Íslendingur - 14.01.1938, Side 3
ISLENDLNGUK
3
\
Það tilkýniiist að maðurinn minn,
Manases Quðjónsson,
andaðist að heimili sínu sunnudaginn 9, jan. Jarðarförin er ákveðin
að Ytri-Bægisá föstudaginn 21. s. m. kl.ll fyrir hádegi.
Barká 12. jan. 1938.
Aðalheiður Jónsdóttir.
Síldarverksmiðja
í Pórshöfn á
Langanesi.
Nú er mikið rætt og ritað um
byggingu nyrrar síldarverksmiðju,
oe hvar helzt hún eigi nú að
standa. Allir eru þeirrar skoðunar,
að hér á Norðausturlandi sé þörfin
mjög aðkallandi. Og eftir reynslu
með síldargöngur, ég vil leyfa mér
að segja frá ómunatiö, hefir aldrei
brugðist síld hér öðruhvorumegin
við Langanes. Enda er nú á Al-
þingi flutt frumvarp um stækkun
eða byggingu við Raufarhafnarveik-
smiðjuna. Lví skal ekki neitað, að
Raufarhöfn liggur mjög vel við,
þar sem, eins og áður er tekið
fram, að síldarmergð bregzt aldrei
hér á miðunum við Langanes. —
En þar sem á að reisa stóra síldar-
verksmiðju, eins og t. d. talað er
um á Raufarhöín, verða menn að
gera sér það ljóst, aö einhver skil-
yrði séu fyrir, að hið vinnandi fólk
geti haft möguleika á aö lifa sam
kvæmt kröfum tímans, fái t. d.
nægilegt land til ræktunar, svo
fjöfskyldumenn geti í sínum frí
stundum frá hinni aröbæru verk
smiðjuvinnu, búið í haginn fyrir
sig og sina afkomendur, með rækt-
un landsins, svo þarna megi upp-
ala þjóðfélagsþegnana samkvæmt
þekkingu nútímans. — Því það er
þegar vitaö, að uppeldi barna er
ómögulegt, þar sem ekki er gnægð
mjólkur, eu á þvi er alltaf skortur,
þar sem ræktun er lítil eða engin,
eins og t. d. yrði tilfellið þar á
Raufarhöfn. Lví ræktunarmöguleikar
eru þar mjög svo torsóttir. Líka
þurfa aö vera góð skilyrrti til raf
lýsingar með vatnsafli. En á því er
algerlega skortur þar á Raufaihöfn.
Oliuknúnar vélar til þeirra hluta
eru of dýrar í rekstri. Enda ekki
sæmandi nútímamenningu í þessu
fossauðuga landi að láta þessa náð-
argjöf hinna æðri máttarvalda ó-
hagnýtta. Lá skyldi maður nú ætla,
að ekki mætti vanta gott og heil-
næmt neyzluvatn. Mér vitanlega er
þar á Rauíarhöfn mjög miklum
vandkvæöum bundið að leiða þang-
að vatn. Og dreg ég það í efa, að
það geti orðið það sem kallað er
heilnæmt og gott til manneldis, —
Höfnin eins og hún er veröur að
teljast sæmileg, þegar miðað er við
að nota hana aðeins yfir hásumarið.
Ló hefir nú reyndin orðið sú, að ef
þrálát austan eða norðaustan átt
hefir verið að sumrinu, sem oft á
sér staö, þá getur verið mjög
vont, og jafnvel ómögulegt að
komast inn gegnum sundið. Enda
komið fyrir í júlímánuði, að skip
hefir orðið að snúa frá og leita sér
lægis hér á Lórshöfn. En eftir að
inn er komið, er þessi litli pollur
mjög gott aídrep fyrir öllum veðr-
um, það sem hann nær. En hvtrgi
nærri íullnægjandi, eí þar ætti að
koma stór verksmiðja til viðbótar
þeirri sem fyrir er, eins og gert er
ráð fyrir í írumvarpi því um fimm
þúsund mála verksmiðju, sem þeir
flytja nú á Alþingi Jóhann Jósefsson
og Bjarni Snæbjörnsson. Enda er
það einkennandi, að allt eru það
Sunnlendingar, sein aö þessu frum
varpi standa. Lað mætti þó ætla, |
Ný síldarverksmiöju-
stjúrn.
