við hún, sem fremstir stóðu
í baráttunni. — Þeir hafa lagt
sjálfstæðið, sem er dýrasta eign
hverrar þjóðar, á altari framtíðar-
innar.
Sú æska, sem nú er að vaxa
upp, hefur staðið utan við þessa
baráttu. Hún hefir hlotið fánann
og frelsið í vöggugjöf. — En sú
skylda fyldir þessari gjöf, að henni
sé sá sómi sýndur, sem henni ber.
*— Við það verður að kannast, þó
leitt sé, að islenzki fáninn er ekki
alltaf hafður í þeim heiðri sem
skyldi. Stundum er hann notaður
við mjög ómerkileg tækifæri, og
væri hann þá oft betur geymdur
niðri í kistu. — Ekki ósjaldan sér
maður skitinn og rifinn fána
blakta við hún. Slíkt er ekki væn-
legt til að viðhalda virðingu fyrir
honum.
í Canada kom það fyrir á há-
tíð hjá íslendingum, að íslenzka
fánanum var hnýtt neðan í brezka
fánann á sömu flaggstöng. Þetta
voru nú víst mistök og var það
lagfært, en slik mistök mega ekki
henda íslendinga. — Sá, sem ekki
sýnir fánanum tilhlýðilega virð-
ingu, óvirðir þær minningar, sem
við hann eru tengdar. Hann traðk-
ar niður í skarnið verk þeirra
manna, sem börðust ötullegast
fyrir því, að við fengum fána. —
En vill nokkur, ef hann á annað
borð hugsar um þetta, verða til
þess að óvirða verk Jóns Sigurðs-
sonar, eða annara mætra manna,
sem fórnað hafa orku sinni og
andans snilli í þágu þessarar þjóð-
ar. —--------
Skátar hér í Siglufirði hafa helg-
að sér afmælisdag bæjarlns. 20.
mai, og er það mjög vel til fund-
ið. — Það getur minnt þá á öll
þau óleystu verkefni. sem bíða
þeirra í þessum bæ og þessu
Iandi. — Framtíðin ber í skauti
sínu ótal tækifæri til drengilegra
og dáðríkra starfa. — Og hver er
líklegri en einmitt æskan, tíl mik-
illa afreka ?,
Skátar! Kjörorð ykkar er: »Vertu
viðbúinn !«
Vertu viðbúinn að veita hverju
góðu máli stuðning.
Vertu viðbúinn að skipa þér í
fylkingu þeirra manna, sem berjast
vilja fyrir heill og hamingju þessa
lands. — Sýndu að þú ert fæddur
til dáðrikra og drengilegra starfa.
Minnstu þess, að íslenzki fáninn á
að vera þér táknmynd frelsis og
frama. — CJndir merki hans áttu
að vinna þína stærstu sigra. Z.
Fermingarbörn
vorið 1937.
Trinitatis (23. maí).
STÚLKUR.
Anna Hulda Símonardóttir Miðstr. 3
*Doróthea A. Jónsdóttir Suðurg.39
*Elísabet Matthíasdóttir Aðalg. 15
Emma Magnúsdóttir Norðurg. 20
Guðlaug H. Meyvantsdóttir Máná
Guðlaug Pétursdóttir Þormóðsg. 4
Guðný Jóhannsdóttir Lækjarg. 8C.
Guðmunda M. Guðmundsd. Sg. 18B
Guðrún SigurbjörgReykdal Hlv. 31A
Hulda M. Þoreírsdóttir Lindarg. 32
Jóna Friðriksdóttir Lækjarg. 8B
Jóhanna Magnúsdóttir Lækjarg. 19
Lilja S. Guðlaugsdóttir Hlv. 19
Margrét I. Egílsdóttir Aðalg. 20
Málfriður A. BjarnadóttirLindarg. 8
*Nanna Þ. Þórðardóttir Hafnarg. 4
Ólína Hjálmarsdóttir Þormóðsg. 9
Sara Símonardóttir Suðurg. 33
Sigurlaug Þ. Sophusdóttir Aðalg. 18
1 s. e. Trinitatis (30. maí).
STÚLKUR.
*Anna L. Hertervig Vetrarbr. 10
*Sigrid F. Bjarnason Hvbr. 8
Trinitatis (23. maí)
DRENGIR.
Albert H. Þorkelsson Túng. 20
Alfreð H. Kristmundsson Miðstræti 8
Egill Jónsson Þormóðsg. 5
Einar K. Árnason Suðurg.
Eysteinn Ó. Einarsson Aðalg. 6
Gunnar S. Guðbrandsson Miðstr. 8
Ingvald Ó. Andersen Hafnarg. 8
Jón G. Björnsson Siglunesi
Jón Sæmundsson Miðstræti 4
Jóhann G. Viggóson Hafnarg. 5
Júlíus Þórarinsson Lækjarg. 7
*Kári Halldórsson Aðalg. 25
Lúðvík Baldur Guðjónsson Rg. 2B
Matthías Jóhannsson Þormóðsg. 1B
Ólafur Kristjánsson Túng. 32
Ríkharður G. Jónsson Ránarg. 12
Sigurður Benónísson Túng. 33
*Sigurður Kr. Matthíasson Aðalg. 13
Sigfús J. Gunnlaugsson Túng. 41
Stefán S. Friðriksson Bakka
Svavar Kristinsson Eyrarg. 3
G. Viktor Þorkelsson Túng. 10
1 s. e. Trínitatis (30. maí)
*Gunnar Ó. W. Jörgensen Aðalg. 9
Hallgrímur Guðmundsson Hvbr. 1
*PáIl Árdal Guðmundsson Aðalg. 14
TIL HAMINGJU.
Skátafélögin Fylkir og Valkyrjur
óska ykkur öllum gæfu og gengis