Íslendingur


Íslendingur - 09.04.1915, Blaðsíða 1

Íslendingur - 09.04.1915, Blaðsíða 1
I. árg. Islendingur. • •##•••••# • • • • t •-• • • • • • -• • •-•-•-• •••• • •-• ••• • • • • •••••• • j l , Ritstjórar: Ingimar Eydal og Sig. Einarsson. # • y\kureyri fösfudaginn 9. apríl 1915. • ÍSLENDINQAR! Eriendar símfrjettir. Jeg he/i nú undanfarna 5 mán- uði haldið úti „Dagblaði“, sem að- allega flutti frjettir af striðinu og öðrum nýjustu viðburðum, erlendis og nærlendis. Blaðinu hefir verið tekið mjög vel og fengið talsverða útbreiðslu. Kaupendur hafa verið fleiri en búast mátti við í fyrstu, þar sem blaðið var í rauninni ein- göngu eða aðallega œtlað Akur- eyrarbúum, til þess að flytja þeim daglega frjettir aj striðinu mikla. En samt sem áður var svo kotnið áður en blaðið hœtti, að allmikill hluti kaupenda blaðsins voru ein- mitt utanbœjarmenn og hefðu þeir verið miklu fleiri ej samgönguleysi við nœrsveitirnar hefði ekki tálmað útbreiðslu blaðsins. Auk þess hefi jeg ekkigetað haft blaðið svo úr garði gert, að mönn- um út um sveitir vœri verulegur fengur i því. Liggur til þess sú á- stœða, að i svo örlitlu frjettablaði, einsog Dagblaðið var, er littmögu- legt að taka til meðferðar nein stœrri lands- eða þjóðþrijamál. — Ritgerðir um slik efni yrðu allar bútaðar i sundur og óaðgengilegar til lesturs. Petta hefir mjer verið fullljóst. Enda hafa ýmsir af kaupendum þess vikið að þvi við mig, að þeir óskuðu eftir, að blaðið tjeti meiia til sin taka almenti landsmál eða flytti meira af uppbyggilegum rit- gerðum um ýmisleg efni, sem til gagns og fróðleiks mœtti verða. Af þessum ástœðum hefi jeg nú ákveðið að hœtta útgáfu Dagblaðs- ins og i þess stað gefa út viku- blað það, sem hjer birtist af fyrsta tölublaðið. feg hefi orðið svo heppinn að fá hr. Ingimar Eydal, kennara, sem samverkamann minn við blað- ið, og vonast jeg eftir því, að menti taki blaðinu mun betur fyrir þá ráðstöfun. Frjettasambönd höfum vjer jafn- góð og áður. Að svo miklu leyti, sem blaðið kann að láta stjórnmál til sin taka, mun það yfirleitt hallast að fram- sóknarstefnunni, eða þeirri stefnu, setn vill auka en um fratn alt ekki rýra sjálfstæði landsins og forn landsrjettindi. A3 svo stöddu sjá- um vjer ekki ástæðu til að lýsa nánara stefnu blaðsins eða afstöðu Framhald á 2. siðu. Opinber tilkynning frá bresku utanríkissljórninni í London. London 3. april. Flotamálastjórnin tilkynnir, að breskur flugmaður hafi gert á- rás á kafbáta Þjóðverja hjá Antwerpen og orðið vel ágengt. Annar flugmaður fór til Zeebriigge og varpaði niður 4 sprengi- kúlum á 2 kafbáta Pjóðverja þar. Halda menn, að góður ár- angur hafi orðið af því. Flugmennirnir komu heilir á húfi heim. Síðastliðna viku (sem endaði 31. marz), sigldu 1559 skip til og frá breskum höfnum. Kafbátar óvinanna söktu 5 skipum á þessu tímabili. London 7. april. Utdráttur úr opinberum skýrslum Frakka frá 3.-6. apríl: I orustum þeim, sem nú hafa staðið í La Pretréskógi, hafa Frakkar handtekið rúmlega 200 hermenn þar á meðal 6 fyrirliða. Peir náðu 3 skotgröfum hverri á fætur annari. Fyrir austan Verdun hafa Frakkar sigrað og náð þar smáþorpi og hæðum nokkrum. I Voevrehjeraði sigruðu þeir einnig og tóku þar þorp og samkvæmt frásögnum hertekinna manna var 6 þýskum herfylkjum gertvístrað þar. Fyrir sunnan og austan St. Michiel náðu Frakkar skotgryfjum af Pjóðverjum og hafa haldið þeim þrátt fyrir gagnáhlaup. Milli sjávar og Champagne hefir ekkert markvert skeð. London 7. april. Utdráttur úr opinberum skýrslum Rússa frá 4.—6. apríl. Hjá Niemen hafa staðið smá bardagar og halda Rússar sókn sinni þar. I Póllandi hefir ekkert markvert skeð. 1 Karpathafjöllum hafa Rússar enn unnið ágæta sigra. Frá 20. mars til 3. apríl liafa Rússar handtekið 378 foringja og 33155 liðsmenn og náð 17 fallbyssum, 101 vjelbyssu milli Bali- grot og Usok eingöngu. Frásagnir Austurríkismanna um sigra síns liðs er einber uppspuni. Tyrkneska beitiskipið Medjegeh rakst á tundurdufl fyrir utan Odessa og sökk. Rússnesk herskip eltu Goeben og Breslau og neyddu þau til þess að leita skjóls í Sæviðarsundi. EINKASKEYTI til Morgunblaðsins. Kaupmannahöfn 1. april. Þjóðverjar segjast hafa tekið 1000 Rússa höndum í orustunni hjá Tauroggen og unnið sigur hjá Krasnopol. 2000 Rússar fjellu, en 3000 voru handteknir. Rjóðverjar náðu 7 vjelbyssum, 1 fall- byssu og mörgum skotfæravögnum. Frá Tyrkjum kemur fregn um það, að flugmaður þeirra hafi varpað sprengikúlum á herskip bandamanna fyrir framan Hellu- sund. Von Kluck, yfirhershöfðingi, særðist af sprengikúluflís er

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.