Íslendingur - 16.06.1961, Qupperneq 8
I
I Undanbrögðin eru |
| ekki einhlít |
I DAGUR liefur verið spurður \
| um það undanfarið, vegna sí- j
| endurtekinna skrifa hans um =
j árásir ríkisstjórnarinnar á sam j
| vinnufélögin, hve mikið fé það j
I sé, er félögin hafa afhent \
j Seðlabankanum úr innláns- j
I deildum þeirra, en svörin eru j
I annað hvort engin eða út í =
I hött. Blaðið liefur komizt j
i lengst í því að vitna í ársreiltn j
= inga félaganna, sem séu öllum =
= opnir og gefnir út í stóru upp- j
i lagi. Við, — sem höfum hér j
I fyrir framan okkur reikninga \
: KEA og KÞ, sjáum ekki í j
I þeim, hve miklar upphæðir i
\ þessi ágætu samvinnufélög I
1 hafa innt af hendi í Seðlabank j
I ann. Um það er enginn stafur. \
| Hinsvegar vitum við, að þetta j
i „kaldasta frystihús landsins,“ i
i sem Dagur nefnir Seðlabank- =
| ann, hefur lánað hin svo- j
1 nefndu „afurðalán“, og þeirra i
i njóta samvinnufélögin fyrst og :
| fremst. Og það með óvenju- j
H lega góðum vaxtakjörum. — i
i Vill nú ekki ritstjóri Dags :
| gefa það upp, (fyrst ekki er j
| unnt að sjá það í reikningum :
j hinna „opnu“ félaga), hvað \
\ þau hafa greitt i Seðlabankann i_,T r .„n.nTMr. 1 *
- = SL. LAUGARDAG kom varð-
: eftir kröfu ríkisstjórnarinnar? , r .
: : skipið Por með þrju tæreysk
i Undanbrögð í því efni eru i , . . , .
i = handfæraskip hingað til Akur-
: bæði leiðinleg og óþörf. i , . , .
i 5 eyrar, en skip þessi hotðu verið
XLVII. árgangur — Föstudagur 16. júní 1961 — 21. tölublað
Flóabáturinn Drangur mun fara um aðra hvora helgi með ferða-
fólk til Grímseyjar í sumar. Hér er hann að leggja af stað með um
65 manns sl. laugardag. Var það fólk einkum úr fram-Eyjafirði.
Þrír Færeyingar í landhelgi
Gerðu 3 mörk af 4
TVEIR knattspyrnukappleikir
voru háðir nú í vikunni, og komu
Akureyringar þar allmikið við
sögu. Á sunnudaginn var, í til-
efni af 50 ára afmæli Melavallar-
ins í Reykjavík, var háður kapp-
leikur milli Reykvíkinga og utan
bæjarmanna. Þar komu fram 4
Akureyringar, og stóðu sig að
sögn sjónarvotta mjög vel.
Sl. miðvikudagskvöld var svo
háður kappleikur milli landsliðs-
ins og pressuliðs. Þar voru fjórir
Akureyringar, og sýndu frábæra
getu og leikni.
Leikar fóru svo, að pressuliðið
sigraði með 4 gegn 2. í því liði
voru þrír Akureyringar, Stein-
grímur Björnsson, sem gerði 2
VISIR STÆKKAR
DAGBLADIÐ VÍSIR, elzta dag-
blað landsins, breytti mjög um
svip á sl. mánaðamótum. Var Vís
ir þá stækkaður upp í 16 síður og
prentaður með litum. Hefur blað
ið tryfgt sér nokkra góða
„penna“, er rita um hina ýmsu
efnisflokka. Ritstjórar Vísis eru
Hersteinn Pálsson og dr. Gunnar
G. Schram.
mörk, Kári Árnason, en hann
gerði eitt mark, og Jón Stefáns-
son. í landsliðið fór Skúli Ágústs
son. Leikur Akureyringanna var
að allra dómi hinn bezti. Eftir
þessa leiki má búast við, að Ak-
ureyringar verði teknir í lands-
liðið.
Vinabæjarliðið „Frejau
Á SL. ÁRI fór knattspyrnuflokk-
ur héðan í keppnisför til vinabæj
arins Randers í Danmörku.
Kepptu Akureyrarpiltarnir við
B-lið knattspyrnumanna þar. Nú
mun í ráði, að A-lið vinabæjar-
ins endurgjaldi heimsóknina, og
komi hingað í næstu viku. Dan-
irnir leika einn leik í Reykjavík,
en tvo leiki hér, 24. og 26. þ. m.
