Íslendingur - 05.01.1955, Blaðsíða 1
XLI. árg. Miðvikudagur 5. janúar 1955 1. ibl.
Fjflrlögin homin yfir 509
' v-vr;-SCIíe.2<S;R«J
ptá RætUvið^þingmann bæjarins^um ^
fjárveitingar til^ýmissa^mála
Eins og kunnugt er tók Alþingi reikningi um 495 millj. króna, en
sér jólaleyfi 17. desember, og mun í meöförum þingsins uröu niður-
ekki koma saman til funda að stöðutölur 516.5 millj. kr. og
nýju fyrri en í byrjun febrúar.
Allir þingmenn dvelja heima
þenna tíma. Hefir blaðið átt tal
við þingmann Akureyrarkaup-
staðar, Jónas G. Rafnar, og spurt
hann frétta af afgreiðslu fjárlag-
anna, en þau voru afgreidd réít
fyrir þingfrestun. En þingmaður-
inn á sæti í fjárveilinganefnd Al-
þingis.
Góð afkoma ríkissjóðs.
— Fjárlagafrumvarpið fyrir
1955 var lagt fram sem fyrsta mál
þingsins, segir þingmaðurinn. —
Þegar fjármálaráðherra fylgdi
frumvarpinu úr hlaði, gerði hann
í stultu máli grein fyrir afkomu
ríkissjóðs á árinu 1953, en það
hafði reynzt óvenjulega golt
tekjuár. Á rekstrarreikningi höfðu
tekjurnar reynzt um 510 milljón
króna, en höfðu verið áætlaðar
418.5 millj. kr. Útgjöldin höfðu
einnig verulega farið fram úr á-
ætlun, en greiðsluafgangur ársins
orðið tæpar 36.5 millj.
Þegar gengið var frá fjárlögum
fyrir árið 1954, íöldu ábyrgir a'ð-
ilar ekki fært að áætla tekjurnar
meiri en 443 millj., enda þótt þá
væri nokkurn veginn vitað, að
tekjur ársins 1953 mundu fara
mjög verulega fram úr áætlun. I
því sambandi var að sjálfsögðu
sérstakt tillit tekið til þess, að nf
fyrri árs tekjum voru a. m. k. 25
millj. króna vegna innflutnings á
vélum til áburðarverksmiðjunnar
og virkjananna, og .þá líka það,
að árið 1953 var að öðru leyli á-
litið sérstaklega golt tekjuár.
Nú er það vilað, að s.l. ár hafa
tekjur ríkissjóðs einnig orðið
meiri en nokkru sinni áður. Má
lelja líklegt, að tekjurnar fyrir s.l.
ár nemi alls um 550 millj. króna.
Ríkissjóður hlýtur því að hafa
verulegan rekstrarafgang eftir ár-
ið, og verður það sjálfsagt verk
efni Alþingis, er það kemur sam
an eftir þingfrestunína, að taka á-
kvarðanir um ráðslöfun tekjuaf-
gangsins. Hvert sem litið er, eru
þarfir fyrir fé til margvíslegra
framkvæmda.
Fjórlögin 1955.
A fjárlagafrumvarpinu voru
tekjurnar áætlaðar á reksturs-
gre.ðsluafgangur um 1 milljón.
Þingmaðurlnn sagðist engu vilja
spá um afkomu r.kissjóðs á þessu
ári, en kvaðst ielja margt benda
til þess, að innflutningur yrði
minni á árinu en veriö hefir und-
anfarið, sem stafaði af því, að
miklar vörubirgðir væru nú til í
landinu, en af því leiðir að sjálf-
sögðu minni tekjur í ríkissjóðinn.
Auknar íekjur
ón skatta- og tolla-
hækkana.
í sambandi við þá þróun, sem
verið hefir í ríkisbúskapnum, er
rétt að benda á það, að hin góða
afkoma ríkissjóðs er ekki fengin
með nýjum skatta- og tollahækk-
unura, heldur þvert á móti. Á s.l.
ári voru t. d. tollar lækkaðir á
sumum hráefnum til iðnaðar,
samþykkt var lækkun á tekjuskatti
einslaklinga að meðallali 26—
28% og tekjuskatti félaga um
20%. Þá var spanfé og vextir af
því gert skattfrjálst og fasteigua-
skaltur ríkissjóðs afhentur bæja-
og sveitafélögum iil ráðstöfunar.
