Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1938, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.07.1938, Blaðsíða 6
100 getu. Þetta þarf sem fyrst að bera fullan árangur og þá er málinu borgið. Ritstjórn var endurkosin og eins féhirðir. Betel er aldrei vandræðamál á þingum. Hagur stofnun- arinnar góður og stjórn í bezta lagi. Gamalmennaheimilið þarf áfram að halda á stuðningi almennings og kærleika. Hvorttveggja mun veitast. Ungmennamót þingsins undir stjórn ungfrú Veru Johannson var hið myndarlegasta í alla staði. Unga fólkið í Argylebygð lagði til áhrifamikið Cantata, sem var sungið af list undir stjórn hr. Árna Sveinssonar ineð undirspili ungfrú Fjólu Oliver. Annað alt líka mjög myndarlegt. Skýrsla milliþinganefndar sagði frá mótinu í Árborg í maí á þessu vori. Heldur sú nefnd áfram starfi undir ágætri forystu séra Egils H. Fáfnis. Það lofar miklu að þessi hreyfing er vakin og er það trú vor að hún geti orðið máttugasta stoð starfi voru. Það nýmæli er á ferðum hjá Bandalagi lúterskra kvenna að koma á námsskeiði fyrir sunnudagaskólakennara um að minsta kosti tíu daga skeið, ef ekki á þessu ári, þá því næsta. Vakti þetta gleði í sambandi við meðferð kristi- legra fræðslumála. Má treysta framkvæmdum ef nokkur leið er tit. Uppbyggilegar umræður voru um kristilega fræðslu alment. f sambandi við mannfélagsmál kom fram þingsamþykt viðvíkjandi bindindi, sem fylgir: Nefndin, sem skipuð var í bindindismálið, leyfir sér að leggja fram eftirfylgjandi tillögur til þingsálylttunar: 1. Þingið mælir eindregið með því, að flutt verði erindi, helzt í hverjum söfnuði Kirkjufélagsins, er vari alvarlega við böli ofdrykkju og vínnautnar, og hafi prestarnir forgöngu í því máli. 2. Þingið óskar þess, að fólk vort í bygðum og borgum vestan hafs, veiti leiðtogum í bindindismálinu þann öruggasta stuðning og samvinnu sem það hefir ráð á. 3. Þingið óskar eftir því, að ungmennafélögin taki þetta mál til meðferðar, bæði heima fyrir og á þingum sínum. 4. Æskilegt væri, að þeir sem sækja næsta þing, gætu sýnt fram á einhvern sigur og framför í þessu alvarlega máli. Á kirkjuþingi að Baldur 21. júní 1938. Mrs. S. Ólafson Jolxn ólafson G. Thorleifsson Kirkjufélagið tók upp það nýmæli á liðnu ári að útvarpa stuttum, íslenzkum guðsþjónustum á virkum dögum. Fjór-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.