Íslendingur - 13.07.1934, Page 3
ÍSLKNDINGUR
2
G+#++^+#++4++#*-+#++4++$++4‘*-+'£,-+$>,-j'<!>,-+t++P-*$>,-+$,1-->4',->4-,+i>1-+i>1-+4+-liH->^ ++t++4,++$+Q
f t
f 9l[ú8arþa(iííir iit allva fjœr og nœr, sem minntusi |
í mín og gíöddu mig og íconuna mína í tiíefni af 50 |
| ára afmœíi minu. — Jiœr dvedja tiL ykkar a((ra. |
öinar Stefánsson. f
f
J+4»-*4++4++$++$++$+*$++$++#+->4++4**$>++4+->4+-i4++$*->4*>4+->4++4+i4*+4+->4*--*4,-*®',-*y*Ó
stóðust þeir reiöari, en ef þeir hittu
menn, sem þeir óttuðust að vissu
satmleikann um þá sjálfa, eða gætu
hnekkt ýmsum þeim lygasögum, sem
þeir höfðu dreift út í héraðinu um
andstæðinga sína. Svo tala þessir
menn um skoðanafrelsi eftir þá
framkomu, sem þeir höfðu sjálfir
við þá, sem vildu vera frjálsir að
þvf hvað þeir hugsuöu. Verður ef
til vill tækifæri til síðar að rita um
það. Svo kom nú kjördagurinn.
í*á var eg staddur að Ríp í Hegra-
nesi, sem er kjörstaöur í Rfpur-
hreppi, Skal nú að nokkru greint
frá hve sumir Hriflungar virtu þar
vel lögin, sem þeir segjast vilja að
»gangi jafnt yfir alla«. (Þ. e. a. s.
aö heir vilja láta þau »ganga jafnt
yfir alla« andstæöinga en ekki yfir
sig), Formaöur undirkjörstjórnar á
Ríp var Siguröur Ólafsson hrepp-
stjóri á Hellulandi og er hann einn
í Hriflufylkingunni. Fyrsta lögbrot
hans var það, aö hann setti engann
dyravörö í byrjun. kjörfundar, eins
og tekið er fram f 83. grein kosn-
ingalaganna. Af því leiddi svo
annað lögbrot, sem var þaö, að
inni í kjörfundarstofunni var oftast
margt fólk, annað en kjörstjórn og
umboðsmenn, en það er bannað í
78. gr. kosningalaganna. En hrepp-
stjórinn hirti ekki um að láta
fólkið fara út.
Sumir þeirra manna, sem voru
inni í kjörfundarstofunni, og voru
hvorki umboðsmenn eða í kjörstjórn,
voru svo meö rifrildi þar, þótt þeir
hefðu ekki heimild til að vera þar
nema á meöan þeir kusu. Mun þaö
vera brot á móti anda 139. greinar
kosningalaga 3. lið. Má þar fyrst
og fremst nefna Ólaf á Hellulandi,
sem sýndi umboðsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins ýmsan dónaskap, í
orðum, sem vart var samboðinn
fullorönum, siöuðum mönnum.
Annars er Ólafur þessi kunnur að
því, að hafa árum saman núið sér
upp við Jónas frá Hriflu, eins og
kláðarolla upp við moldarbarð í
þeim tilgangi aö Jónas útvegaði
honum eitthvert bein til aö naga,
enda fékk hann beinið fyrir nokkr-
um árum. Ef til vill verður síðar
tækifæri til að minnast meira á
Ólaf, en þess skal hér getiö, að
aldrei hafa sveitungar hans borið
það traust til hans, að þeir hafi svo
mikiö sem kosið hann i breppsnefnd.
Mun ofstopi Ólafs og sumra annara
Hriflunga á þessum kjörfundi lengi
í minnum hafður.
