Póst- og símatíðindi - 01.01.1937, Síða 1
Póst- og símatíðindi
Gefin út af Póst- og símamálastjórninni
Nr. 1 — Janúar 1937
Lesist þegar við nióttöku! Efni: Lesist þegar við móttöku!
A. 1. Skipun póstinanna. 2. Póstleiö lögð niður. 3. Umburðarbréf. C. Leiðrétting á Leiðabók janúar—mai 1937.
A.
1. Með skipunarbréfi, dags. 30. jan. 1937, heíir póst- og símamálastjóri
skipað herra Guðmund Albertsson, auka-aðstoðarmann á póslslofunni í llvik,
til þess að vera póstafgreiðslumann sama staðar frá 1. jan. 1937 að telja.
2. Póstleiðin frá Flatey á Breiðafirði um Svefneyjar, Hvallátur, Skáleyjar
og Sviðnur til Flateyjar, beíir verið lögð niður frá síðastliðnum áramótum.
3. Þessi umburðarbréf hafa verið gefin úl í janúarmánuði:
20/i 1937. Umburðarbréf nr. 1.
— Stöðvarnar —
Ríkisútvarpið hefir hinn 18. desember síðastliðinn gelið út og póstlagl
til allra símstöðva nýja verðskrá fyrir útvarpssendingar, sem skiftast í 2 tlokka:
Útvarps-tilkynningar og Útvarps-auglýsingar, og gengur þá við móttöku þess
bréfs úr gildi gjaldskrá sú fyrir útvarpssendingar, sem prentuð er í nýju
Símaskránni á hls. 32—33. Það skal tekið fram, að undir »almennar lilkynn-
ingar« falla einnig útvarpsskeyti til skipa, sem hafa einungis viðtæki, en ekki
loftskeytastöð, og til afskekktra bæja, sem skráðir eru i nýju Simaskránni á
bls. 71—75. Ekki má senda útvarpsskeyti til annara bæja en þeirra, sem þar
eru taldir. Símskeytagjald fyrir útvarpssendingar reiknast eins og fyrir venju-
leg símskeyti, og teljast þá öll orðin með í orðafjölda skeytisins, einnig þau,
sem ekki eru gjaldskyld til Útvarpsins, eins og t. d. mcrkin Ukf og Mkf.
Framvegis skal á mánaðarreikningi hverrar símstöðvar, tekjumegin, fyrir
neðan símatekjurnar, skrá mánaðar tekju-upphæð útvarpsins fyrir umræddar
útvarpssendingar, ef nokkrar eru, og skal sá liður heita »Tekjur Útvarpsins
fyrir útvarpssendingar«. Óskast þetla skrifað á reikninginn, þangað til ný
reikningseyðublöð verða send. Hinsvegar skal skrásetja sjálf skeytin og skeyta-
gjald Landssímans fyrir þessar útvarpssendingar á sjálfa skeytaskrána, sem
l’ylgir mánaðarreikningunum, og teljast þær skeytatekjur vitanlega með tekjum