Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1938, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.07.1938, Blaðsíða 4
98 að þeir lögðu hönd á verkið í djarfri von. Samkomur og erindi jiingsins féllu inn í starfið sem hátíðlegar og uppörf- andi stundir, sem miðuðu að j^ví að hefja andann og víkka sjóndeildarhringinn. Þingið stóð yfir eins og til stóð l'rá 17.—21. júni. Þing- setningar guðsþjónusta, með fjölmennri altarisgöngu, fór fram í kirkju Frelsissafnaðar að Grund, að kvöldi seytjánda júní. Er Jætta frumkirkja bygðarinnar, sem allir hera til l'orna trygð. Verður hún ætíð nokkurs konar andleg mið- stöð umhverfisins. Fóru j)ar fram þrjú önnur af höfuð stefnumótum þingsins — ungmennasamkoman, viðtökufagn- aður bygðarinar og minningarguðsþjónusta um dr. Björn B. Jónsson. Var þetta bæði vegna húsnæðis og afstöðu í bygð. Annars var þinginu skift sem jafnast á kirkjurnar fjórar. Var gestum skift á heimili bygðarinnar og nutu þeir þar næturgistingar og morgunverðar, en sátu að öðrum sameig- inleguin máltíðum og síðdegis kaffi hjá hverjum söfnuði fyrir sig eftir jrví sem þingið var fært til. Tilhögun öll á við- tökum og fyrirkomulagi var eins fullkomin og frekast verður á kosið. Bygðin lagði til vel æfðan og tilkomumikinn söng er lýsti upp þingið og samkomur þess. Eiga söfnuðirnir og sóknarpresturinn, séra Egill H. F'áfnis, sæmd og þakkir fvrir að umgjörð þingsins var öll svo viðeigandi og fullkomin, að þingið gat notið sín sem allra bezt. Um 65 erindrekar og prestar munu hafa setið þingið. Sltýrslur embættismanna og fastanefnda, er lagðar voru fram á fyrsta þingdegi, gefa glögt yfirlit yfir ástæður og starf félagsins. Þær þurfa að vera lesnar af kirkjufólki voru al- ment og öðrum er vilja fylgjast með starfi voru. Þurfa menn og ættu að eignast Gjörðabók þingsins og lesa hana gaumgæfilega. Skal hér einungis í hana vitnað um þessi efni. Á dagsskrá kirkjuþingsins voru þessi mál: 1. Heima- trúboð og prestsþjónusta; 2. Erlent trúboð; 3. útgáfumál; 4. Betel; 5. Ungmennastarfið; 6. Kristileg uppfræðsla; 7. Mannfélagsmál og kirkjan; 8. útvarp á íslenzkum mess- um og 9. Lagabreytingar. Trúboðið er aðal starfsmál kirkjufélagsins. Hugsjón hvers kristins kirkjufélags er að efla kristnihald innan sinna vébanda og útávið, heimafyrir og erlendis. Það er einungis verulegt lifsmark með kristindómsmálunum þegar þau sýra út frá sér. Annars dauði. Þessarar tilfinningar gætti í sam- bandi við meðferð þessa tvíþætta máls, sem þó er eitt í hug-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.