Íslendingur - 09.04.1915, Blaðsíða 4
4
ISLEND NGUR
1. tbl.
á ári. Þeim búnaðarfjelagsformönn-
nrn, sem nú voru staddir á fund-
inum, var falið að gangast fyrir
framkvæmdum í þessu máli.
Bændanámsskeiðið á Hólum hófst
sem fyr segir 22. mars. Var þá lítt
fært veður fyrir hríð. Var því fátt
aðkomumanna fyrri hluta vikunnar,
en síðari hlutann sóttu þangað um
50 manns. Voru þar á meðal nokk-
rar konur. Allir er þurftu höfðu
fæði og gisting hjá skólastjóra. Má
það jafnan telja kost við bænda-
námsskeiðin, er talsverður hluti
gestanna getur fengið húsnæði og
fæði á námsstaðnum. — Kynningin
verður þá meiri, og meiri hressing
og ánægja að dvölinni. Þá, sem á
skóla hafa gengið, getur þá farið
að dreyma um gamla og góða
heimavistarskóladaga, en hinum, er
heima hafa setið, finst þeir vera
komnir inn í annan heim. A Hól-
um var helst hafður til leika kað-
aldráttur og svo sýndu skólapiltar
fimleik sinn í líkamsæfingum undir
stjórn Hólmjárns Jósefssonar kenn-
ara, sem nú gegnir kenslu við skól-
ann í stað föður síns. Fórst þeim
sýning sú vel úr hendi, einkum er
þess er gætt, hve stuttan tíma þeir
hafa haft til æfinga
A námsskeiðinu voru flesta dag-
ana fluttir 5 fyrirleslrar og umræðu-
fundir stóðu 2 — 3 tíma á hverju
kvöldi. Þessir menn hjeldu þar fyr-
irlestra:
Sigurður Sigurðsson ráðan. 6 fyr.l.
Jón Þorbergsson fjárræktarm. 0 —
Hólmjárn Jósefsson kennari 4 —
Sigurður Sigurðss kennari . 3 —
Jakob H. Líndal framkv.stj. 3 —
Sigurður Sigurðss. skólastj. 3 —
Jónas Kristjánsson læknir . 2 —
Fyrirlestrarnir fjölluðu um svipuð
efni og á Blönduósi að undanskyld-
um fyrirlestrum Jónasar Kristjáns-
sonar læknis, er voru um „erfðir
og kynbætur á tnönnum" og „hreint
loft og húsakynni". Vakti sjerstak-
lega kynbótafyrirlesturinn athygli
hjá mönnum, enda umræðu efnið
óvanalegt hér hjá oss. I sambandi
við námsskeiðið notuðu menn tæki-
færið til þess að skoða hið nýbygða
fjósáHólum. Það mun nú ntyndar-
legast fjós hér á landi og stendur
fyllilega jafnfætis betri fjósum er-
lendis, má þó sérstakl. benda á sjálf-
bryningarnar, sem eru betri og hent-
uglegar útbúnar en í nokkru fjósi'
sem eg hefi séð, enda við nýrri gerð
frá Þýskalandi. Hér er ekki hægt að
lýsa byggingu þessari í stuttu máli,
enda hefir hennar áður verið getið
í „Dagblaðinu". En fjós þetta getur
orðið til mikils stuðnings og fyrir-
myndar fyrir bændur alment, þótt í
smærri stíl vilji byggja en skólahús-
ið á Hólum.
Skiftafundur.
Laugardaginn þ. 17. þ. m. kl. 12 á hádegi verð-
ur skiftafundur í dánarbúi Guðlaugs sýslumanns
Guðmundssonar, haldinn á skrifstofu minni á
ráðhúsinu og þá tekin ákvörðun um sölu jarð-
eignar búsins í Arnessýslu, um innheimtu þess,
er búið á hjá öðrum o. s. frv.
Skiftaráðandi Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar % 1915.
_________Páll Einarsson
V e r ð 1 a g.
Verðlagsnefndin hefur ákveðið hámark útsölu-
verðs: Alexandra flórmjöl 42 au. kílógr., valsað-
ir hafrar 58 au. kílógr.
Sauðakjöt af Fjöllum
fœst ennþá í
Garl Hoepfners verslun.
Til moforbáfaúfgerðar.
Bátaofnar, Anker, Keðjur, Keðjulásar, Pumpur, Vatnsrör úr
kopar og galvaniseruð, Olíurör, Toppstykki á 4, 6 og 8 h. a.
mótora, Skrúflyklar, Skiftilyklar, Gangsetningskeðja. Rörtengur frá
1,80 til 12 Kr. Nippiltengur, Pakkningar alskonar, Graphítáburður
í Pakkningar, Aluminiumbronce og Rautt Motorlakk, Menja,
Sandpappir, Smergelljereft, Motorlampar, Smurningskönnur. Feiti-
koppar af ýms. stærðum, Stnurningsglös stór og smá, Trjeskrúfur,
Kopar í skiftiteina, Hvítmálmur, Olíusíuefni, Afpurkunartvistur og
Afpurkunarklútar, Hreinsinálar, Fægiáburður, Kaðlar og Línuverk,
Spilreimar og Reimalásar. Ennfremur ýms stykki í motora. Öll
motoistykki, sem ekki eru til, eru pöntuð og afgreidd um hæl.
Með næstu skipum ketnur: Motorlampabrennarar, Spírituskompásar,
Línuspil, Línurúllur, Bambusstengur, Línubelgir, Blakkir einskornar
og tvískornar og margt fleira.
Smurningsolia og vjelafeiti hvergi ódýrara,
Versl. Sn Jónssonar.
Fiskilínur
eru væntanlegar með »Pollux« 18. þ. m. í verslun
Jakob H. Lindal.
Sig. bigurðssonar.