Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.05.1890, Side 2

Sameiningin - 01.05.1890, Side 2
34— skifti, hetír nokkra landa sína og kunningja í kringum sig, sem geta og vilja talaö uin eitthvað skynsamlegt, þá stytt- ast stundirnar furðanlega. Hinn nýkjörni Rej'kjavíkrprestr, séra Jóhann þorkelsson, var með á þessari ferð, og mér þótti vænt um að fá þannig tœkifœri til kynnast honum meira en eg hafði áðr liaft. Hann er maðr með frjáls- ari skoðunum heldr en sjálfsagt tíestir þeirra, er mesta ó’oeitina höfðu á því, að hann yrði eftirmaðr hins núveranda biskups þar í Reykjavík, og hann er einn af þeim mönn- um, sem lítr til hinnar andlegu baráttu þjóðtiokks vors hér í Vestrheimi með hlýjum huga og væntir mikils góðs af lienni fyrir þjóðlífið þar heima. Eg er sannfœrðr um, að Reykjavík hefir engu tapað við það, að alþýðutíokkrinn varð ofan á fvið þessa prests-kosning. — Tvær nýjar bœkr las eg á sjóferð þessari. Onnur þeirra er nýjasta skáldsagan eftir Björnstjerne Björnson, hinn fræga Norðmann, sem liann hefir gefið nafnið „A vegum guðs“ (Paa Guds Veje), gáfu- lega smíðað vopn á móti kristindóminum. Hin er stóra bókin „Eldincjsem frú Torfhildr Holm var þá alveg ný- búin að koma á prent og sem margir eru nú búnir að iesa fyrir löngu. það er eins og menn vita saga út af kristnitökunni á Islandi til forna og á þvert á móti áðr nefndri skáldsögu Björnsons að vera kristindóminum eink- ar vinveitt, en því miðr hefir höfundinum ekki tekizt að láta þetta sitt aðalrit í þessu tilliti verða það, seui hún hefir ætlazt til. það styðr að engu leyti lífsskoðan krist- indómsins, og það fyrir þá sök, að sú lífsskoðan er þar í rauninni hvergi reglulega sýnd; hún kemr þar eiginlega hvergi fram í sinni hreinu og réttu mynd. það er enginn verulegr munr á heiðindóminum í hans mannúðarfyllstu mynd og kristindóminum eftir því sem hvortveggja er sýndr í þessari bók. það að kristnast fyrir góðan heiðingja verðr eftir því, sem frú Holm virðist liugsa sér, ekki annað en að skifta um sereinoníur, kasta þórshamrinum og ganga und- ir merki krossins. Vitaskuld er það, að kristnitakan á Is- landi eins og svo víða á miðöldunum var víst hjá öllum þorranum elcki að mun fólgin í öðru en slíkri seremoniu- breyting. Og þ a ð gæti verið afsökun fyrir frú Holm, er

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.