Íslendingur - 28.08.1975, Side 6
MESSUR
Messað í Akureyrarkirkju kl.
11 f. h. á sunnudag. Sálmar
nr. 36, 314, 192, 32, 26. — P. S.
Möðruvallaklausturspresta-
kall. Guðsþjónusta að Bægisá
n.k. sunnudag kl. 2 e. h. Guðs-
þjónusta að Bakka kl. 4 e. h.
— Sóknarprestur.
Frá Möðruvallaklausturs-
prestakalli. í næsta mánuði,
september, annast séra Bjart-
mar Kristjánsson, Laugalandi,
þjónustu í minn stað. Sími um
Munkaþverá. •— Sóknarprest-
ur.
Messur í Laugalandspresta-
kalli. Munkaþverá 31. ágúst
kl. 13.30. Kaupangur sama dag
kl. 15.30. — Sóknarprestur.
Hjálpræðisherinn. Lautinant
Mona og Nils-Petter Enstad
bjóða ykkur hjartanlega vel-
komin á samkomu í sal Hjálp-
ræðishersins n.k. sunnudag kl.
8.30 e. h. — Ath.: „Sumar-
frískóla“. Barnasamkomur á
þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag kl. 1 e. h. Kvik-
myndir. Allir velkomnir.
Sumarstarfinu að Hólavatni
lýkur með kaffisölu á sunnu-
daginn. Kaffisalan hefst kl.
14.30 og stendur til kl. 18.00.
Ágóðanum verður varið til
þess að standa straum af
kostnaði við rekstur sumar-
búða KFUM og KFUK að Hóla
vatni, en nú er nýlokið 11.
starfssumri sumarbúðanna og
var þátttaka að þessu sinni
góð.
Hjálparbeiðni
Völundur Heiðreksson, Eyrar-
vegi 23, er sjúklingur á Borg-
arsjúkrahúsinu í Reykjavík.
Vegna meinsemdar í hægri
handlegg varð að taka af hon-
um hendina í axlarlið og enn-
fremur herðablað og viðbein.
Völundur hefur orðið að
ganga í gegnum sárar þrautir
af þessum ástæðum, og aug-
ljóst er, að hans bíða erfið-
leikar miklir, þó að trygging-
ar veiti góða hjálp.
Við undirritaðir og blöð bæj
arins munu góðfúslega veita
viðtöku vinargjöfum þeirra,
sem vilja rétta Völundi hjálp-
arhönd.
Sóknarprestar.
AA-samtökin
Símsvari A-A samtakanna er
2-23-73.
Nýja bíó sýnir í kvöld James-
Bond-myndina ,,Þú lifir að-
eins tvisvar“. Á sunnudag kl.
3 verður teiknimyndasafn, kl.
5 ,,Þú lifir aðeins tvisvar“ og
kl. 9 hefjast sýningar á „Fl ug-
sveit 633“. Mynd þessi fjallar
um þátt Royal Air Force í
stríðinu, en með aðalhlutverk
in fara Cliff Robertson og
Maria Perschy.
Borgarbíó sýnir í kvöld mynd
ina Sálin í Svarta Kalla, sem
er spennandi mynd um eftir-
hreytur Þrælastríðsins í USA.
Á næstunni hefjast sýningar
á Big Guns með Alain Delon
í aðalhlutverki og Paranoia
með Carrol Baker í aðalhlut-
verki. Kl. 3 á sunnudag verð-
ur myndin Fröken Fríða sýnd,
en það er gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna.
- Blindir
Framhald af bls. 8.
um, sem blindir eða sjón-
skertir geta fengið sér til
hjálpar. Þar má t. d. nefna
sérstök stækkunargler sem
eru afgreidd hjá Blindrafé-
laginu, Hamrahlíð 17 í
Reykjavík, gegn framvísun
vottorða frá læknum. Þá eru
til á sama stað úr og klukk-
ur með upphleyptum stöf-
um, en Landsíminn er með
sérstakar skífur til þess að
setja á síma fyrir blinda.
Síðast en ekki síst benti Elín
borg á Blindrabókasafnið,
sem væri með þjónustu fyrir
allt landið. Þar er hægt að
fá mikið úrval af bókum
með blindraletri og einnig
eru fáanlegar segulbands-
spólur og kassettur með upp
lestri á ýmsu efni. Þetta er
ókeypis þjónusta og burðar-
gjaldsfrí.
Nýlega var stofnað for-
eldrafélag blindra og sjón-
skertra og sagði Elínborg að
það félag væri ætlað foreldr
um alls staðar að af landinu.
Veitir hún allar nánari upp-
lýsingar um félagið auk þess
sem hún veitir blindum og
sjónskertum alla þá félags-
legu aðstoð sem hún hefur
tök á. Skrifstofa Elínborgar
er að Hamrahlíð 17, Reykja-
vík, en sími hennar er 38488.
