Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.08.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 10.08.2011, Qupperneq 22
MARKAÐURINN10. ÁGÚST 2011 MIÐVIKUDAGUR4 V I Ð T A L S ævar Freyr Þráinsson er svo að segja alinn upp hjá Sím- anum. Hann hefur unnið þar síðan hann útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Há- skóla Íslands árið 1995 og sinnt þar flestum störfum sem nöfnum tjáir að nefna. „Ég er búinn að kynnast nánast öllum hliðum starfseminnar,“ segir Sævar. „Ég hef komið að öllu sem snertir tæknimál, markaðsmál og þróun á þjónustu og tekið þátt í upp- byggingu á eiginlega öllu því nýjasta sem hefur komið fram síðustu fimmtán árin, til dæmis gagnvirku sjónvarpi og öðru sem fólki finnst það væntanlega ekki geta lifað án í dag eins og ADSL- sítengingu heima við. Góður maður orðaði það þannig við mig að ég hefði nánast komið inn í sendilsstarf og væri nú orðinn forstjóri.“ Sævar segist hafa skipt um starf innan fyrirtækisins nokkurn veginn á tveggja ára fresti, þangað til fyrir tæpum fjórum árum þegar hann sett- ist í forstjórastólinn. Hann vonast eðli- lega til þess að með því hafi tilflutning- unum lokið, kveðst ánægður í starfi og sérstaklega hafi verið gaman að taka þátt í því að markaðsvæða fyrirtæk- ið við einkavæðinguna um miðjan síð- asta áratug. LJÓST AÐ VIÐ HÖFUM BRUGÐIST Forstjóratíð hans hefur þó ekki bara verið dans á rósum. Nokkuð hefur farið fyrir Símanum og systurfélaginu Tæknivörum í fréttum síðustu misseri vegna lögbrota sem félögin hafa verið fundin sek um. Fyrst sektaði Sam- keppniseftirlitið Símann um 150 millj- ónir fyrir að brjóta gegn fjarskipta- fyrirtæki á Snæfellsnesi með því að hunsa skilyrði sem sett voru við sam- runa Símans og Skjásins og beita litla fyrirtækið aðgangshindrunum. Sú sekt var síðar lækkuð í 50 milljónir en Sím- inn er ósammála niðurstöðunni í því máli og hefur stefnt málinu fyrir dóm. Næst gerðu Skipti sátt við Sam- keppnisyfirlitið um greiðslu 400 millj- óna króna sektar fyrir samráð Tækni- vara, dótturfélags Skipta, og Hátækni á farsímamarkaði. Skiptum var gert að selja fyrirtækið og gekk salan í gegn í síðustu viku. Þá er ótalið brot Símans á Persónu- verndarlögum, sem Persónuvernd mat svo alvarlegt að því var vísað í lögreglurannsókn í fyrsta sinn í sögu stofnunarinnar. Það brot snerist um söfnun persónuupplýsinga viðskipta- vina Nova í því skyni að laða þá til við- skipta við Símann. „Því miður hafa komið upp mál þar sem við höfum brotið af okkur og við lítum svo á, alveg sérstaklega í einu máli, að þá höfum við hjá Símanum brugðist,“ segir Sævar, og vísar sér- staklega til síðastnefnda málsins. „Einmitt út af þessu máli og öðrum málum sem komið hafa upp erum við búin að fara gaumgæfilega ofan í allt hérna hjá okkur og niðurstaða okkar er sú að hér hafi einstaklingar ekki brugðist, hins vegar hafi ferlar fyrir- tækisins brugðist. Það braut enginn lög vísvitandi, hvort sem það voru sam- keppnislög, lög um persónuvernd eða fjarskiptalög,“ segir forstjórinn. AXLAÐI ÁBYRGÐ MEÐ ÞVÍ AÐ JÁTA LÖGBROT Til að bregðast við þessum málum hafi Síminn ráðist í átak sem hann viti ekki til að eigi sér hliðstæðu á Íslandi. „Við töldum mikilvægt að finna leið til að bæta ákveðna þætti í starfseminni og höfum þess vegna farið í gegnum umfangsmikið ferli núna síðustu mán- uðina þar sem við höfum líklega geng- ið lengra heldur en öll önnur íslensk fyrir tæki og sett í gang svokallaða samkeppnisréttaráætlun, sem er nokk- uð þekkt fyrirbæri erlendis og má líkja við eins konar vottun,“ útskýrir hann. Sævar segir að farið hafi verið yfir ferla og reglur fyrirtækisins, skil á milli heildsölu og smásölu skerpt og áhættustýring betrumbætt. Þá hafi hver einasti starfsmaður fyrirtækis- ins þannig fengið þjálfun í samkeppn- isrétti á námskeiðum sem hafi verið hugsuð til að lágmarka hættuna á að svona nokkuð endurtæki sig. „Við vild- um bara tryggja að allir starfsmenn fengju upplýsingar um það hvernig samkeppnislöggjöfin virkar: hvað má, hvað má ekki og hvað er á gráu svæði,“ segir Sævar. Spurður hvort hann hafi íhugað að axla ábyrgð á brotunum, einkum því sem nú sætir lögreglurannsókn, ÚR SENDLI Í FORSTJÓRA Á skrifstofu Sævars í höfuðstöðvum Símans í Ármúla hangir stærðarinnar mynd úr víðfrægum auglýsingum með því að segja starfi sínu lausu, í ljósi þess að einstaklingar hafi ekki brugðist heldur verkferlar fyrirtæk- isins, segir Sævar að hann hafi axlað ábyrgðina með því að viðurkenna lög- brotið. „Því að þegar málið kom upp var það alls ekki einfalt.