%
Krafist aukins
sparnaðar.
Jafnl utan þings sem innan
hafa heyrzt raddir um aukinn
sparnað í rekstri ríkisbúsins. Má
segja, að ríkisútgjöldin séu orðin
nokkuð mikil, þar sem þau eru
komin yfir hálfan milljarð króna,
og því full ástæða til að gaum-
gæfa vandlega, hvort eða hvar
hægt er að draga úr þeim. En þeg-
ar verið er að tala um sparnað
hjá ríkinu, verður að gera ’ér
grein fyrir því, að ekki er nema
um tvær leiðir að ræða til að ná
verulegum árangri, annaðhvoit
að draga úr verklegum fram-
kvæmdum eða þá að bre^yta gild-
andi lögurn, eins og t.d. um
fræðslukerfið og tryggingarnar.
Þá er einnig margvísleg önnur
löggjöf, sem leggur greiðsluskyldu
á ríkissjóðinn. Það mun hafa ver-
ið á s.I. ári, að ríkisstjórnin skip-
aði sérstaka nefnd til þess að ann-
ast allsherjar athugun á útgjöld-
um ríkisins. Einnig að athuga,
hvaða leiðir væru helztar til að
koma í veg fyrir að ábyrgöir, sem
ríkið hefir tekið á sig samkvæmt
heimildum Alþingls, falli á
ríkissjóðinn. Þessi nefnd á að
semja álltsgerö, og eiga tillögur
hennar að geta legið fyrir, þegar
fjárlagafrumvarpið fyrir næsta
ár verður samið.
Fjárveitingar, sem varða
Akureyri sérstaklega.
Þá spurði blaðið þingmanninn
efiir fjárveitingum, sem sérstak-
lega vörðuðu Akureyri. Kvað
hann heildarframlag til hafnur-
málanna vera svipað og í fyrra.
Akureyrarhöfn fengi núna á fjár-
Framh. á 5 síöu.
MÉðii rélef éromót
Lítið bar á strákapörum cða
spellvirkjum í sambandi við ára-
mótin. Nokkrir unglingar reyndu
þó að hefta umferð innarlega í
Hafnarstræti á gamlárskvöld, en
til þeirra náðist, og voru þeir í
vörzlu lögreglunnar fram á mið-
nætti. Einnig voru nokkrar rúður
brotnar. Lítt eða ekki bar á
sprengingum, en um miðnættið
mátti líla marga fallega flugelda á
lofti yfir bænurn.
Olvun var allmikil, en hvergi
kom til teljandi árekstra. Varð þó
að laka nokkra menn iil geymslu
um stundarsakir.
O la is I* i rðisi^ii i* lia£a
fcngið togara
Verður væntanlega gerður út frá
Ólafsfirði og Sauðárkróki
Þeir Ásgrímur Harlmannsson
bæjarstjóri og Jón Gunnars-
son kaupfélagsstjóri í Ólafsfirði,
hafa dvalið í Reykjavík um hr.ð
undanfarið og unnið að togara-
kaupum fyrir Ólafsfirðinga. Leit-
uðu þeir fulllingis ríkisstjórnar-
innar, en á Ólafsfirði er ætíð at-
vinnuskortur á vetrum, og margir
úr kaupstaðnum ráða sig því á
vertíð suður. Er það þýöingar-
mikið vegna alvinnulífs í Ólaís-
firði að geta stofnað til togaraút-
gerðar.
Á Þorláksmessu s. 1. tókust svo
samningar um, að ríkisstjórnin
keyp'.i Vestmannaeyjatogaraun,
Vilborgu Herjólfsdóttur, handa
Ólafsfiröingum, en jafnframt er
relknað með, að Sauðárkrókur
geri hann að einhverju leyti út.
Er ráðgert að mynda hlutafélag
um kaupin í þeim tveim bæjum.
Kaupverö togarans var 5.7 millj.
krónur.