Svo kemur nú kórónan á öllu
framferði Hriflunga á Ríp þennan
dag. Hreppstjórínn gerír sig sem
sé sekan í þvt glaprœði, sem alveg
mun áður óþekkt í sögu landsins■
Hann láuar umboðsmanni Fram-
sóknarflokksins einn kjörseðilinn út
ár kjörfundarstofunni, svo að hann
geti notað seðilinn til að *agitera«
með honum í kjósendum, sem ekki
voru inn í kjörfundarstojunni, og
sýnt þeim hverja þeir ættu að
kjósa. —
Ef þetta er ekki vítavert brot á
anda kosningalaganna, þá veit ég
satt að segja ekki hvar takmörkin
eru fyrir því, hvað hlutdrægir kjör-
stjórnarmenn mega leyfa sér við
kosningar. Og þegar einn úr kjör-
stjórninni, Guðmundur Ólafsson odd-
viti í Ási, krafðist þess að hrepp-
stjórinn sækti aftur kjörseðilinn, þá
færðist hann undan því. Fór þá
Guðmundur og sótti kjörseðilinn
sjálfur, en fékk hann með illu.
Mér er ekki kunnugt um hvernig
Hriflungar hafa hagað sér á öðrum
kjörfundum í sýslunni þennan dag,
en ef það hefir víða verið Hkt þessu,
þá undrar mig ekki, þótt þeim tak-
ist að merja upp 911 atkv. handa
Sigfúsi uppiafaklerki, svo að hægt
væri að »draga« hann inn í þingið.
— f>að skal að endingu tekið fram,
sveitungum mínum til verðugs hróss,
að mikill meiri hluti þeirra, og það
jafn vel Framsóknarmenn sumir,
höfðu andstyggð á því, hvernig æst-
ustu Hriflu-sprauturnar höguðu sér
þarna þennan dag. Það skal og
tekið fram, að ég skrifa þetta ekki
fyrst og fremst til að sverta póli-
tíska andstæðinga, heldur til þess að
sannleikurinn komi í ljós og þjóðin
fái að vita hann, og til þess að
reyna að koma í veg fyrir að slíkt
ofbeldi og lögleysa endurtaki sig í
framtíðinni, — ef að þetta verða þá
ekki síðustu kosningarnar á íslandi
um langan tfma; slíkt væri aðeins í
samræmi við ýmsa einræðisdrauma
Hriflunga undanfarið.
Ég veit, að Hriflungar munu hata
mig, rógbera mig og ofsækja, fyrir
aö fletta svona ofan afþeim, því að
»sannleikanum verður hver sárreiö-
astur« segir máltækið. — Og svo
þekki ég líka Hriflunga eftir að þeir
höfðu blekkt mig til að vera nokk-
ur ár í flokki þeirra. En »sann-
leikurinn er sagna beztur«, segir
annað máltæki, og ég er reiöubú-
inn að mæta hverskonar ofsóknum
fyrir sannfæringu mína og fyrir
sannleikann og réttlætið.
Það verður aldrei hægt að kaupa
mig eða kúga til að þegja við því,
sem ekki má þegja við, hvað sem
tautar og hvað sem það kostar. —
Allt, sem ég hefi hér skrifað, er rétt
%
að því er ég bezt veit, hvernig sem
það kemur viö þá, sem það snertir.
— Það er ýmislegt fleiraí sambandi
viö bardaga-aðferðir Hriflunga, sein
væri þess vert aö skrifa um, en
það verður að bíða að sinni. v
P.t. Akureyri, 7. júlí '34.
Jón Norðmann Jónasson.
2-3 herhergí og eldhús
óskast til leigu frá 1. október fyrir
barnlaust fólk. — Uppl. í síma 24.
ÍMorín rósaim
eru til sölu í Fagrastræti 1.
Sundmeistaramót I. $. I. _
f*rjú ný met.
Jónas Halldórsson áfram
sundkongur íslands.
Síðastliðinn sunnudag kl. 2 síðd.
var 5. sundmeistaramót í. S. í sett
við sundlaug bæjarins af Benedikt
G. Waage, forseta sambandsins.
Keppendur voru um 20 frá 6 félog-
um og voru þau þessi: Sundfélagið
Ægir, Rvík, Knattspyrnufélag Rekja-
víkur, Glímufélagið Ármann, Rvík,
Knattspyrnuíél. Akureyrar, íþrótta-
félagið Þór, Akureyri og U. M. F.
