Sameiningin - 01.04.1918, Page 6
36
kennara hefi eg' haft þar sem mér hefir fundist blys
bókmentanna loga jafn skært eins og hjá Friðrik Berg-
mann. Sérstaklega má eg þakka honum það, hversu lif-
andi og kærir ljóðahöfundarnir ensku urðu mér. Mörg
þau kvæði kann eg utan bókar enn, sem hann kendi mér
veturinn þennan í skólanum litla á Gardar.
Þar bar fundum okkar næst saman, er hann var
kominn til kirkjuþings í Winnipeg 1887, þá prestvígður
ári áður, að loknu guðfræðanámi við háskólann í
Kristianíu í Noregi og M’t Airy prestaskólann í Phila-
delphia. Átti eg þá heima í Winuipeg og þótti mér það
hátíð mikil, að koma í “Félagshúsið” á Jemima St., þar
sem þingið var iialdið, á kvöldin, er eg liafði lokið störf-
um mínum. Þar hlustaði eg, unglingurinn, á hinn fyrsta
fyrirlestur, er eg lieyrði séra Friðrik Bergmann flytja.
Eg hefi sjaldan hlustað í meiri leiðslu á nokkurt erindi
en það. Og þó var það mest maðurinn sjálfur og fram-
burður lians, sem vakti aðdáun mína. Fyrirlesturinn
var um heilaga ritningu, “Hin undraverða bók” var hann
nefndur. Man eg að hann byrjaði með orðum Sir Wal-
ters Scott, þeim er hann mælti við vin sinn, er stóð við
banabeð hans. “Færðu inér bókina”, sagði Walter Scott.
“Hvaða bók?” spurði vinurinn. “Bókina, ekki er til
nema ein bók fyrir deyjanda mann, og það er biblían”,
svaraði Scott. Þetta var sem fyrirboði annara fyrir-
lestra margra og snildar ræða, er eg síðar fékk að heyra
af vörum séra Friðr. Bergmanns.
Eftir þetta var eg all-mikið á vegum séra Friðriks.
Fyrir hans tilstilli fór eg suður í Bandaríki til skólanáms,
og valdi hann mér skólann, og síðar var það fyrir áeggj-
an hans og séra Jóns Bjarnasonar, að eg hætti við aðrv
fyrirætlan mína og lagði fyrir mig guðfræði. Yaldi séra
Friðrik mér þá aftur skóla, og var hann mér ávalt leið-
beinandi um alt nám og má heita að hann réði því. Þau
ár, er eg var í skóla syðra, ritaði hann mér iðulega bréf
mér til uppörfunar og leiðbeiningar.
Þegar eg var prestvígður á kirkjuþingi 1893 lá for-
seti kirkjufélagsins, séra Jón Bjarnason, veikur í Park
River, og gegndi því séra Friðrik Bergmann sem varafor-
seti forseta-störfum. Framkvæmdi hann vígsluna, og er