Fréttablaðið - 01.07.2011, Page 51
FÖSTUDAGUR 1. júlí 2011 39
Opna Örninn
Golfverslun/Cleveland
- Srixon mótið
Texas Skramble 2. júlí
Golfklúbbur Selfoss.
Skráning á golf.is
Golfklúbbur Selfoss
Sími 482-3335
Email: gos@heima.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
4
94
43
0
2/
10
NÁTTÚRULEGA
FÓTBOLTI Breskir miðlar greindu
frá því í gær að Manchester City
væri við það að festa kaup á þeim
Samir Nasri og Geal Clichy frá
Arsenal.
Mörg félög hafa áhuga á Nasri
sem fór á kostum með Arsenal
síðasta vetur. Samningur Nasri
við Arsenal rennur út næsta
sumar. Ef hann vill ekki skrifa
undir nýjan samning getur Ars-
enal lítið annað en selt hann í
sumar.
Það yrði mikið högg fyrir Ars-
enal að missa þessa tvo leikmenn
og þá sérstaklega Nasri.
Svo segja fjölmiðlar að Cesc
Fabregas sé á leið til Barcelona
eftir allt saman. Arsene Wenger,
stjóri Arsenal, þarf því að fylla
stór skörð gangi þessar sölur
eftir. - hbg
Arsenal að missa menn?
Nasri og Clichy
á leið til City?
SAMIR NASRI Var í aðalhlutverki hjá
Arsenal síðasta vetur.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Eucharia Uche, þjálf-
ari kvennalandsliðs Nígeríu í
fótbolta, gæti átt yfir höfði sér
háa sekt og jafnvel keppnis-
bann vegna ummæla hennar um
lesbískar fótboltakonur á HM í
fótbolta.
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, mun bregðast við ummæl-
um þjálfarans á allra næstu
dögum en Uche sagði á fundi með
fréttamönnum að allt væri rangt
við það að vera samkynhneigður.
Tatjana Haenni, talsmaður
FIFA, segir við AFP fréttastof-
una að FIFA muni bregðast við
ummælum þjálfarans. Uche
hefur vakið athygli fjölmiðla á
þeirri staðreynd að frá því hún
tók við liðinu árið 2009 hafi hún
ekki valið lesbíur í sitt lið.
„Lesbískir leikmenn hafa verið
stórt vandamál í okkar liði,“ sagði
Uche meðal annars en Nígería
tapaði 1-0 gegn Frökkum í fyrsta
leiknum á HM. - seth
Landsliðsþjálfari Nígeríu:
Ekki hrifin af
lesbíum
FÓTBOLTI „Þetta var alls ekkert sér-
stakur leikur hjá okkur en það er
stundum gott að vinna án þess að
spila vel,“ sagði Rúnar Kristins-
son, þjálfari KR, við Fréttablaðið
eftir leikinn.
KR-ingar lentu undir snemma í
leiknum en þeir létu það ekki á sig
fá og voru yfir, 2-1, áður en fyrri
hálfleikur var allur.
Þrátt fyrir nokkra yfirburði í
síðari hálfleik tókst KR aðeins að
bæta við einu marki áður en yfir
lauk. Góður sigur engu að síður
staðreynd og þarf mikið til að liðið
komist ekki áfram í næstu umferð.
„Færeyingarnir mættu grimm-
ir til leiks eins og við bjuggumst
við. Við vorum svolítið værukær-
ir og töpuðum boltanum illa oft á
tíðum. Vörnin var sem betur fer
á tánum þannig að það var ekki
beint mikið að gera hjá Hannesi í
markinu,“ sagði Rúnar, en var van-
mat hjá hans liði í ljósi þess að fær-
eyska liðið er í næstneðsta sæti í
færeysku deildinni?
„Nei, ég vil ekki meina það. Við
fórum vel yfir alla þá hluti. Maður
verður samt stundum værukær
þegar maður mætir liði sem maður
telur fyrirfram að maður eigi að
vinna. Við töldum okkur vera
sterkari.“
Rúnar vill ekki lýsa því yfir að
KR sé komið áfram þó svo staða
liðsins sé augljóslega góð.
„Það má kannski segja að við
séum komnir með annan fótinn og
tvær tær í viðbót í næstu umferð.
Þeir þurfa að vinna okkur 3-0 á
okkar heimavelli og það er ekki
auðvelt.
Það má samt aldrei gleyma því
að menn verða að hafa fyrir hlut-
unum. Svo getur allt gerst í fót-
bolta. Við gætum lent í því að fá
rautt spjald í byrjun leiks og það
er hættulegt. Ég er samt nokkuð
bjartsýnn.“
- hbg
KR í góðri stöðu í Evrópudeild UEFA eftir 1-3 sigur gegn ÍF Fuglafirði í Færeyjum:
Komnir inn með annan fótinn
ALLT LOKAÐ Færeyingarnir komust sjaldan fram hjá Grétari Sigfinni og félögum í vörn
KR. MYND/JENS KRISTIAN VANG