Fréttablaðið - 10.08.2011, Side 42

Fréttablaðið - 10.08.2011, Side 42
10. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR30 sport@frettabladid.is ASHLEY THOMPSON , markvörður toppliðs Stjörnunnar, spilaði ekki með liðinu í gær þar sem að hún varð fyrir því að handleggsbrotna á síðustu æfingu fyrir leikinn. Hún spilar ekki meira með liðinu í sumar og þar sem Sandra Sigurðardóttir fær ekki félagsskipti frá Svíþjóð þá þurftu Garðbæingar að kalla á Ásu Dögg Aðalsteinsdóttur sem var hætt. FÓTBOLTI Jesper Holdt Jensen, danski miðjumað- urinn hjá Stjörnunni, fór á kostum í 5-1 sigri á Þór á sunnudaginn. Jesper skoraði eitt, lagði upp tvö og er leikmaður 14. umferðar að mati Frétta- blaðsins. „Mér fannst leikurinn einn af okkar betri í sumar. Við vildum halda áfram að spila fótbolta þrátt fyrir að vera manni færri allan síðari hálf- leikinn,“ sagði Daninn 23 ára sem hefur átt frá- bært tímabil með Garðbæingum. Jesper fór meiddur af velli í síðari hálfleik og er óttast að meiðslin séu alvarleg. „Ég teygði of mikið á hnénu og það snerist upp á það. Það er svo bólgið að það er ekki hægt að skoða það fyrr en bólgan er farin. Þangað til hvíli ég bara fótinn,“ sagði Jesper en þetta er í fyrsta sinn sem hann verður fyrir meiðslum á hné. Jesper segir töluverðan mun á fótboltanum á Íslandi og í Danmörku. Íslenskir knattspyrnu- menn séu óþolinmóðari en kollegar þeirra í Dan- mörku. „Í Danmörku er reynt að spila meira og menn eru þolinmóðari með boltann. Hérna er boltanum kýlt strax fram með löngum sendingum,“ segir Jesper. Hann segir Stjörnuna yfirleitt spila betur gegn andstæðingum sem vilja spila góðan fót- bolta. Skemmta sér mest í sófanum Jesper býr með vini sínum, landa og liðsfélaga, Nikolaj Hagelskjær Pedersen. Félagarnir eru báðir á láni hjá Stjörnunni út tímabilið frá danska félaginu Vejle en auk þess er Daninn Henryk Bødker markmannsþjálfari. Danska þríeykið þykir afar hresst samkvæmt einum íslenskum liðsfélaga þeirra. „Við pössum vel saman og njótum félags- skapar hvers annars. Við smullum saman frá fyrsta degi. Við Nikolaj þekktumst og Hendryk er frábær náungi,“ segir Jesper. Töluverður ald- ursmunur er á hinum ungu Jesper og Nikolaj og Hendryk sem er þrítugur en Jesper segir Hend- ryk vera ungan í anda. Jesper hefur nægan frítíma meðfram fótbolt- anum sem nýtist ekki alveg sem skyldi. „Okkur Nikolaj langaði mikið að fara út úr bænum og skoða landslagið. En í rauninni skemmtum við okkur mest í sófanum, slöppum af. Einstaka sinnum förum við út og njótum þess sem Ísland hefur upp á að bjóða.“ Jesper segir þá félagana hafa byrjað að spila golf en hann sé orðinn þreyttur á því að taka engum framförum. „Mér gengur ekkert að bæta mig þannig að ég vil ekki spila. Nikolaj geng- ur betur og langar að spila meira en ég vil það ekki.“ Sjaldséð mörk hjá Jesper Jesper er afar ánægður með liðsfélaga sína í Stjörnunni. „Liðsfélagarnir eru virkilega fínir. Ef við viljum gera eitthvað skemmtilegt eru þeir klárir og hjálpa okkur. Það er gott andrúmsloft og allir reyna að skemmta sér saman.