Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1938, Page 9

Sameiningin - 01.07.1938, Page 9
103 í þessu komu fram heilbrigð áhrif þess fagnaðarerindis, sein Páll var boðberi fyrir. Kristindómurinn kennir mönn- uin ekki að loka augum fyrir neinu, en hann gerir mönnum Lint að þreifa á því, sem ekki er á yfirborði, en þó raunveru- legt hvað snertir afskifti Guðs af mannlegu lífi og högum. Hin margföldu öngþveiti mannlegs lífs þrýstu að hjarta Iírists, en hann færði mönnunum hjálpræðiskraft Guðs, seni lýst hefir því skýrar sem viðhorf lífsins hefir verið daprara. Hann hefir fært þau áhrif sem bægja frá örvæntingu en gefa áræði til lifs og starfs hverjar sem ástæður eru. Það getur tæpasl dulist þeim, sem athuga það, sem við er að bera, að lífsvegur Krists sætir miklum vanda í nútíðar- lífi. Þeir straumar ráða miklu, sem ganga alveg á snið við anda og Iífsstefnu kristindómsins. Með ofbeldi og yfirgangi reyna einstaklingar og þjóðir að koma ár sinni fyrir borð, fremur en með sanngirni og réttsýni. Gífurleg samkepni, sem treður á mannréttindum og mannlegri velferð, ræður lögum og lofum, fer sinna ferða og harðnar því meir sem lengra líður. Hún dregur eftir sér drösul ógæfunnar á öllum sviðum, afneitar bróðurandanum og herðir hjörtu mannanna og tilfinningar gagnvart öllu nema því að einstaklingurinn eða heildin Jifi sjálfri sér án tillits til annara. Heimafyrir hjá þjóðunum leiðir þetta til þess reiptogs milli manna og stétta, sem stefnir í voða allri sameiginlegri heill og gengi. Hver höndin er upp á móti annari, óvild og tortrygni fara vaxandi og takmarkið, sem mest ber á, er að hver megi skara eld að sinni köku. Á hinu stærra sviði þjóðasamkepninnar virðist alt miða í þá átt að hin æðisgengna trylling leiði til nýs blóðbaðs, sem nái i'it yfir allan heim og færi með sér þann vígslóða er allri menningu stefni í voða. Ekki sízt sverfur það að, að svokallaðar kristnar þjóðir eiga hér jafnan hlut að máli og aðrar, að hjá þeim gætir svo lítils heimafyrir eða útávið, þeirra hvata eða áhrifa, sem eiga skylt við hugsjónir fagnaðarerindisins. Það er litið smáum augum á það að treysta göfgi augnamiðs og guðlegu fulltingi. Það sé betra að koma sér þannig fyrir að menn þurfi ekki annars en að reiða sig á mátt sinn og megin. Og þetta alt, þrátt fyrir það, að öll rás viðburðanna bendir til þess ótvírætt að eftir þessari leið verður ekki annað stefnt en lit í hinn ýtrasta voða. Innan um alt þetta öldurót þarf kristin kirkja að stefna fari sínu. Ekki einungis er voðinn á allar hliðar útbyrðis, heldur líka er skipshöfnin sjálf sundurtætt af ugg og kvíða, af óvissu um hvað til bragðs eigi að taka og úrræðaleysi

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.