Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 14

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 14
12 við af afspurn. En eg vissi ekki fyrri en á eftir, að hann hefði þar verið. Hefði annars talað meira við hann, því manni er oftast forvitni á að kynnast betur þeim mönnum sem maður er áður búinn að kynnast eitthvað af afspurn. í Elfros mætti eg íslenzkum kaupmanni er Jón Guð- mundsson heitir. Hefir hann verzlun allskamt frá járn- brautarstöð bæjarins. Afkoma fólks í Vatnabygðum hefir verið fremur erfið í allmörg ár, bæði sökum uppskerubrests hvað eftir annað, og vegna kreppunnar alræmdu, er lamað hefir alt viðskifta- líf. Á þessu varð þó talsverð breyting til batnaðar nú í sum- ar er leið. Uppskera þar víða miklu hetri en í mörg undan- farin ár, þó fáeinir yrðu þar útundan. Er sennilegt að við- reisnar tímabil sé þar nú í aðsígi. Sem prestakall eru Vatnabygðjr stórt og mikið starfs- svæði. Fyrstur fastaprestur þar mun hafa verið séra Run- ólfur heitinn Fjeldsted, er þjónaði þar til 1912. Eftir hann kom séra Haraldur Sigmar og var þar þjónandi prestur í mörg ár. Nokkuð af þeirri tíð var séra Halldór Johnson prestur í austurhluta nýlendunnar. Voru þá hygðirnar tvö prestaköll. Eftir burtför séra Halldórs varð nýlendan aftur að einu prestakalli, er séra Haraldur þjónaði þar til að hann tók prestsköllun frá söfnuðum í Dakota og flutti þangað suður. Tók þá við þjónustu í Vatnabygðum séra Carl J. Olson, er verið mun hafa prestur þar í ein fimm ár. Hætti þar og flutti burtu til Seattle 1930. Síðan hel'ir Vatnabygða prestakallið verið án fastrar prestsþjónustu. Þó var séra G. P. Johnson við stöðuga prestsþjónustu í austurhluta bygð- anna um nokkurt skeið, og séra Kristinn K. Ólafsson, for- seti Kirkjufélagsins, hefir haft þar á hendi sumarþjónustu í allmörg ár. Má því segja, að Vatnabygðir hafi notið talsvert mikillar prestsþjónustu um undanfarin ár, þó þar hafi í seinni tíð sjaldnast verið stöðugt þjónandi, búsettur prestur. Yfirleitt mun það nú vera í hugum manna, er til þekkja, að í Vatnabygðum þurfi sem fyrst að hefjast stöðug og á- byggileg prestsþjónusta. Eftir því sem eg leit til og hefi vit á, mun vera ekki svo lítið al' heilbrigðu, andlegu lífi í söfnuðum og bygðum þar vestra. Að þeim gróðri þarf sem fyrst að hlynna. Því fyr sem það er gjört, því betur. Tveir sunnudagaskólar voru þar í gangi er eg kom vestur, annar í Kandahar, hinn í Elfros. Eru þeir báðir að mestu eða öllu leyti á ensku, enda ekki börnin nema hér um bil

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.