Fréttablaðið - 10.08.2011, Page 32

Fréttablaðið - 10.08.2011, Page 32
10. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR20 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar okkar, bróður og barnabarns, Sindra Dags Garðarssonar Jörundarholti 202, 300 Akranesi, sem lést á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins föstudaginn 24. júlí. Starfsfólki Barnaspítalans, Rjóðurs, skammtímavistunar í Holti, sérdeildar Brekkubæjarskóla og öllum þeim sem hafa annast hann í gegnum árin viljum við þakka einstaka umönnun og umhyggju. Kærar þakkir. Garðar Garðarsson Guðleif Hallgrímsdóttir Guðmundur Gestur Dagný Björk Hallgrímur Hafliðasson Sigurbjörg Þórðardóttir Dagný Guðmundsdóttir Elskuleg móðir okkar, dóttir, systir, tengdamóðir, mágkona, frænka og vinkona, Katrín Ingimarsdóttir Bugðulæk 16, Reykjavík, áður til heimilis að Hjarðarlandi 6, Mosfellsbæ, andaðist á fallegasta degi sumarsins, sunnudaginn 7. ágúst 2011 á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, í stórum faðmi fjölskyldu og vina. Ingibjörg Kristín Halldórsdóttir V. Ester Straumberg Halldórsdóttir Kristinn Ingi Halldórsson Ingimar G. Jónsson Vigdís Ester Eyjólfsdóttir systkini, makar og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, Írisar Sigurbjargar Sigurðardóttur Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun og hlýjan hug. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hafsteinn Ágústsson. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Sigurðar Sveinssonar frá Góustöðum, Hlíðarvegi 1, Ísafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fyrir frábæra umönnun. Gerður Pétursdóttir Guðríður Sigurðardóttir Samúel Einarsson Sigrún Sigurðardóttir Kristinn Halldórsson Geir Sigurðsson Edda Björg Kristmundsdóttir Kristjana Sigurðardóttir Gunnlaugur Gunnlaugsson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra eigin- manns, föður, afa og bróður, Hólmsteins Pjeturssonar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heimaaðhlynningar og líknardeildarinnar í Kópavogi. Hallfríður Einarsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, Geirlaug Filippusdóttir Kaupvangi 43, Egilsstöðum, lést á heimili sínu laugardaginn 6. ágúst. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 13. ágúst kl. 14.00. Sigurður Filippusson Soffía Ívarsdóttir Andrés Filippusson Magnús Filippusson Stefán Filippusson Sunneva Filippusdóttir Torfi Matthíasson Ragnhildur Filippusdóttir Kristján Helgason og systkinabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Pálína Sveinbjörg Andrésdóttir Hrafnistu Reykjavík Lést þann 4. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 16. ágúst kl. 13.00. Davíð Garðarsson Gerd Garðarsdóttir Hjörtur Pálsson Ragnhildur G. Hermannsdóttir Ólöf Ingibjörg, Jón Garðar, Guðlaugur Magni, Davíð Jóhann, Páll, Andrés Brynjar, Unnur Ósk, Birgir Páll, Hermann Jakob og langömmubörn. Einleikjahátíðin, Act alone, verður haldin áttunda árið í röð dagana 12. til 14. ágúst. Hátíðin verður ekki eingöngu á Ísafirði held- ur einnig á Hrafnseyri í Arnar firði. Dagskrá Act alone 2011 er fjölbreytt. Boðið verður upp á fjölmarga innlenda leiki og einn erlendan gesta- leik. Sá leikur er frá Nor- egi og nefnist The Whole Caboodle með leikkonunni Söru Margrethe Oskal og er opnunarsýning Act alone. Listakonan er Sami og hefur verið að vinna með eigin sagnaarf í sinni list. Sýning- in er á ensku og hefur verið sýnd víða um heim. Átta innlendir einleikir verða á dagskrá Act