Fréttablaðið - 01.07.2011, Blaðsíða 30
Ber að neðan
M ér barst fyrirspurn um umfjöllun um líkamshárvöxt karla og kvenna. Í dag virðist hárleysi hins vegar vera hinn nýi staðall.
Taminn hárvöxtur er tískubóla sem hefur líklega ekki farið framhjá
neinum, sérstaklega ekki sundlaugargestum sem súpa hveljur yfir hár-
leysi annarra baðgesta. Ég fæ reglulega fyrirspurnir um hárvöxt og oftar
en ekki vill sá sem spyr að ég fordæmi háreyðingu. Háreyðing er ekki
nýtt fyrirbæri en vitað er að Egyptar til forna stunduðu hana og fjar-
lægðu þá öll hár á líkamanum, sem var gert í tengslum við aukið hrein-
læti og ákveðnar trúarathafnir. Það var svo í byrjun tuttugustu aldar
sem snyrtivörufyrirtæki fóru að auglýsa rakvélar fyrir konur og hvöttu
þær til að fjarlægja hár á fótleggjum og í handarkrika. Þá varð til teng-
ingin milli háreyðingar og hreinlætis og í kjölfarið þóttu líkamshár óað-
laðandi og engin dama vildi láta nappa sig með loðna leggi. Loðin kona
var því talin sóðaleg og óaðlaðandi en sú hárlausa þótti hrein og fín.
Iðkendur sumra trúarbragða fjarlægja einnig hár í tengslum við viss-
ar trúarathafnir. Háreyðing á sér því langa og flókna sögu og er gjarnan
tengd við hreinlæti þó í seinni tíð virðist hún tengdari útliti. Í dag virð-
ist takmarkaður hárvöxtur algengari en náttúrulegt útlit. Þá
virðist háreyðing ekki vera kynbundin því nýlegar rann-
sóknir benda til þess að bæði kynin stundi reglulega
háreyðingu víða á líkamanum. Karlar sem stunda hár-
eyðingu við kynfæri finnst það gera kynfæri sín meira
aðlaðandi. Konur gera það hins vegar frekar vegna
hreinlætis. Útbreiðsla kláms hefur eflaust aukið á
vinsældir háreyðingar við kynfæri, snyrtistofum til
mikillar ánægju. Háreyðing á kynfærum getur þó
haft vandkvæði í för með sér vegna sýkingarhættu
og óþæginda vegna inngróinna hára.
Þeir hárlausu hafa greint frá því að þeim finnist
kynlífið betra svona hárlaus. Það má rekja til þátta
eins og líkamsímyndar, en sá sem er ánægður með
líkama sinn er oft öruggari í kynlífi. Þá má einnig
skoða háreyðinguna út frá þægindum; snyrt kyn-
færi geta til dæmis auðveldað munnmök. Sitt sýn-
ist hverjum í þessum málum en mér finnst þreyt-
andi að draga fólk í dilka vegna hárvaxtar. Hvatinn
getur verið einstaklingsbundinn og því þarf hárvöxt-
ur ekki að segja neitt um þinn innri mann. Sumir
fylgja hjörðinni, sama hvort það tengist háreyðingu
eða öðru. Aðrir gera það sem þeim sýnist og þegar
þeim sýnist og eru loðnir suma daga en hárlausir
aðra. Af hverju þetta skiptir fólki í tvær fylkingar
skil ég ekki. Hverjum er ekki sama hvernig næsti
maður háttar sínum hárvexti? Þetta eru jú bara hár
og það hvort kynfærið sé nauðasköllótt, skreytt
með þrumumynstri eða með náttúrulegar krull-
ur segir ekkert um viðkomandi, hvorki félagslega
né kynferðislega.
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um
umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
H
unter-fyrirtækið hefur framleitt stígvél allt
frá árinu 1856 og er enn einn vinsælasti
stígvélaframleiðandinn í Bretlandseyj-
um. Stígvélin frá Hunter voru algeng sjón á
fótum gesta Glastonbury-tónlistarhátíðarinn-
ar í ár eins og fyrri ár.
Meðal aðdáenda stígvélanna má nefna ofur-
fyrirsæturnar Kate Moss og Lily Donaldson, leik-
konuna Emmu Watson, plötusnúðinn Alexu Chung,
gleðipinnann Pixie Geldof og fótboltahjónin Co-
leen og Wayne Rooney. Í ár var vinsælt að klæðast
Hunter-stígvélunum við stuttbuxur af ýmsu tagi og
skyrtur eða slitna stuttermaboli. - sm
Aðdáandi Kate Moss er mikill aðdáandi
Hunter-stígvélanna og hefur klæðst þeim á
Glastonbury ár eftir ár.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hunter-stígvélin slá enn og aftur í gegn:
Stígvélaæði á
Glastonbury
Fallegar leðurtöskur
frá Rakel Hafberg
Rauðar, svartar,
hvítar, gráar og
dökkbláar. Verð
29.900 kr.
VOGAR
vesti úr alpaca og ull.
Stærði S-L.
Verð kr. 24.300
SKARÐSHLÍÐ
peysa úr mjúkri
merino ull.
Stærðir S-L.
Verð kr. 23.500
BARÐASTAÐIR
er glæný peysukápa úr
íslenskri ull.
Stærðir S-L.
Verð kr.36.500
Flott hönnun
Farmers Market
Eyjarslóð 9
www.farmersmarket.is
GuSt
Bankastræti 11
101 Reykjavík
S: 5517151
www.gust.is
Irregular Choice – Tutti
Frutty
Litríkir og skemmtilegir skór.
Margar týpur og litir, verð
frá 22.900 til 28.400 kr.
BORG
er nýr prjónajakki
úr 100% merino ull
Stærðir S-L.
Verð kr.36.800.
Fæst einnig í brúnu.
Kjóll úr hreinu silki sem
fæst í silfurgráu og
svörtu, aðeins nokkur
eintök gerð í hvorum lit.
Verð 39.800 kr
www.gust@gust.is
Kynning
Rakel Hafberg Collection,
Laugavegi 37
www.facebook.com/
rakelhafbergcollection