Skrifstofan er opin milli kl.
9 og 12 daglega.
— Sjúkrahúsið
Framhald af bls. 1.
þá töf sem endurtekning út-
boðsins hefði valdið.
— Fjárveiting lá fyrir
snemma í sumar, sagði Stefán,
— og það er afleitt að hafa
fjárveitingu, en geta ekki not-
að hana. Viðbyggingin er að
verða tilbúin undir málningu
að utan en ekkert er farið að
vinna við frágang að innan.
Þessi vinnubrögð verða til
þess að lengja verulega biðina
eftir því að viðbyggingin kom
ist í gagnið. Loks sagði Stefán
að útboðið væri á vegum Inn-
kaupastofnunarinnar og hefðu
heimamenn vonast til að stofn
unin myndi semja við aðilann,
sem sendi inn tilboð í fyrra
skiptið á grundvelli tilboðs-
ins og kostnaðaráætlunar
stofnunarinnar. — En því mið
ur tókst ekki samkomulag
milli þessara aðila, sagði bæj-
arverkfræðingurinn.
— Fræðslu-
skrifstofurnar
Framhald af bls. 1.
stofn til þess að standa straum
af rekstri fræðsluskrifstofa,
en Áskeli hefur verið falið að
gera fjárhagsáætlun fyrir
rekstur skrifstofanna á Norð-
urlandi
— Til þessa hefur sú þjón-
usta sem fræðsluskrifstofurn-
ar eiga að veita, fallið undir
menntamálaráðuneytið og rík
ið staðið straum af kostnaði
við reksturinn, sagði Áskell.
— Okkur í Fjórðungssamband
inu þykir hart að sveitarfélög-
in skuli þurfa að greiða fyrir
að fá fræðsluskrifstofurnar
staðsettar úti á landsbyggð-
inni. Vonumst við til að hægt
verði að finna tekjustofn fyrir
starfsemina og kæmi þar til
greina hlutdeild í einhverju
prósentubroti af söluskattin-
um. Annars verður nánar f jall
að um hugsanlegar leiðir á
Fjórðungsþingi Norðurlands,
sem verður haldið á Raufar-
höfn 1.—3. sept. næstkomandi
og er þess að vænta að málin
skýrist þá.
GLERA SF.
MAGNÚS ODDSSON, byggingameislari.
Malarnám, símar (96) 2-23-72 og (96) 1-13-29.
Póslhólf 616, Akureyri.
Steinsfeypuefni
og fyllingarefni
Seljum óharpað steinefni úr krús ámokað á bíla.
Mokum á kvöldin og á laugardögum eftir sam-
komulagi.
Afgreiðslusíini á Glerá er 1-13-29.
ATVINNAW
ATVIIMIMA
Vantar skrifstofustúlku hálfan daginn (e. h.) sem
fyrst. Vélritunar- og einhver enskukunnátta nauð-
synleg.
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni.
SÚKKULAÐIVERKSMIÐJAN LINDA HF.
Staða
íþróttakennara
stúlkna við Gagnfræðaskóla Sigluljarðar er laus
til umsóknar.
Einnig almenn kennarastaða við Barnaskóla Siglu-
fjarðar.
Upplýsingar eru gefnar í fræðsludeild Mennta-
málaráðuneytisins, Reykjavík, og hjá skólastjórum
skólanna í símum (96)7-13-10 og (96)7-12-47.
SKÖLANEFNDIN.
Verkamenn
Óskum að ráða nokkra verkamenn í byggingar-
vinnu.
8IUÁRI hf.
Furuvöllum 3. — Sími: 2-12-34.
Aðalfundur
AKUREYRARDEILD RAUÐAKROSSINS
heldur aðalfund á skrifstofu félagsins, Skipagötu
18, þriðjudaginn 2. september n. k. kl. 17.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Frá
Tækniskólanum
Eins og að undanförnu, verða starfræktar Undir-
búningsdeild og Raungreinadeild skólaárið 1975—
76. Skólastarfið hefst mánudaginn 8. sept. kl.
20.30.
Enn er rúm fyrir nokkra nemendur í hvora deild.
Upplýsingar veita Aðalgeir Pálsson, sími 2-10-93
og Jón Sigurgeirsson, sími 1-12-74.
Akureyri, 28.8 75.
Útför móður minnar, tengdamóður og öinrnu,
ÞORBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Seyðisfirði,
Fjólugötu 20, Akureyri, er lést 23. ágúst, verður
gerð frá Akureyrarlcirkju, föstudaginn 29. ágúst
kl. 13.30.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Stefán Þórarinsson,
Bergþóra Jónsdóttir og barnabörn.
6 — ÍSLENDINGUR