Efling, Reykjadal. — Mikill mann-
fjöldi var saman kominn við setn-
ingu sundmótsins, og sæmileg að-
sókn mánudags- og þriðjudagskvöld-
ið. Sýndu Akureyringar að þeim
var það ánægja að horfa á þessa
fögru íþrótt, sundið, og sómi er það
bænum að hafa getaö boðiö sund-
köppunum fullkomnasta sundstæði
landsins til þess að þreyta íþrótt
sína.
Fara hér á eftir úrslit sundkeppn-
innar.
Sunnudaginn 8. júli:
Fyrst var keppt í 100 stiku sundi
(frjáls aðferðb
Úrslit urðu þessi:
Fyrstur varð Jónas Halldórsson
(Ægir) á 1 mín. 13 sek., annar Jón
D. Jónsson (Ægir) 1 mín. 14,2 sek.
og þriðji Hafliði Magnússon (Ármann)
á 1 mín. 14,4 sek.
Tíminn hjá öðrum þátttakendum
varð þessi: Guöbr. Forkelsson (K.R.)
1 mín. 16 sek., Gísli Jónsson (Ár-
mann) 1 mín. 17,1 sek,, Haraldur
Sæmundsson (Ægir) 1 mín. 20,8 sek.,
Jóhannes Snorrason (K. A.) 1 mín.
25 sek., Kári Sigurjónsson (f*ór) 1
mín. 33,3 sek., Ragnar Þorgrímsson
(Ægir) 1 mín. 36,5 sek.
200 stiku bringusund: Fyrstu
verðlaun fékk Þórir Ouðmundsson
(Ægir) 3 mín. 18 sek., önnur verö-
laun Magnús Pálsson (Ægir) 3 mín,
20,2 sek., þriöji Þorsteinn Hjálmars-
son (Ármann) 3 mín. 21 sek. —
Aðrir þátttakendur fóru vegalengd-
ina á þessum tíma: Ögmundur Guð-
mundsson (Ármann) 3 mín. 25,1 sek.
Stefán Jónsson (Ármann) 3 mfn. 26,8
sek., Erlendur Konráðsson (U. M. F.
»Efling» S.-Þing), 3 mín 27 sek.,
Sigurður Runólfsion (K.R.) 3 mín,
31 sek., Kári Sigurjónsson (I’ór) 3
mín. 33,5 sek., Haukur Einarsson
(K,R.) 3 mín. 34,9 sek.
Boðsund 4X60 m., 3 félög kepptu,
4 menn frá hvoru. (Ægir) 2 mín.
14.8 sek., (Ármann) 2 mín. 18,1
sek., (K. A. og Þór samein) 2 mín.
31.8 sek.
Á eftir voru sýndar dýfingar og
tóku þátt í þeirri sýningu bæði
ungir og gamlir. Far á meðal for-
seti í. S. í., Jón Pálsson og Ólafur
Magnússon sundkennari o. fl.
Mánudaginn 9. júií:
Fyrst var keppt í 400 stiku sundi
(frjáls aðferð).
Úrslit urðu þessi:
Fyrstur varö Jónas Halldórsson
(Æ) á 5 mín. 35,2 sek. (nýtt ísl.
met), annar Hafliði Magnússon (Á)
á 6 mín. 11,2 sek., þriðji Gísli Jóns-
son (Á) 6 mín. 15,5 sek. o; fjórði
Haraldur Sæmundsson (Æ) 7 mín.
14 sek. —
Vinum og vandamönnum tilkynn-
ist að Fórkatla Jónsdóttir, Hjarðar-
holti í Glerárþorpi, andaðist að
heimili sínu iaugardaginn 7. júlí s.l.
— Jarðarförin er ákveðin frá heim-
ili hinnar látnu, sunnudaginn 15.
júlí n.k., kl. 10,30 f.h. og hefst með
húskveðju.
