Sameiningin - 01.07.1938, Side 7
101
iim guðsþjónustum var þannig útvarpað, og hefir þetta mælst
injög vel fyrir. Styrkur almennings hefir borið fyrirtækið
og eru um $50 í sjóði. Verður útvarpinu haldið áfram á
komandi vetri og haft eins títt og framast má. Því fleiri sem
styrkja, því meira verður hægt að gera í þessu efni.
Nefnd sú er kosin var á síðasta þingi til að yfirfara og
þýða lög Kirkjufélagsins á ensku fékk aukinn starfstíma um
annað ár. Séra Jóhann Bjarnason var kosinn í stað dr.
Björns. Hinir meðlimir nefndarinnar eru Hjálmar Bergman
lögfræðingur og séra Rúnólfur Marteinsson.
•í’ * *
Minningarguðsþjónusta um dr. Björn B. Jónsson fór
fram á sunnudagskvöldið 19. júní. Var það afmælisdagur
hins látna leiðtoga. Var athöfnin samboðin augnamiðinu í
alla staði og mjög l'jölsótt. Flutti séra G. Guttormsson erindi
auk forseta. Var þá stofnaður “Minningarsjóður dr. Björns
Jónssonar” samkvæmt ráðstöfun kirkjuþings. Er sú yfir-
iýsing og samþykt birt á öðrum stað í þessu blaði. Mun
þetta fagra tækifæri til kærleiksgjafa mikið verða notað af
félögum og einstaklingum. Inn komu í sjóðinn um $100 á
þinginu.
Annar embættismaður kirkjufélagsins hafði látist á
árinu, hr. Albert C. Johnson, konsúll fslendinga og Dana í
Winnipeg. Hafði liann verið vara-féhirðir allmörg ár. Var
hans minst með viðeigandi þingyfirlýsingu.
Séra Rúnólfur Marteinsson flutti fyrirlestur út af þriggja
alda afmæli Svía í Ameríku. Var það fróðlegt erindi og vel
flutt. Séra Sigurður Ólafsson var málshefjandi að trúmála-
umræðum þingsins. Efnið var: Sálgæzla. Var erindi hans
frábærlega hugðnæmt og uppbyggilegt. Umræður voru i bezta
iagi. Hefir þetta efni aldrei verið rætt áður hjá oss. Féll það
í góðan jarðveg.
Söfnuðir bygðarinnar höfðu skemtimót er vel hej)nað-
ist, að Grund, eftirmiðdaginn á sunnudaginn. Var það undir
lipurri stjórn séra Egils. Einnig þar var veitt af mikilli
risnu.
Embættismenn voru endurkosnir, nema að ]>ví leyti að
hr. ,í. J. Vopni var kjörinn vara-féhirðir í stað hr. Alberts C.
Johnsons konsúls. — í framkvæmdarnefnd voru kosnir, auk
forseta: séra Jóhann Bjarnason, séra Haraldur Sigmar, séra
Sigurður ólafsson, séra Valdimar ,1. Eylands, S. O. Bjerring
og Tryggvi Anderson. í Betel-nefnd voru J. .1. Swanson og