Þarna er um að ræða mjög sterkt
og vel þjálfað lið, meðalaldur er
24 ár. Gaman verður að sjá hvern
ig okkar mönnum tekst við þetta
lið, en akureyskir knattspyrnu-
menn hafa nú sýnt mikla framför
og dugnað í þessari viku eins og
skýrt er frá á öðrum stað hér í
blaðinu.
að veiðum 1—1,8 sjómílur frá
Kolbeinsey. Það var gæzluflug-
vélin Rán, sem kom að skipun-
um seint á föstudag. Ekki náðu
flugmennirnir talsambandi við
Færeyingana, en skipsmenn
hættu þegar veiðum, er þeir urðu
vélarinnar varir og héldu í átt
til lands. Rán náði þá sambandi
við Þór, og kom hann á móti
skipunum skammt innan við 12
mílna mörkin, setti menn um
borð í þau, og var síðan haldið
til Akureyrar. Sjópróf hófust á
laugardag, en dómur var upp
kveðinn seint á mánudag. Skip-
stjórarnir hlutu kr. 17.250.00 sekt,
og var auk þess gert að greiða
allan sakarkostnað. Þá var afli
og veiðai'færi gert upptækt.
Undu dóminum ekki vel.
Frændur vorir létu illa yfir
þessum dómi, enda þótt har.n sé
einn sá vægasti, sem til er fyrir
landhelgisbrot. Hins vegar er
vart til dæmi um, að erlend hand
færaskip hafi verið tekin fyrir
landhelgisbrot. Skipin héldu út
á þriðjudag, eftir að hafa sett
tryggingu fyrir sektum og sakar
kostnaði.
Friðjón Skarphéðinsson bæjar
fógeti kvað upp dóminn, en með-
dómendur voru Þorsteinn Stef-
ánsson hafnarvörður og Bjarni
Jóhannesson. Verjandi Færey-
inganna var Jónas G. Rafnar.
SKOT ÚT í LOFTIÐ.
f Degi s.l. laugardag segir rit-
stjórinn í tilefni af verzlunar-
mannaverkfallinu:
„Kaupmenn, sem hér á Akur-
eyri ætluðu að græða á lokun
KEA, urðu fyrir vonbrigðum.“
Hér er sk’otið út í loftið. Kaup-
menn stóðu ekki fyrir vinnu-
stöðvun í verzlunum, heldur fé-
lagsskapur, sem STARFSFÓLK
KEA er fjölmennast í og getur
ráðið því, hvort verkfall er gert
eða ekki. Kaupmenn höfðu engin
afskipti af verkfallinu, en höfðu
búðir sínar að sjálfsögðu opnar
og afgreiddu sjálfir þær vörur, er
viðskiptamenn þeirra þörfnuðust.
Fyrir þeim var því engin „ætlun“
í sambandi við þessa fávíslegu
vinnustöðvun, er Framsókn beitti
sér fyrir.
ÞAÐ VAR ÉG, SEM BARG
ÖLLU.
Kari Kristjánsson formaður
Kaupfélags Þingeyinga skrifar
langloku í vikubl. Dag 10. þ. m.
þar sem hann telur sig vera að
svara grein Þórhallar B. Snædal,
er birtist hér í blaðinu 26. f. m.
uin nýafstaðinn aðalfund K. Þ.
Telur Karl það hina mestu fá-
sinnu, að Bjartmar á Sandi hafi
verið kallaður í stjórn K. Þ.
vegna erfiðleika félagsins. Hann
á mun nærtækari skýringu og
vitnar í Sögu Kaupfélags Þing-
eyinga, sem kom út 1942, en þar
kveður hann við þenna tón:
„Ég skilaði af mér á aðalfundi
1937. 1 sambandi við frásögn í
fundargerð aðalfundarins af
skilagrein minni er bókað, að
mér hafi verið þakkað: „fyrir að
hafa sýnt þá fómfýsi að takast á
hendur framkvæmdastjórastarfið
á svo erfiðum tíma fyrir K. Þ.
sem kunnugt er og leysa það svo
vel af hendi, sem nú er sýnt.“
(Orðrétt úr gcrðabók).
Hvar var minnzt á það í grein
Snædals, að K. K. hefði ekkert
gert fyrir K. Þ.? Þarf svona
smekklitla sjálfhælni til, sein
alls staðar er hlegið að?
Þess skal og getið í tilefni af
skrifum K. K., að f.vrirsögn grein
ar Þórhallar Snædal var ekki
hans, heldur gerð af ritstjóra
blaðsins og á fullri ábyrgð hans.
GÓÐ GJÖF.
Danska menntamálaráðuucytið
hefur tilkynnt, að það leggi fram
50 þús. d. kr. til kaupa á bókum
og gögnum til dönskukennslu í
íslenzkum skólum.