Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1937, Side 12

Sameiningin - 01.01.1937, Side 12
10 góðu í þessum efnum. Borðuðum við oftast hjá Hallberg nokkurum, sænskum manni, er hafði mjög hreinlegt og gott matsöluhús. Kölluðum við inanninn “Hallberg hóteleig- anda,” eins og Reykvíkingar voru vanir að kalla sinn virðu- Iega gestgjafa með því nafni. Fanst manni þetta minna mann þægilega á ættjörðina og vera ofurlítil huggun í framandi landi. En silungurinn í Chicago minti mann á alt annað. Hann minti mann á það sem eg heyrði ræðumann nokkurn þar einhverju sinni segja. Fórust honum orð á þá Ieið, að í Chicago fyndi maður það bezta og það versta sem til væri í heimi. Og þó ræðumaður hafi sjálfsagt haft hugann tals- vert fyrir ofan matarborðið, þá hafa þó orð hans oft mint mig á Chicago-silunginn sem einn hinn allra versta sem til muni vera í öllum heimi.— En nú fór á annan veg. Silungurinn hjá skáldinu og hinni ágætu konu hans, í Elfros, var hreinasta afbragð. Minti hann mann á sjávarsilunginn stóra og feita út á fs- landi. Var auðséð að skáldið hafði skift við eitthvað ráð- vandari menn, en eg hafði fyrir hitt í hinni stóru borg þar suður frá forðum daga. J. Magnús Bjarnason er fæddur 24. maí 1866. Átti hann því sjötugsafmæli síðastliðið vor. í tilefni af því var honum og konu hans haldið veglegt samsæti, er nefnd manna stóð fyrir. Var formaður nefndarinnar dr. Kristján J. Austman, en skrifari séra Jakob Jónsson. Nú hafa þeir á íslandi minst skáldsins með virðulegri kveðju sem honum hefir verið send. Er það bókfell all- stórt og með smekklegum frágangi. Utan á bókfellinu stend- ur með giltu letri: “Kveðja frá íslandi.” En innan i bók- fellinu, á blöðum þess, eru nöfn jiess fólks er undir kveðjuna hafa skrifað, 123 að tölu. Er það fólk af öllum stéttum. Flest af því mun þó vera þjóðkunnugt fólk, bæði þar heima og hér vestra. Þar á meðal heill hópur af mönnum í háum embættum og í ýmsum öðrum virðulegum stöðum þjóðfél- agsins. Munu fyrir þessu hafa gengist þeir Helgi Hjörvar kennari og Sigfús Halldórs frá Höfnum.—-Varð eg var við, að skáldið sjötuga hafði glaðst innilega við að fá þessa fall- egu bróðurkveðju frá ættlandinu forna. Sagði hann mér, að sér þætti vænna um kveðjuna en þó að sér hefði verið sendur stór fjársjóður frá íslandi.—Sátum við býsna lengi við að lesa þessi 123 nöfn. Við flest af þeim kannaðist maður og býsna mörg af þeim eru alkunn. Þó voru þar nokkur nöfn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.