Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 15

Sameiningin - 01.01.1937, Síða 15
13 helmingur þeirra af íslenzkum ættum. Vel sýndist starfið vera rækt á báðum stöðunum. Yfir sumarið hygg eg að eitt- hvað rneira hafi verið um sunnudagaskóla starf þar, þó um það viti eg ekki nákvæmlega. Allar horfur eru á því, að kirkjulegt starf í Vatnabygðum verði sem hvað líður meira á ensku en á íslenzku. Ef til vill ekki nema einn fjórði af því á íslenzkri tungu. Móður- mál unga fólksins er nú meir og meir að verða hin enska tunga. Öll skólamentun og öll viðskifti svo að segja fara fram á því máli. Enskan er mál þjóðarinnar i þessu landi. Srnáir þjóðflokkar af útlendum stofni hafa ekki mikið að segja. Þeir sogast inn i strauminn enska og mikla og verða að fylgjast þar með hvort sem ver líkar eða hetur. Lang viturlegast virðist það nú vera, að til Vatnabygða komi ungur prestur, er sé sýnt um að meðhöndla góða ensku, en sé um leið sæmilega fær í íslenzku. Gæti hann þá líka bælt sig í málinu, ef hann væri ekki alfullkominn í fyrstu. En að presturinn sé ungur, ötull og vel til foringja fallinn, er yngri kynslóðin geti aðhylst fyllilega, það held eg að sé um það hil lífsnauðsyn. Að þessi hugmynd komist í framkvæmd sem allra fyrst, er það sem nú liggur beint fyrir. Bæði Kirkjufélagið og söfn- uðirnir í Vatnabygðum þurfa að taka höndum saman um þetta málefni og ráðstafa því sem fyrst bæði vel og vitur- lega. “Messias” Handels “Ei vitkast sá er verður aldrei hryggur; hvert vizkubarn á sorgarörmum liggur. Á sorgarhafsbotni sannleiksperlan skín; þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín.” Má vera að sumum finnist þessi hugmynd óeðlileg, óskilj- anleg eða ósönn, en hætt er við að sú mótbára risti ekki djúpt, beri ekki mikinn vott um athugun á mannlífinu fyr eða síðar. Gott væri fyrir alla að rannsaka hvað fegurstu og göfugustu framkvæmdir mannkynsins hafa kostað. Hið mikla hljómlistarverk Handels, sem hann nefndi “Messias,” hefir ef til vill l'est dýpri rætur í mannlegri sál

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.