“ Jesper skoraði glæsilegt mark í sigrinum á Þór og skoraði fallegt mark gegn KR fyrr í sumar. „Ég skora ekki oft. Mörkin tvö í sumar með Stjörnunni eru einu mörkin sem ég hef skorað síðustu tvö ár. Vonandi held ég áfram að skora,“ segir Jesper. Bæði mörkin komu með langskotum og með ólíkindum að skotviss leikmaður á borð við Jesper skori ekki oftar. Jesper er ekki tilbúinn til að lýsa því yfir að íslenskar stelpur séu fallegri en þær dönsku þótt fallegar séu. „Íslensku stelpurnar eru mjög fallegar og indælar. Það er þægilegt að tala við þær,“ segir Jesper sem viðurkennir að kvenfólkið hafi sýnt Dönunum áhuga. „Já, þær hafa sýnt okkur áhuga. Við höfum reyndar ekki farið út í töluverðan tíma en þær gerðu það í upphafi. Við fórum út með kærustum liðsfélaganna og vinkonum þeirra. Það var mjög skemmtilegt.“ Jesper heldur aftur til Vejle að tímabilinu loknu. Markmið hans er að stimpla sig inn í lið á Norðurlöndunum og jafnvel komast í Champions- hip-deildina á Englandi. Hann reiknar ekki með því að spila með Stjörnunni að ári. „Það þarf margt að ganga upp til þess að það gerist. Við verðum að bíða og sjá.“ kolbeinntd@365.is Stelpurnar hafa sýnt okkur áhuga Jesper Holdt Jensen, danski miðjumaðurinn hjá Stjörnunni, fór á kostum í 5-1 sigri Garðbæinga á Þór á sunnudaginn. Jesper skoraði eitt mark, lagði upp tvö og er leikmaður 14. umferðar að mati Fréttablaðsins. FAGNAÐ AÐ HÆTTI HÚSSINS Jesper fagnaði glæsimarki sínu gegn Þór ásamt Silfurskeiðinni, stuðningsmannasveit Stjörnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lið 14. umferðarinnarr Markvörður Óskar Pétursson Grindavík Varnarmenn Jónas Tór Næs Valur Mark Rutgers Víkingur Kristinn Jónsson Breiðablik Björn Daníel Sverrisson FH Miðjumenn Bjarni Guðjónsson KR Jesper Holdt Jensen Stjarnan Guðjón Pétur Lýðsson Valur Sóknarmenn Kjartan Henry Finnbogason KR Halldór Orri Björnsson Stjarnan Garðar Jóhannsson Stjarnan Pepsi-deild kvenna Þróttur-ÍBV 0-5 0-1 Vesna Smiljkovic (10.), 0-2 Kristín Erna Sigurlásdóttir (19.), 0-3 Berglind Björg Þorvaldsd. (70.), 0-4 Berglind Björg (80.), 0-5 Kristín (84.). Þór/KA-Valur 1-1 0-1 Laufey Ólafsd.(58.), 1-1 Mateja Zver, víti (90.). KR-Stjarnan 2-3 0-1 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (15.), 0-2 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (35.), 1-2 Rosie Malone-Povolny (62.), 1-3 Sjálfsmark (80.), 2-3 Freyja Viðarsdóttir (85.). Breiðablik-Grindavík 2-3 1-0 Ásta Eir Árnadóttir (7.), 1-1 Shaneka Gordon (23.), 2-1 Jóna Kristín Hauksdóttir (30.), 2-2 Gordon (65.), 2-3 Dernelle Mascall (84.) STAÐAN Í DEILDINNI: Stjarnan 13 12 0 1 38-12 36 Valur 13 9 2 2 35-11 29 ÍBV 13 7 3 3 26-9 24 Þór/KA 13 7 2 4 25-25 23 Fylkir 12 6 1 5 18-21 19 Breiðablik 13 5 2 6 23-25 17 Afturelding 12 3 2 7 13-26 11 KR 13 2 4 7 14-20 10 Grindavík 13 2 1 10 13-36 7 Þróttur R. 13 1 3 9 13-33 6 1. deild karla Fjölnir-Haukar 0-0 STAÐAN Í DEILDINNI: ÍA 15 14 1 0 42-6 43 Selfoss 15 10 1 4 31-14 31 Haukar 16 7 4 5 21-17 25 Fjölnir 16 6 6 4 24-25 24 Þróttur R. 15 7 2 6 20-27 23 BÍ/Bolungarvík 15 6 4 5 19-24 22 Víkingur Ó. 15 5 4 6 18-18 19 KA 15 5 2 8 17-26 17 ÍR 15 4 3 8 18-26 15 Grótta 15 3 6 6 10-19 15 Leiknir R. 15 3 4 8 20-21 13 HK 15 0 5 10 14-31 5 Upplýsingar um markaskorara eru að hluta til fengar frá vefsíðunni fotbolti.net. ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Fimm leikmenn Pepsi- deildar karla verða í leikbanni í næsta leik sinna liða en aganefnd KSÍ birti vikulegan úrskurð sinn í gær. KR-ingurinn Guðmundur Reynir Gunnarsson missir af bik- arúrslitaleiknum eins og frægt er orðið en þeir Arnór Sveinn Aðal- steinsson (Breiðabliki), Adam Larsson (Keflavík), Einar Orri Einarsson (Keflavík) og Baldvin Sturluson (Stjarnan) missa allir af leikjum í 15. umferð á mánu- daginn. Mesta athygli vakti þó fjögurra leikja bann FH-ingsins Guðnýjar Guðleifar Einarsdóttur. Hún var rekin út af í 8-0 sigri FH á móti sínum gömlu félögum í Sindra fyrir að skalla mótherja. - óój Pepsi-deild karla í fótbolta: Fimm í bann GUÐMUNDUR REYNIR GUNNARSSON Missir af leik ársins í Laugardalnum um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Stjörnukonur stigu stórt skref í átt að fyrsta Íslandsmeist- aratitli félagins með því að vinna 3-2 sigur á KR í Vesturbænum í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi. Stjarnan er nú með sjö stiga forskot á toppnum þar sem Vals- konur töpuðu stigum í 1-1 jafnt- efli við Þór/KA yfir norðan. Óvænt úrslit urðu í Kópavog- inum þegar nýliðar Grindavík- ur unnu sinn annan leik í röð og komust þar með af botninum. Þróttur er á botninum eftir 0-5 tap á heimavelli á móti ÍBV. Soffía Arnþrúður Gunnars- dóttir og Gunnhildur Yrsa Jóns- dóttir komu Stjörnunni í 2-0 í fyrri hálfleik í Vesturbænum en KR-liðið náði tvisvar að minnka muninn í eitt mark í seinni hálf- leiknum. Á endanum var það síðan sjálfsmark KR-kvenna sem skildi á milli liðanna og kom Stjörnunni í frábæra stöðu á toppi Pepsi-deildar kvenna. Mateja Zver tryggði Þór/KA stig á móti Val með því að jafna metin úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótartíma. Laufey Ólafsdóttir kom Val í 1-0 á 58. mínútu eftir stoðsendingu frá Hólmfríði Magnúsdóttur og það leit allt út fyrir að það yrði sig- urmark leiksins. Leiknir Ágústs- son, dómari leiksins, dæmdi hins vegar umdeilda vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótartíma þegar Manya Janine Makoski féll í teignum og Zver nýtti hana af öryggi. Grindavík var ekki búið að vinna leik í sumar fyrir sex dögum en fylgdi eftir sigri á Aftureldingu með því að vinna 3-2 sigur á Breiðabliki í Kópa- vogi. Blikar komust tvisvar yfir í leiknum en Shaneka Gordon jafnaði metin í tvígang og Der- nelle Mascall skoraði síðan sig- urmarkið sex mínútum fyrir leikslok. Nýliðar ÍBV unnu sinn fyrsta sigur í tæpan mánuð þegar Eyja- konur burstuðu Þrótt 5-0 í Laug- ardalnum. Þetta var fyrsti sigur ÍBV-liðsins síðan 12. júlí þegar liðið vann 1-0 sigur á Íslands- meisturum Vals. Vesna Smiljko- vic skoraði fyrsta markið og þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoruðu síðan tvö mörk hvor. - óój Íslandsmeistar Vals fengu á sig dýrkeypt jöfnunarmark fyrir norðan sem kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma: Stjarnan með sjö stiga forskot á toppnum LÍTUR VEL ÚT Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir og félagar í Stjörnunni eru komnar í frábæra stöðu á toppnum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG HANDBOLTI Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir, leikmaður ársins í N1-deild kvenna á síðasta tíma- bili og lykilmaður í Íslandsmeist- araliði Vals, fer ekki í atvinnu- mennsku til Ungverjalands eins og leit út fyrir. Forráðamenn ÉTV-Érdi VSE stóðu ekki veið gefin loforð og er Anna því komin heim og mun spila áfram með Valsliðinu. Þetta kom fram á heimasíðu Vals í gærkvöldi. - óój Anna Úrsúla Guðmunsdóttir: Fer ekki út

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.