Aðstandendur.
100 stiku baksund: Fyrstur varð
Jón D. Jónsson (Æ) á 1 mín. 25,2
sek. (nýtt Isl. met), annar Magnús
Pálsson 1 mfn. 36 sek., þriðji Fórð-
ur Guðmundsson 1 mín. 46,2 sek.
100 stiku stakkasund: Fyrstur
varð Haukur Einarsson (K. R.) á 2
mín. 30,9 sek., þar næstir urðu:
Helgi Schiöth (K.A.) 2 mín 48,2 sek.,
Sigurður Runólfsson (K R.) 2 mín.
52,4 sek,, Kári Sigurjónsson (Þór)
2 mín. 58,8 sek.
Þriðjudaginn 10. júní;
Fyrst var keppt í 4 0 0 stiku
bringusundi og urðu úrslitin þessi:
Þórður Ouðmundsson (Æ) var fyrst-
ur á 7 mín. 5 sek., þar næstir urðu:
Magnús Pálsson (Æ) 7 mín. 20,6
sek., Ögmundur Guðmundsson (Á)
7 mín. 29,6 sek., Stefán Jónsson (Á)
7 mín. 32,6 sek., Siguröur Runólfs-
son (K.R.) 7 mín. 55, 7 sek.
1500 stiku sund (frjáls aðferð):
Úrslit urðu þau að fyrstur varð
lónas Halldórsson (Æ á23mín. 10
sek., þar næstir urðu: Hafliði Magn-
ússon (Á) 26 mín. 11,5 sek., Sigurð-
ur Runólfsson (K.R.) 30 mín. 47,8
sek., Haukur Einarsson (K.R.) á 30
mín. 58 sek.
Slðan sýndu sundmennirnir sund-
knattleik.
Um morguninn syntu þeir Hauk-
ur Einarsson og Sigurður Runólfs-
son, báðir frá (K R ), yfir Oddeyrar-
álinn. Synti Haukur það á 19 mín.
8 sek., en Sigurður á 20 mín. 2 sek.
Miðvikudaginn 11. þ. m. reyndi
sundkongurinn, Jónas Halldórsson,
að setja nýtt ísl. met í 100 st. sundi
og tókst það vel. — Synti hann
það 1 mín. 9,8 sek. (gamla metið
var 1 mín. 12,3 sek.).
Bæjarstjórnin bauð sundgörpunum
út til Dalvíkur þá um daginn. Var
farið í bílum og létu gestirnir hið
bezta af förinni.
í gærmorgun héldu Reykvíking-
arnir aftur heimleiðis, hinir ánægð-
ustu yfir komunni hingað. —- Hefir
Ben, G. Waage beðið blaöið að
flytja Akureyrarbúum beztu þakkir
sundmannanna, í S. í. og sjálf síns
fyrir viðtökurnar. — Og Akureyri
þakkar komuna.
SKANDIA-
mótorinn hefir nú lækk-
að í verði, en jafnframt
veriö endurbættur.
Allar nánari upplýsingar
hjá undirrituðum umboðs-
manni verksmiðjunnar.
Tómas Björnsson.
AKUREYRI.
ÍSLKNDINGUR
3
Allt til ntgerflarinnar
á einum og sama stað, —
Veiðarfæri og annað, er að útbúnaði skipa lítur.
Vistaforða skipa
hverrar tegundar, sem fáanleg er í bænum, af-
greiðum við fljótt og að öllu eftir óskum
kaupandans.
Reynið viðskiptin, — það mun bæta hag yðar.
Verzlunin PARIS, Akureyri.
Úr heimahðgum.
Kirkjan. Messað Lögmannshllð kl. 12
á sunnudaginn. Og Akureyri kl. 2. —
Jóhann Hannesson talar.
Sfldveiöln hefir gengið treglega enn sem
komið er. — Þó eru nokkur skip búin að
fá á annað þús. mál. — Öll síld, sem
veiðst hefir til þessa, hefir farið í bræðslu.
