Íslendingur - 11.06.1918, Qupperneq 2
94
ISLENDIWQUT?
23. tbl.
• • • • • • • •••••••• ••••••• • • • • •-• •-••• •••••••••
Verslun
Otto T ulinius
Akureyri.
Með síðustu skipum nýkomið mikið úrval af margskonar varningi.
ÁLNAVARA
mjög fjölbreytt.
Stubbasirs 600 pd.
Flauel og lastingur margir litir. - Musselin mjög mikið úrval.
Möbelbetræk. —Fiðurhelt Ijereft. — óbleyjað Ijereft. — Hvítt
og mislitt ljereft margar tegundir. — Gambridjfe. — Baðhandklæði.
Þurkur, vasaklútar hvítir og mislitir, silkiklútar, borðteppi rúmteppi hvít
og mislit, borðdúkar kaffidúkar, serviettur. Smávarningur margskonar
nýkominn.svo sem: Smellur, nœlur, brjóstnælur, manchethnappar
o. m. m. £1. — Ennfremur margskonar nýlenduvörur: Rúsínur, sveskjur,
cacao, chocolade margar tegundir, þurkaðar aprikósur, ferskjur og epli,
niðursoðnir ávextir margar tegundir, sápur margar tegundir, — Sun-
light sápa.
Með s.s. HLagarfoss« í dag von á:
Flórmjöli, hafragrjónum völsuðum, hrísgrjónum, sagogrjónum, tóbaki,
sykri, gerpúlver, svínafeiti, Maccaroni, kaffibrauði margar tegundir, hol-
Ienskri álnavöru, og ýmsu öðru.
Verslun og
úrverkstæði
miff er fluff í
Hafnarsír. 84.
Hamlduijioh ann esson
Kvennaskólinn
á Blönduósi.
Gjörið svo vel að koma og skoða varninginn
— því sjón er sögu ríkari.
Akureyri 3. júní 1918.
ðtto öulinius
ósanngjarnt, að pessar tvær greinar
sjávarútvegsins — síldar- og fisk-
útgerðin — styddu hvor aðra, ef
svo ber við, að önnur peirra færi
halloka eða yrði beinlínis stofnað í
voöa, eins og nú á sjer stað um
síldarútveginn.
Fróðir menn og glöggir á fisk-
veiðar hjer við land álíta, aö fisk-
framleiðsla landsins muni geta orð-
ið um 20 þús. smálestir í ár. Verða
þá, eftir þvf að dæma, 8 þús. smá-
Iestir með hærra veröinu (kr. 250.00).
Hefði stjórnin þá 4 miljónir króna,
sem hún gæti haldið eftir af fisk-
verðinu þangað til yfir lyki og sjeð
yrði fyrir endann á síldarsölunni.
Þegar þessar leiðir eru teknar til
alvarlegrar athugunar, hlýtur það að
verða mönnum ljóst, að landssjóð-
ur þyrfti ekki að stofna sjer í neinn
fjárhagslegan voða, þó að ráðist
yrði í síldarkaupin, og enda meiri
líkur til þess, að hann hefði hrein-
an hag af öllu saman. En hvað sem
um það er, þá verður landsstjórnin
að vinda bráðan bug að því, að
þau ráð verði tekín, sem firt getí
álitlegan hluta þjóðarinnar atvinnu-
missi um aðalbjargræðistíma ársins,
marga menn stórfeldu eignatjóni eða
jafnvel gjaldþroti og landið sjálft
stórtjóni, bæði beinu og óbeinu.
Petta á henni að vera ljúft og skylt
að gera.
Annars er alt þetta pukur stjórn-
arinnar með þessa samninga öld-
ungis óþolandi og óverjandi, eink-
um með tilliti til þess, að óðum
líður að síldarútgerðinni og menn
því með öllu í óvissu um, hvernig
henni skuli eða megi haga. Verður
það ekki rjettlætt með öðru en því,
að stjórnin ætli sjtr að tryggja síld-
veiðina á einhvern viðurianlegan
hátt.
Erlendar símfrjettir.
Póðverjar gera áköf áhlaup hjá
Mont Didier og Noyon.
Mörgum skipum er nú sökt fyrir
Bandaríkjunum, einnig hafa fundist
þýsk tundurdufl þar.
Útlendum „Anarkistum" er vísað
úr landi í Bandaríkjunum.
(Einkaskeyti Morgunblaðsins.)
Frjettir.
Rvík 10. júní.
Álit ríkisþingnefndanna um ís-
landsmál er væntanlegt á miðviku-
daginu.
»Fredericia« er komin með 7300
steinolíuföt. Hefir steinolíufjelagið
leigt skipið til þriggja ferða enn í
sumar.
2 seglskip eru nýkomin með kol,
sem stjórnin fjekk. Eru kolin seld á
325 kr. smál. og þykir óhemjudýrt.
Knattspyrnumótíslands hófst í gær.
Keppa 4 fjelög: Víkingur, Valur,
Fram og Reykjavík.
(Frjettaritari »ísl.« í Rvík.)
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
Stúlkur þær sem ætla sjer að vera á skólan-
um næsta vetur, skulu hafa sent umsóknir til
Árna Á. Porkelssonar á Geitaskarði í Langadal
í Húnavatnssýslu fyrir júlímánaðarlok n.k.
Tóma poka
af öllum stærðum og tegundum kaupir hæsta verði
w
Asgeir Pjetursson.