Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 13

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 13
sein við vorum ekki vissir um hverjir áttu. En skáldið hefir einselt sér að vita sem fyrst eithtvað um alla er undir kveðj- una hafa skrifað. Mun hann og vera kominn langt á veg að því marki, ef hann er ekki enn kominn alla leið. í Elfros mætti eg Helga Eyjólfssyni, bónda úr Hóla- bygðinni svonefndu, suðaustur af Elfros. Hafði kornið til orða, að eg hefði messu í samkomuhúsi Hallgrímssafnaðar þar í bygð. Af Jiví gat Jió ekki orðið. Helgi er tengdasonur Magnúsar bónda Borgfjörð, er á fyrir konu Maríu systur Mrs. C. O. L. Chisvvell á Gimli. Var Helgi einn af fimm manna sendinefnd er komu úr Vatnabygðum til kirkjuþings í Ár- borg síðastiiðið sumar. Við messuna í Westside skólahúsi mætti eg þrem mönnum er eg hafði áður þekt í Nýja íslandi. Var einn af þeim Jón sonur Björns heitins Jóhannssonar og Sigurbjargar konu hans, er uppalin var hjá séra Þórarni Bögvarssyni í Görð- um. Stundaði Sigurbjörg Iengi ljósmóðurstörf í Víðirbygð og lánaðist það prýðilega. Er hún enn á lífi, í grend við Leslie, en Jiví miður gat eg ekki komið því við að sjá hana. Hinir mennirnir, er eg sá Jiarna, voru þeir bræður Árni og Sigurfinnur, synir Sigurfinns heitins Sigurðssonar, er fyrir eina tíð bjó í Framnesbygð og átti fyrir konu Sesselju Árna- dóttur, systur konu Jóns heitins Hornfjörðs. Var Sigurfinnur yngri í fermingarbarnahóp hjá mér fyrir æði mörgum árum, svo og Björgvin bróðir hans, sem nú mun vera námuverk- fræðingur einhversstaðar í austur-Canada. Eftir messuna í Westside kom eg heim til Tómasar S. Halldórssonar og konn hans, er húa þar nálægt og þáði Jiar kaffiveitingar. Er hann sonur Tómasar bónda Halldórsson- ar á Mountain, í Dakota, og var einn af þeim fimm fulltrúum, er komu til ])ings úr Vatnabygðum síðastliðið sumar. Við messuna í Wynyard mætti eg séra Jakob Jónssyni og frú hans. Þar mætti mér og gamall samferðamaður frá fslandi, árið 1890, Jóhann óli Björnsson, er lengi átti heima á Garðar. Þar mætti mér og aldraður góðvinur, Brynjólfur Jónsson, og Ivristinn sonur hans, er eg ekki hafði áður mætt. Við messuna í Foam Lake mætti eg Narfa kaupmanni Narfasyni, bróður Mrs. H. J. Helgason; sömuleiðis konu hans er spilaði á orgelið við messuna. Þar var og Jón Bildfell, kona hans og börn. Er hann sonur Gisla Bildfells, bróður þeirra Bildfells bræðra, Ögmundar og Jóns, hér í borg. Enn- fremur var við kirkjuna Jón Janusson, er eg kannaðist vel

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.