Á síðasta Alþingi voru sam-
þykkt ný lög um Síldarverksmiðjur
ríkisins. — Með þeim hefir þjóðin
væntanlega losnað við einræði
Finns Jónssonar í síldarsölumálum.
í stjórn verksmiðjanna voru kosnir
hlutfallskosningu (samkvæmt nýju
lögunum) þeir: Sveinn Benedikts-
son og Jón Þóiðarson (Sigluf ) af
hálfu Sjálfstæðisflokksins, Þormóð
ur Eyjólfsson og Þorst. M. Jóns-
son af Framsókn og Finnur Jóns-
son af Alþýðufl.
7. þ, m. kom verksmiðjustjórnin
saman á fund í Rvík. Ákvað hún
þar að kaupa síld í verksmiðjurnar
föstu verði á næsta sumri eins og
tíðkast hefir undanfarið.
Forinaður stjórnarinnar verður
Þormóður Eyjólfsson, en fram-
kvæmdastjóri næstu 3 ár Jón
Ounnarsson, sem áður hefir verið
frainkv.stj. verksmiðjanna
Mannvalið hjá
Framsökn.
«Dagur« í gær lætur mikið af
því, hve gott mannval sé á lista
Eramsóknarmanna. Tekur hann til
dæmis, að annar inaður listans sé
þjóðkunnur gáfumaður og skáld.
(L br. min).
Fótt hagmælekan sé ekki öllum
gefin, munu flestir llta svo á, að
hún út af t'yrir sig hafi enga hag-
kvæma þýöingu fyrir bæjarstjórnina.
Fá hefði verið réttara að geta um
það, að 6. maður listans væri ágæt
lega syndur, því fátt er bæjarstjórn
inni nauðsynlegra en að geta fleytt
bæjarfélaginu á björgunarsundi yfir
ýmsa öröugleika, er það á við að
strlða, og sem Framsóknarflokkur-
mn þeíir lagt á þaö siðustu árin.
Z.
Læknavaktir. Samkv»mt samningum
við Sjúkrasaml. Akureyrar hefir Lækna-
félag Akureyrar skuldbundi'ð sig til að
liafa ávallt lækni á vakt á nóttu, frá kl.
8 að kvöldi til kl. 8 að morgni, og á
helgi- og sunnudögum. Sjúkrasamlagið
greiðir aðeins 3/4 læknishjálpar á þess-
um tíma og aðeins þeim lækni, sem þá
hefir vakt, nema sé um slys að ræða.
Þar sem ekki koma út blöð daglega í
bænum, þá er ekki Iiægt að tilkynna
jafnharðan hvaða læknir er á vakt. Fólki
er því bent á það, að listi yfir vaktirnar
liggur ávallt frammi i báðum apótekun-
um og á símastöðinni, og er því þar
alltaf hægt að fá upplýsingar .— Fólk
athugi ennfremur að tilkynna skal lækni
fyrir kl. 4 e. h. óskist heimsókn þann
dag.
að Norðlendingar væru koslum
Raufarhafnar eins kunnugir. — Og
væri rétt í því sambandi, að benda
á samþykktir íjórðungsþingsins, sem
haldið var á Akureyri 21.—23. nóv.
s.l, og þar sem komnir voru sam
an útgerðarmenn úr hinum ýmsum
verstöðvum þar við Eyjafjörð og
víðar. —
Framh.
Marinó Qlason.
FfJÉTTIR.
I.O.O.F. = 1191149 = 9V„ = O
Kirkjan: Messað í Akureyrar-
kirkju næstk. sunnud. kl. 2 e. h.
Sjálfstæðfskvennafé/. ,Vörn'
heldur fund í bæjarþingsalnum kl. 3
s. d. 16. þ. m. Áríðandi að allar
félagskonur mæti,
Guðsþjónustur í Grundar-
þingaprestakalli:
Munkaþverá suunudaginn 30. jan.
kl. 12 h. d. Möðruvöllum sunnud.