Vestmannaeyingar höfðu áður
selt annan togara sinn til Hafnar-
fjarðar, og er togaraútgerð úr
sögunni í Eyjurn í bili.
fjárhaðsóffitlun Ih. lögð frn
Útsvörin áætluð 10,6 millj. króna
Ssiisho stórmyndln Salho
Volha í Hýja Bíó
Fyrsta mynd Nýja Bíós á þessu
nýbyrjaða ári er stórmyndin
Salka Valka, er Edda Film og
Nordisk Tonefilm hafa látið gera
eftir skáldsögum Laxness, „Þú
vlnviður hreini“ og „Fuglinn í
fjörunni“. Var verulegur hluti
myndarinnar tekinn hér á landi,
úti„senurnar“ frá Óseyri við Axl-
arfjörð í Grindavík og nokkrir
Wflar á öðrum stöðum. Leikstjóii
var Arne Mattson, en hann er
meðal þekktus'.u kvikmyndaleik-
stjóra á Noröurlöndum. Kvik-
myndahandrilið ritaði RuneLind-
ström, en íslenzkur skýringatexti
fylgir myndinni.
Sölku Völku leikur Gunnel Bro-
ström tBirgitta Pettersen leikur
þó Sölku sem barn), Arnald leik-
ur Folke Sundquisi, Sigurlínu
Margare'a Krook, Steinþór Eirik
Strandmark, Bogesen Rune Carl-
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var uppkast að fjárhagsáætlun
Akureyrarkaupstaðar fyrir árið
1955 iil fyrri umræðu. Eru niður-
stöðutölur þess nálega 13.6 millj.
krónur. Hæsti tekjuliðurinn er að
sjálfsögðu útsvörin, sem áætluö
eru nú 10.6 millj. króna gegn 3.7
millj. kr. í fyrra, og er þar um
hartnær tveggja millj. króna
hækkun að ræða. En þar sem
gjaldendum í bænuni fjölgar um
nokkur hundruð við sameiningu
Glerárþorps við bæinn, sýnist
hækkun þessi meiri en hún raun-
verulega er.
Aðrir tekjuliðir eru áællaðir:
Ska'.tar af fasteignum 1527 þús.
kr. (1472 þús. í fyrra). Tekjur af
fasteignum 550 þús. (600 þús.J.
Endurgreiddir fátækrastyrkir 222
þús. (140 þús.). Ýmsar tekjur
,687 þús. (715.4 þús.).
Ilelztu gjaldaliöir:
Vexlir og afborganir af föstum
lánum 643.3 þús. (284.3 þús.).
sten og Beintein í Króknum Lár-
us Pálsson. Þrír aðrir íslenzkir
leikarar koma fram í myndinni:
Jón Aðils, Lárus Ingólfsson og
Rurik Haraldsson.
Salka Valka er eina talmyndin,
sem gerð hefir verið eftir stórri,
íslenzkri skáldsögu, en Saga Borg-
arættarinnar var kvikmynduð á
dögurn þöglu myndanna. Þarf
ekki að draga í efa, að flestir noli
tækifærið nú, þegar það gefst, til
að sjá kvikmynd af íslenzkri
skáldsögu.
Stjórn kaupstaðarins 946 þús.
(802 þús.). Löggæzla 455 þús.
(óbreytt). Heilbrigðismál 468.5
þús. (553.3 þús.). Þrifnaður 660
þús. (670 þús.). Vegir og bygg-
ingamál 1771 þús. (1653 þús.).
Grjótmulningur 300 þús. (250
þús.). Fasleignir 782 þús. (690
þús.). Eldvarnir 444 þús. (436
þús.). Lýðlrygging og lýðhjálp
1810 þús. (1635 þús.). Fram-
færslumál 1140 þús. (1073 þús.).
Menntamál 1291 þús. (1131 þús.)
íþróttamál 261.5 þús. (276.5
þús.). Til nýbygginga 810 þús.
Til hlutabréfakaupa 750 þús.
Undir liðnum „nýbyggingar"
er hæsti gjaldaliðurinn til flutn-
ings á gömlu slökkvistööinni og
byggingu áhaldahúss kr. 250 þús.
Til skólabyggingar kr. 200 þús.,
til nýbygginga við sundstæöið
200 þús.
Fund uui íjórhuflséfftlun
bœjarins jyrir 1955
halda Sjálfstœðisfélögin á AIc-
ureyri n.k. mánudag 10. jan. í
Varðborg, er hefst kl. 20.30.
Frummcelendur verða bœjar-
fulltrúarnir Helgi Pálsson og
Jón G. Sólnes. Félagsmenn eru
hvattir til að mæta á fundinum
stundvíslega og taka þátt í nm-
rœðum um mál það, sem fyrir
jundinum liggur.