Sameiningin - 01.07.1938, Page 5
99
sjón og hvað takmark snertir. — Eriðleikar eru á því að
koma hugsjóninni nægilega í framkvæmd, en frá viðleitninni
verður ekki horfið. Hvað starfið heimafyrir snertir verður
iniðað að því að nota þá krafta, sem eru til, eftir því sem unt
er, en hafa þó vakandi auga á nýjurn möguleikum. Ástæður
eru að breytast og viðleitnin að fullnægja þeim verður að
taka það til greina. Ágreiningur um bjargráð hefir verið
nokkur á liðnum árum. Þó úrlausnir séu ekki fengnar, var
ákveðinn hugur að beita sér að því að viðráðanlegum hindr-
unum í starfi og lífi kirkjufélagsins yrði rutt úr vegi, en
aldrei látið stranda á hleypidómum á eina leið eða aðra. —
Það sem liggur næst er að bjarga við sjóðþurð, sem stafar af
því að fjársöfnunarnefnd kosin á síðasta kirkjuþingi kom
ekki til leiðar því sem henni var falið, en framkvæmdarnefnd-
in miðaði starfið við áætlaðar tekjur, sem þessvegna ekki
fengust. En hér er ekki um neitt Grettistak að ræða heldur
það að samtök megi verða almenn og málið hvergi látið
falla í gleymsku eða vanhirðu. Framkvæmdarnefndinni var
falið að jafna sjóðþurðina og sinna þó brýnum þörfum eftir
ástæðum.
Erlenda trúboðið hefir einnig átt í vök að verjast. Var
það ávinningur mikill þeim er sátu á þingi að trúboðirin, séra
S. O. Thorláksson, var nú viðstaddur og reifði málið mjög
heppilega. Ba.'ði þegar málið kom fyrir á fundi og með sér-
stöku erindi gerði hann mjög ítarlega grein fyrir starfinu í
Japan og viðhorfi Austurlanda. Er til þess vonast að hann á
|>essu ári, er hann verður hér í Ameríku, geti heimsótt sem
flesta söfnuði vora og flutt mál silt fyrir þeim. Verður það
áreiðanlega hugsjóninni til eflingar. Hefir trúboðanum vaxið
ásmegin í starfinu og tekur hann nú fastar tökum en nokkru
sinni fyr á því er hann fæst við og á áheyrendum sínum.
Útgáfufyrirtæki kirkjufélagsins eru nú aðallega Samein-
ingin og Gjörðabók. Gjörðabókin verður gefin út eins og í
fyrra, auk þess að ársskýrsla forseta verður birt í Lögbergi.
Fjárhalli er allmikill á útgáfu Sameiningarinnar, rúm tvö
hundruð dollara á árinu. Kom tillaga frá framkvæmdarnefnd-
inni að gera úr henni ársfjórðungsrit í stað mánaðarrits, til að
jafria hallann. Fekk það drengilega mótspyrnu á þinginu
og kom fram verulegur áhugi á því að ráða fram úr vanda-
málinu á annan hátt. Tóku kirkjuþingsmenn að sér að auka
kaupendafjölda blaðsins svo um munaði. Ákveðin loforð
komu fram um að útvega um <S() til 90 nýja kaupendur, auk
þess að allir tóku að sér að vera málinu liðsinnandi eftir