Sameiningin - 01.01.1937, Page 6
4
stói'um tjaldhúsum, þar sem hópur manna kemst þægilega
fyrir, en rauðheitur ofn er í gangi, er sendir svo mikinn hita
frá sér, að ökumenn eru oftast berhentir við að meðhöndla
tauma hestanna. Nota l'iskimenn þessi upphituðu sleðahús
mjög á vatninu. Svo og póstflutningamenn og aðrir er flytja
hæði fólk og varning frá járnbrautum. Við jarðarfarir, á
vetrardag, er algengt að sjá heila hópa af þessum upphituðu
sleðahúsum. Mun svo raunar víðar vera en í Nýja íslandi,
þó inér sé það minna kunnugt. Man eg eftir, að þetta var
með svipuðum hætti á Lundar og í Langruth og þar í grend,
þegar eg var þar lítilsháttar við kirkjuleg störf lyrir nokk-
urum árum; enda eru staðhættir þar að ýmsu svipaðir því
er gjörist í Nýja íslandi.
Ferð mín til Vatnabygða byrjaði með lestinni er fór
héðan úr borg kl. 11 að kvöldi þess 18. desember s. 1. Tók
eg mér farbréf til Kandahar, sem er um það vestast í hin-
um víðlendu bygðum (hér um bil 375 mílur frá Winnipeg).
Mætti mér þar á járnbrautarstöðinni Jón B. Jónsson (bróðir
dr. B. B. J.) og fór með mig heim í bíl sínum. Gisti eg hjá
honum, eða þeim hjónum, næstu nótt. Hafði svo fyrstu
messuna í kirkjunni í KJandahar sunnudaginn 20. des. kl.
2 síðdegis. Aðsókn var sennilegast eins góð og við mátti
biiast, því veður var fremur kalt og fyrirvari með auglýsingu
í styttra lagi.
Á þriðjudagskvöld var fundur í ungmennafélaginu i
Kandahar, því er séra G. P. Johnson stofnaði. Er það talsvert
fjölmennur félagsskapur. Fóru þar fram skemtanir og kaffi-
veitingar. J. B. Jónsson las upp fréttablað félagsins, sem
nýlega er komið á gang. Var það bæði til fróðleiks og
skemtunar. Flutti eg þar stutta tölu. Félagið mun hafa
fundi sína hálfsmánaðarlega, ef eg man rétt. Ekki var annað
að sjá en að félagið væri ineð góðu lífi. Alt fór fram á ensku
og mun það nú vera óðum að fara í vöxt, í bygðum vorum hér
vestra.
Á aðfangadagskvöld var aftur messa í Kandahar, með
jólatré og vönduðu jóla prógrammi á eftir. Stýrði því J. B.
Jónsson en undirbúning hal'ði annast Mrs. Latimer, ung ís-
Ienzk kona (áður skólakennari) og mun hún hafa haft stjórn
á sunnudagsskólaverki safnaðarins í Kandahar síðastliðið
ár. Mrs. Latimer er dóttir Hjörleifs Hjörleifssonar í Wvn-
yard, er áður fyrrum átti heima á Laufhóli í Árnesbygð í
Nýja fslandi. Kona Hjörleifs er Guðrún dóttir Bjarna heit-