Sameiningin - 01.12.1919, Síða 31
315
en ávítuðu þá, bönnuðu þeim að kenna, og slepfcu þeim. 7.
Hverju svöruðu þeir Pétur? “Dæmið sjálfir,” sagði Pétur,
“hvort það sé rétt að hlýðnast yður fremur en Guði, þvi að vér
getum ekki tálað annað en það, sem vér höfum séð og heyrt ”
7. Hví þorðu ekki prestarnir annað en að sleppa þeim? peir
óttuðust fólkið, “því að allir lofuðu Guð fyrir þennan atburð.”
8. Hvað er af þessu að læra? a. Prestarnir undruðust djörf-
ung og viturleg svör þeirra manna, isem voru ólærðir Galíleu-
menn. Æðsta mentun lífsins er sú, sem Jesús veitir í heilög-
um anda. b. Pétur og Jóhannes höfðu fólkið með sér, og þá
þurftu þeir ekki að óttast lærða menn og höfðingja. Og fólkið
var með þeim af því að þeir störfuðu meðal almennings og hjálp-
uðu honum með fagnaðarerindinu. Svo lengi sem kirkja Drott-
ins þjónar almenningi og hjálpar 'þeim, sem nauðstaddir eru,
eins og Jesús bauð henni, þá 'mun hún lifa og dafna, þrátt. fyrir
allan mótróður.
IV. LEXÍA. — 25. JANÚAR.
Pétur stendur með sannleikanum og ráðvendninni, Post. 5, 1-11.
Minnistexti: Lygavarir eru Drotni andstygð, en þeir sem
sannleik iðka, eru yndi hans.—Orðskv. 12, 22.
1 Hver voru tildrögin til þessa atburðar, sem hér er sagt
frá? Söfnuður Drottins í Jerúsalem hafði dafnað dag frá degi.
Bróðurbandið var mjög náið og innilegt. peir, sem eitthvað
áttu, bjuggu ekki að eigum sínum sjálfir í eigingirni, heldur
miðluðu öðrum, og seldu jafnvel fasteignir, til þess að gefa
trúbræðrum sínum andvirðið. 2. Hvað gjörðu þau Ananías og
Saffíra? pau seldu eign, sem þau áttu, eins og margir aðrir,
en drógu undir isig nokkuð af andvirðinu og komu með afgang-
inn til Péturs. 3. Fyrir hvað ávítaði Pétur þau? Ekki fyrir
það, að þau tóku part af andvirðinu, því gjöfin var frjáls (4. v.),
heldur fyrir að ljúga að Guði. Með öðrum orðum: Ananías
hafði séð aðra selja eignir s'ínar og gefa alt andvirðið. Nú vildi
hann með svikum fá sama hrós og þeir — með því að gefa lítið
og látast gefa alt. Syndin lá í þessari hræsni og prettvísi, sem
hann isýndi, þegar söfnuðurinn, fyltur heilögum anda, lifði svo
fagurlega. Hann var eins og nýr höggormur í nýrri Eden —
leiddi lýgi, hræsni og prettvísi inn í heilagan söfnuð Guðs. 4.
Hvernig hegndi Drottinn þeim Ananíasi og Saffíru? pau féllu
dauð niður, hvort í sínu lagi, þegar Pétur ávítaði þau. 5. Hvað
lærum við af þessu? a. pegar Drottinn lítur á gjöf þína, þá
telur hann ekki peningana. Hann lítur á hjartað, sem gefur.
Ef það er göfugt, þá er gjöfin þín stór, hversu fátækur sem þú
ert. En ef illar hvatir ráða þar, þá er engin gjöf góð frá þinni
hendi, hversu rífleg sem hún er. h. Hræisnarinn lýgur ekki að
eins að öðrum mönnum, heldur að eigin samvizku sinni, og að