“ Það hafi verið rannsakað af þremur eftirlitsstofnun- um, Persónuvernd, Samkeppniseft- irlitinu og Póst- og fjarskiptastofnun (PFS), og lögfræðingar hafi lengi tek- ist á um túlkun laganna. „Eftir að hafa legið yfir þessu á mörgum fundum tók ég þá ákvörðun að túlkun lögfræðinga PFS væri sú rétta og þar með sýndum við ábyrgð með því að viðurkenna lög- brot og setja í gang samkeppnisrétt- aráætlun.“ SAMRUNI VODAFONE OG TALS YRÐI ÁFALL Sævar segir þó erfitt að feta sig eftir sumum stígum samkeppnislöggjafar- innar, sérstaklega þeim sem snýr að misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Síminn hafi í gegnum tíðina verið með mikla markaðshlutdeild, og vegna þess hversu matskennt fyrirbæri hin svo- nefnda markaðsráðandi staða er hafi stærðin í raun staðið fyrirtækinu fyrir þrifum. „Við höfum lagt mikið upp úr því að fara eftir ábendingum Samkeppniseftirlitsins hvað það varð- ar. Við höfum opnað á fjarskiptakerfi okkar, fengið aðila inn á þau, eins og Tal í heildsölu og önnur smærri sem eru að byrja að fóta sig,“ segir hann. Markaðs- hlutdeild Símans hafi hins vegar farið minnkandi. „Samkeppnisstaðan er sú að hinir tveir stóru aðilarnir á mark- aðnum, Vodafone og Nova, hafa á sama tíma verið í mjög víðtæku tæknilegu samstarfi og í rauninni komið nánast fram sem einn aðili. Nú viljum við bara fá að keppa,“ segir Sævar. Nú stendur sameining Tals og Voda- fone fyrir dyrum og hún kemur Sævari einkennilega fyrir sjónir. „Það er mjög athyglisverð þróun, einmitt út af þessu sem ég sagði hér að fram- an. Megin fókus PFS og Samkeppnis- eftirlitsins síðustu árin hefur verið á að opna fjarskiptamarkaðinn og auka samkeppni. Þegar Tal varð hlutlaus aðili á markaði var það skref í þá átt,“ segir Sævar, og rifjar upp þegar sam- keppnisyfirvöld skikkuðu Teymi, aðal- eiganda Vodafone, til að selja frá sér Tal. „Núna, fimmtán mínútum síðar, er verið að tala um að sameina þetta,“ segir hann. „Ef þessi sameining verð- ur að veruleika og verður samþykkt af Samkeppniseftirlitinu lít ég svo á að það yrði mikið áfall fyrir þá stefnu sem hefur verið mörkuð á síðustu árum og þess vegna hef ég efasemdir um að svo verði.“ ROFAR TIL EFTIR STORMASÖM ÁR Síminn fór ekki varhluta af niður- sveiflu síðustu ára frekar en aðrir. „Fjárhagsstaðan er erfið eins og hjá öðru hverju fyrirtæki,“ segir Sævar. „Það sem hefur haft mestu áhrifin á okkur er að á sama tíma eru keppi- nautar okkar búnir að njóta ákveðinna björgunarpakka sem hafa haft gríðar- leg áhrif á markaðinn. Það er búið að afskrifa skuldir sumra þeirra og í kjöl- farið hafa þau beitt sér af mun meiri krafti á markaðnum,“ segir hann. Á sama tíma hafi erlendar skuldir Símans hækkað eins og við var að búast. „Enn þann dag í dag erum við samt í skilum með öll okkar lán og erum mjög stolt af því. Það er hins vegar ljóst að skuldabagginn hefur verið íþyngjandi fyrir reksturinn. Endurfjármögnunarferli fyrirtækis- ins er nú að fara í gang og á ég ekki Síminn hefur verið í kastljósi fjölmiðla vegna bolabragða á samkeppnismarkaði. Við þessu brást forstjórinn Sævar Freyr Þráinsson með því að senda hvern einasta starfsmann fyrirtækisins á námskeið í samkeppnisrétti. Í samtali við Stíg Helgason segir hann keppinauta Símans hafa fengið meðgjöf í bankakerfinu og efast um að frekari samþjöppun á markaðnum verði heimiluð. Nú viljum við fá að keppa Eftir að hafa legið yfir þessu á mörgum fundum tók ég þá ákvörðun að túlkun lögfræðinga PFS væri sú rétta og þar með sýndum við ábyrgð með því að viðurkenna lögbrot og setja í gang sam- keppnisrétt- aráætlun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.