6. febr. kl. 12 h. d.
Dánardægur. S. 1. sunnudag
andaðist aö lieimili sínu, Barká í
Hörgárdal, bóndinn þar, Manases
Guðjónsson Manasessonar, Bana-
mein hans var lungnabólga.
Aða/tundur íþróttafél, »Fór«
vetður haldinn í Skjaldborg n. k.
sunnudag. — Nánar auglýstur með
götuauglýsingum.
Fjá rni a/aráðaneytið, heíir
skipað í ríkisskattanefnd: Jónatan
Iiallvarðsson, Gunnar Viðar og Pál
Zophoniasson.
Leiðrétting í fréttapistli um
bjónaefni í síðasta tbl. >ísl.« var
slæm villa, sem lesendur eru beðnir
að athuga. Far stóð: Baldur Guð-
mundsson, en átti að vera Baldvin
Ásgeirsson.
Hjá/præðisherinn. Sunnud. kl.
11 bænasamkoma, kl. 2 sunnudaga-
skóli, kl. 8,30 opinber samkoma.
Frú Adjutant Överby frá Reykjavík
stjórnar.
^Dronning Alexandrine«
kom hingað frá Reykjavík í fyrra-
dag, Er það fyrsía ferð frá Rvík
síðan nokkru fyrrir jól og kom þv(
með henni nál. 3ja vikna foröi af
dagblaðapósti. Lltur ekki út fyrir
aö mikið tillit sé tekiö til höfuðstaö-
ar Norðurlands hjá þeim, er ráöa
yfir strandferðunum, og er almenn
óánægja vöknuð yfir því hér í bæn-
um. —
Fór skipið aftur héðan kl.í 9 í
morgun. Meðal farþega voru: Jón-
as Fór og frú og Jakob Kvaran
kauprn., öll á leið til útlanda.
FRANSKA STJÚRNIN
sagðiaf sér kl. 4 í morgun.
Einari M. Einarssyni
skipherra á »Ægi«
vikið frá starfi. —
Hinn 27. des. var Einari M. Ein-
arssyni skipherra á varöskipinu
»Ægi< vikið írá skipstjórn um stund-
arsakir, en í lians stað valinn
Jóhann P. Jónsson skipherra. Á-
stæðan fyrir frávikningu Einars er
talin vera óvarlegar tökur togara,
og hafi hæstaréttardómar nydega
gengið á móli honum.
Kventélagið »Voröld< heldur
skemmtisamkomu að Munkapverá
laugardaginn 15. janúar. Byrjar kl.
9 e. h, — Hlutavelta, söngur (kór
kvennaskólans á Laugalandi), upp-
lestur og dans. Haraldur spilar, —
AÖgangur 1 kr. — Yeitingar fást á
staðnum, —
Sauinanámskeið.
Við undirrilaðar höldum sauma-
námskeið, er hefst 15. þ. m. Kennt
verður frá kl. 1-4 og 4—7. Mán-
aðargjald 15 krónur,
Saumastofan Hafiiarstræti 29.
Dagga og Jóna.
Kenni
sömuleiðis teppaflos á saumavélar
tvisvar í viku frá kl. 8 — 10 e- m.
Dagga.
Oóð íbúð,
2—3 heibergi með nýtízku þægind
i;m óskast 14. maí. Tvennt full-
oiðið í heimili. — Upplýsingar í
síma 45. —
íbúðarhúsið
>LAMBHAGI< á Dalvík er til
sö!u. Hagkvæmir greiðsluskil-
málar. — Upplýsingar hjá
Steíáni Árnasyrii, Þingvalla-
stræti lö, Akuieyri, og Sig-
urði Þorgilssyni, Dalvík.
Kjósið D-iistann
Bæjarstjörastaðan á Akureyri
er laus til umsóknar og vetður veitt í næsta mánuði- — Nánari upp-
lýsingar fást á skriístofu bæjarstjóra og skal skila umsókhum þangað
fyrir 3. febrúar næstkomandi.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 13 janúar 1938.
Steinn Steinsen.