Nýlr bankaseðlar. Landsbankinn er nú
að gefa út nýja bankaseðla, 5 kr., 10 kr.,
50 kr. og 100 kr. — Eru 10 krónu seðl-
arnir komnir í umferð en hinir koma i
umferð þegar þörf gerist. — Eru seðlar
þessir sagðir að mörgu leyti fegurri og
vandaðri en hinir gömlu seðlar, og þess
gætt, að litur ségi til, svo engin hætta sé
a að ein tegund verði tekin fyrir aðra í
uúsgripum.
SjóklæOi
er bezt að kaupa hjá
okkar. Mélaðir sjó-
stakkar nýkomnir. —
Verzl. París.
(Vefnaöarvörudeildin).
HATTAR
alveg nýkomnir.
Meö linum og bryddum
börðum,
Ljósir, gráir, dökkir.
Séra Hálfdán Guðjónsson, vigsiubiskup
°g sóknarprestur á Sauðárkrók, hefir feng-
>ð lausn frá embætti sakir heilsubilunar.
Sæmundur Bjarnhéðinsson yfiriæknir við
holdsveikraspítalann á Laugarnesi, hefir
samkv. eigin ósk fengið lausn fráembætti
°g ætlar að flytja til Danmerkur og setj-
ast þar að. — Hefir Maggi Júl. Magnús
verið gerður að yfirlækni í hans stað.
Málaflutnlnasskrlfstofu hefir Ragnar
Bjarkan opnað á Siglufirði.
A0 Pæreyinoar fórust í vor fyrir Suður-
landi með skipunum „Neptun" og »Nols-
°y«. — Er það fyrst nú nýlega að menn
fengu
vissu fyrir því að skipin höfðu
farist. —
Gánardægur. Nýlega er látin að Hjarð-
arholti í Glerárþorpi ekkjan Þórkatla Jóns-
dóttir, rúmlega sextug að aldri. — Þann
Þ.m. andaðist að heimili sínu, Odda-
gotu 1 hér í bænum, Anna Davíðsdóttir,
88 ára að aldri. Hún var ekkja eftir Egg-
ert Kristjánsson fyrrum bónda að Glerá í
*^r*klingahlíð.
Skdlaferðlr. Fjörutiu og fimm börn, er
nkn fullnaðarprófi við barnaskóla Hafna-
larðar í vor, komu hingað á þriðjudaginn
'lleiðis að sunnan. Var með þeim skóla-
újórinn, Quðjón Quðjónsson, og tveir af
ennurnm skólans. — Gert er ráð fyrir
Vlku ferðalagi. — í fyrrakvöld kom hing-
e*nn bekkur úr Austurbæjarskóla
*'eykjavíkur. Eru þau börn yfir 20 að tölu
fararstjóri er kemiari þeirra, Aðalsteinn
tiril(Sson.
jg^H^UrbrúðkauB eiga Aaustmars-hjónin
. • h.m. en ekki 16. þ.m. eins og stóð í
IÞýðumanninum síðast,
. Kmll Walters, vestur-íslenzki listmálar-
ln, dvelur hér á landi um þessar mundir,
^ann hefir undanfarið verið að mála í
laa 'orn,sstaðaskógi og viðar á Austur-
s ’en er nú kominn upp í Mývatns-
+ ,1' ~~ Bjarni Björnsson skopleikari er í
yl8d með honum.
Le f A. efnir til skemmtifarar í
hl yn'ngshóla laugardaginn 14. júlí n. k.
S - 'nn*,eSh Þorvaldur Stefánsson, B.
lýsi ’ SCf um f°r'na °fi gefnr allar upp-
ngar um hana.
Verzl, Parfs.
(Vefnaðarvörudeildin).
Háraösmót verður haídið við sundlaug-
ina í Svarfaðardal á sunnudaginn kemur,
og hefst kl. 1 e. h. Móti þessu helir verið
frestað þar til nú vegna jarðskjálftanna.
