Sameiningin - 01.07.1938, Page 16
110
velja vel. Námsgreinirnar sem hún kennir nú eru aðailega
tvær: handiðnir og garðrækt.
Hið i'yrra er óhjákvæmileg nauðsyn sérhverju heilbrigðu
þjóðlífi. Heilbrigða ástandið er það, að alt í'ólk, ríkt og
fátækt, læri nytsama vinnu, verði vel að sér til munns og
handa. Enginn er svo ríkur, að hann ekki þurfi að læra að
vinna með höndnnum, og enginn svo fátækur, að hann ekki
þurfi fræðslu úr bókum. Það er farsælt ástand þegar allir
eiga kost á að auðga anda sinn og öllum þykir það sómi að
kunna vel til verks.
Það hefir reynst vel í liðinni tíð, að heimilin eigi sem
fjölbreyttast líl', að þar sé sem mestur styrkur í anda og orku.
Nútíðin hefir dregið mikið af þessu burt frá heimilinu og
framleitt það með vélavinnu í tröllaulcnum verksmiðjum.
Mannkynið hefir, frá þeirri uppsprettu, fengið mikið af nýj-
um vörum, ódýrari en áður þektust; en miljónir þeirra
manna og kvenna er þar vinna, hafa verið gjörðar, því sem
næst, að hjólum í vélum, sem ekkert þurftu að hugsa. Heim-
ilisiðnaðurinn þar á móti æfði mikla og fjölbreytta hugsun.
Og þó einkennilegt megi virðast, hefir heimskreppan mikla
vakið að nýju iðnað á heimilunum.
Halldóra sýndi hér vestra fagran og margbreyttan
heimilisiðnað. Eg óska honum líf og blessun á íslandi. Vel
sé henni sem hefir örfað þetta starf og þroskað.
Garðrækt er alstaðar til hlessunar þar sem henni verður
við komið. Garðurinn veitir mönnum aukna fæðu og aðrar
fæðutegundir en þær er dýraríkið gefur, og þær tegundir eru
mikill þáttur í heilbrigði og nauðsynlegum líkanilegum
þroska, en þar var skorturinn á íslandi svo slcelfilega mikill.
Það er sérhverri þjóð til mikilla framfara að hún kunni að
hagnýta sér sem mest, helzt alt, sem landið á til í eigu sinni.
Garðurinn er þar mikilvægur þáttur. Halldóra Bjarndaóttir
á skilið mikið þakklæti fyrir það, sem hún hefir kent íslend-
ingum í garðrækt og einnig í því að nota það sem getur
sprottið í garðinum.
Göfugar þjóðir, sjálfri sér sannar, eru altaf að læra, læra
að þekkja landið sitt, þekkja sjálfa sig, og í öllu starfi sínu
að þekkja Guð. i öllu þessu hefir Halldóra Bjarnadóttir verið
áhrifamikill þáttur.
Um 20 ár hefir hún verið ritstjóri að tímaritinu Hlín og
þar barist með hógværð og sannfæringarkrafti að þessum
góðu málefnum. R. M.