alone í ár. Nýjasti einleikurinn er Skjaldbakan með Smára Gunnarssyni sem verður sýndur á fyrsta degi Act alone og einnig mun prins- essan á Bessastöðum koma í opinbera heimsókn á Ísa- fjörð. Nemendur í Leik- félagi Flensborgarskóla hafa verið að vinna með ein- leikjaformið síðustu misseri og munu sýna úrval stuttra einleikja. Á öðrum degi Act alone verða þrír einleikir sýnd- ir og hefst dagurinn með leiknum Beðið eftir gæsinni eftir Ásgeir Hvítaskáld. Ragnheiður Bjarnason sýnir dansverkið Kyrrja og Lilja Katrín Gunnarsdóttir flytur leik sinn Mamma ég!. Einnig verður opin æfing á einleiknum Hvílíkt snilld- arverk er maðurinn! sem verður frumsýndur í haust með leikaranum Sigurði Skúlasyni. Á lokadegi hátíðarinn- ar flyst dagskráin yfir á Hrafnseyri í Arnarfirði. Þar verður sýndur sögulegi einleikurinn Bjarni á Fönix og hátíðinni lýkur síðan með einleiknum Jón Sigurðsson strákur að vestan sem var sérstaklega saminn í til- efni af 200 ára afmæli þjóð- hetjunnar. Dagskrá Act alone 2011 og allar upplýs- ingar um hátíðina má finna á heimasíðunni www.acta- lone.net. Aðgangur að öllum sýning- um á Act alone er ókeypis. Einstakir einleikir á Ísafirði MAMMA ÉG! Lilja Katrín Gunnarsdóttir mun flytja einleik á Act alone en einleikjahátíðin fer fram á Ísafirði um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Boðið verður upp á fræðslu- göngu um Grasagarðinn í Laugardal á morgun klukk- an 20. Þar verður skipulag og ný stækkun garðsins kynnt. Grasagarður Reykjavíkur var stofnaður 18. ágúst 1961 og fagnar því 50 ára afmæli í ár. Garðurinn skipar stór- an sess í garðsögu Íslands og hefur þróast mikið á þeirri hálfu öld sem liðin er frá stofnun hans. Í upphafi voru safngripir hans aðeins 200 talsins á 700 fermetra svæði, en nú er Grasagarð- urinn rúmlega fimm hekt- arar að stærð og í honum um 5.000 tegundir plantna í átta safndeildum. Nýjasta viðbót garðsins er 2,4 hekt- ara stækkun á trjásafni, þar sem trjáplöntum er raðað saman eftir uppruna. Hugað er að nýjum safndeildum á nýja svæðinu, auk fjölbreyti- leikans í starfsemi garðsins. Hönnuður nýja trjásafns- ins, Margrét Sigurðardótt- ir landslagsarkitekt FÍLA og verkefnisstjóri hönnun- ar hjá umhverfis- og sam- göngusviði borgarinnar, sér um leiðsögnina. Þátttaka er ókeypis og að lokinni göngu verður boðið upp á piparmyntute. Mæting við aðalinngang klukkan 20. Plöntur og te í Grasagarðinum GRASAGARÐURINN Í LAUGARDAL Boðið verður upp á fræðslugöngu í garðinum á morgun. Símenntunarmiðstöð Eyja- fjarðar, SÍMEY, býður upp á fjölda spennandi námskeiða á hverri önn og er gott úrval lengri og styttri námskeiða í boði. Grunnmenntaskólinn er á meðal lengri námskeiða sem SÍMEY býður upp á í sept- ember, eða alls 200 klukku- stundir. Tilgangurinn er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms og auðvelda fólki að takast á við ný verkefni. Meðal náms- greina eru íslenska, enska, stærðfræði, sjálfstyrking, tölvur, verkefnavinna og tjáning. Þá er verið að skipuleggja tómstundanámskeið mið- stöðvarinnar og verða allar upplýsingar um námskeiðin komnar inn á á heimasíðuna www.simey.is í byrjun sept- ember. Allar frekari upplýsing- ar um námskeið og þjón- ustu SÍMEY eru veittar á skrifstofu miðstöðvarinnar í síma 460 5720 alla virka daga frá klukkan 8 til 16. Nám sem opnar fólki ýmsar dyr EITTHVAÐ VIÐ ALLRA HÆFI SÍMEY býður gott úrval námskeiða sem veita starfsréttindi eða rétt til náms á hærri skólastigum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.