Skemmt verður með ræðuhöldum, íþrótt-
um og hljómleikum. Ekki er ólíklegt að
héraðsmenn víðsvegar að fjölmenni á þetta
möt, ef veður verður gott, þar sem þetta
er fyrsta gleðisamkoman í Svarfaðardal
eftir ógnir jarðskjálftanna i vor.
Zíon. Jóhann Hannesson krisniboðsnemi
er nýkominn til Akureyrar frá Noregi, og
dvelur hér nokkra daga. Hann heldur
samkomu í Zíon í kvöld kl. 8,30 og
sunnudaginn á sama tíma. — Einnig
heldur hann barnasamkomu kl. 10 f. h. á
sunnudaginn.
Regnkápur,
karlm., kvenna og
barna í stóru úrvali.
Rykfrakkar,
karlm. frá kr. 28,00.
Stormstakkar,
drg. og karlm. frá
kr. 4,7 5.
Brauns Verzlun
Páll Sigurgeirsson.
Gjalddagi
Islendings
var 15. júní.
Tilkynning
frá Bifreiðastöð Steindórs, Reykjavík.
Möfum fastar áætlunarferðir frá Akureyri alla
fimmtudaga og sunnudaga. Frá Reykjavík alla
þriðjudaga og föstudaga- Afgreiðsla okkar á Ak-
ureyri er á Bitreiðastöð Oddeyrar, (sími 260).
Akið í hinunt þægilegu bifreiðum Ste&ndórs.
Bifreiðastðð Steindúrs.
Barnaleikvöllurmn á Oddeyri
opinn daglega fram til 10. sept. n. k„ á virkum dögum
kl. 9 — 12 f. h. og Ú/s—7 e. h., á sunnudögum kl. 5—7
síðdegis. Eftirlit barnaleikvallarins hafa þau systkinin Svaía
Stefánsdóttir kennslukona og Marino Stefánsson kennari,
Akureyri, 12. júlí 1934.
Bæjarstjórinn.
í Vaglaskóg.
Alla laugardaga kl 5
og kl. 7 e. h. Sunnu-
daga kl. 9 f. h. og
kl. 1 e. h.
Bifreiðastöð Akureyrar
Sími 9.
Til Mývatns.
Ferðir alla mánudaga
o^ laugardaga kl. 9 f. h.
Bifreiðastöð Akureyrar
Sími 9.
Til Dalvíkur
Sætaferðir í fólks- og
body-bílum næstk.
sunnudag kl. 9 f. h.
Akureyrar
Sími 9.
Vörubifreið
í úgætu lagi er til sölu,
gegn staðgreiðslu. Uppl. á
Nýju bílastöðinni. Sími2i8.
Verzl. NORÐURLAND
tekur að sér framköllun og kopier-
ingu. — Góö vinnal Fljót afgreiðsla.
Svendborg-ELDFÆRI
ofnar, eidavélar og þvottapottar, eru bezt
og lang ódýrust, er til lengdar lætur. —
Þeir sem láta byggja fyrir ákvæðisverð,
ættu að muna eftir að áskilja, að Svend-
borg-eldfæri séu sett í húsin. — Gljá-
steindar (email.) e / d av é 1 a r
frá Sv endborg, hvitar, bláar, brún-
ar, grænar, eru til svo mörgum tugum
skiftir i Akureyrarbæ. Full reynsla feng-
in fyrir ágæti þeirra og ending. Svend-
borg-eldfæri útvegar, með nálægt eins
mánaðar fyrirvara, frá þvi þau eru pöntuð
EOGERT STEFÁNSSON
Simi 270.------Akureyri.
Stökur.
Samvinna og samkeppni.
Bjartur sem dagur af blikandi ljósi
bændafólks hagur af samvinnu er;
heiítugur slagur heljar aS ósi,
heimsku og laganna skakkaföll ber.
Bílreiðar og helreiðar.
Allstaðar blístrandi bílar,
belgjandi sjóðandi eim;
hjólaðir hernaðar-fílar
hendast um rykugan geim.
F. B. A.
Bezt að auglýsa
í „íslendingi".