Íslendingur - 28.08.1975, Síða 8
‘SangrunaRGLER
ISPAN HF. • FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI (96)21332
AUGLYSING&SÍMI Í8LENÐIN68
215 00
• M
Sjóstangveiði-
mót um helgina
Hið árlega sjóstangveiðimót
Sjóstangveiðifélags Akureyr-
ar verður haldið um helgina.
Mótið verður sett í Sjálfstæðis
húsinu á föstudagskvöldið, en
kl. 7 á laugardagsmorguninn
verður ekið frá Akureyri til
Dalvíkur og róið þaðan kl. 8.
Komið verður að landi kl. 5
e. h., en sama kvöld verður
mótinu slitið með hófi í Sjálf-
stæðishúsinu. Verðlaunaaf-
hending fer þar fram og síð-
an verður dansað.
Fjórðungsþing
á Raufarhöfn
Fjórðungsþing Norðlendinga
verður haldið á Raufarhöfn
1.—3. sept. nk. Þingið munu
sækja 90 fulltrúar sveita og
sýslufélaga á Norðurlandi auk
gesta. Á þinginu verða flutt
framsöguerindi um þau mál
sem eru efst á baugi í byggða
þróun á Norðurlandi.
Lárus Jónsson, formaður
samstarfsnefndar um orku-
mál, ræðir um Norðurlands-
virkjun og skýrir frá undir-
búningsumræðum um stofnun
sameignarfyrirtækis ríkis og
sveitarfélaga á Norðurlandi,
um orkuöflun. Árni Jónsson,
landnámsstjóri, ræðir um hlut
verk landbúnaðaráætlana í
byggðaþróun. Guðmundur
Óskarsson kynnir byggðaþró-
unaráætlun fyrir Norður-Þing
eyjarsýslu, sem nú er á loka-
stigi. Reynir Karlsson, æsku-
lýðsfulltrúi kynnir æskulýðs-
könnun fyrir Norðurland, sem
er sú fyrsta hér á landi. Sig-
urður Guðmundsson, hagfræð
ingur, ræðir byggðaþróun á
Norðurlandi vestanverðu og
nýjar leiðir í byggðaáætlun-
um. Kjartan Jóhannsson,
rekstrarverkfræðingur, ræðir
um stöðu heilbrigðismála á
Norðurlandi.
Þetta er 17. Fjórðungsþing-
ið sem haldið er, en sam-
kvæmt lögum Fjórðungssam-
bandsins ber að halda Fjórð-
ungsþingin til skiptis í héruð-
um Norðurlands.
Hvíti stafurinn í notkun. Elínborg Lárusdóttir, blindraráðgjafi.
Hvíti stafurinn“
þarft hjálpartæki ■ umferðinni
Síðan árið 1970 hefur hvítur stafur verið
blindur eða alvarlega sjónskertur. Það eru
öldruðu blindu eða sjónskertu fólki og eru
því að gefa almenningi vísbcndingu um að
göngu þreyfistafur fyrir yngra fólk og þá
ar framlenging á hendina, og cr hægt að
með hvítu og rauðu cndurskini.
löggilt tákn þess að sá sem hann notar sé
til tvær tegundir af stöfum, önnur er ætluð
ptafirnir ætlaðir sem stuðningsstafir samhliða
viðkomandi sé blindur. Hin tcgundin er ein-
sem eru vel rólfærir. Þessi stafur er eins kon-
leggja hann saman. Báðar tegundirnar eru
Þetta sagði Elínborg Lárus
dóttir blindraráðgjafi sem
starfar fyrir blinda og sjón-
skerta hér á landi, en hún
var stödd á Akureyri fyrir
helgina til þess að veita
þessu fólki þá félagslegu
þjónustu sem það á rétt á.
Elínborg heimsótti bæði Elli
heimili Akureyrar og Elli-
heimilið í Skjaldarvík og
hafði samband við þá ein-
staklinga, sem hún hafði
haft spurnir af á Akureyri
og eru blindir eða með
skerta sjón.
í stuttu rabbi sagði Elín-
borg að læknar gæfu þeim
vottorð, sem þeir teldu þurfa
staf og með framvísun þess
gætu menn fengið stafina
greidda hjá Alm.tryggingum.
Eru stafirnir sérstaklega
handhægir í umferðinni, en
til þess að þeir komi að fullu
gagni þurfa bílstjórar og aðr
ir sem eru í umferðinni að
þekkja notkunarreglur
þeirra engu síður en hinir
blindu. Þegar stafnum er
haldið á ská út á við í átt-
ina að götunni, eða þegar
hinn blindi bankar honum í
gangstéttina er það merki
um að hann vilji komast yfir
götuna. Þá ber ökumannin-
um að stoppa og er æskileg-
ast að hann geri það mjúk-
lega. Ef hjólreiðarmaður
kemur að blindum, sem vill
komast yfir götuna er gott
að hann hringi bjöllunni á
hjólinu til þess að gefa hin-
um merki um að hann sé að
koma.
Síðan vék Elínborg að
ýmsum öðrum hjálpartækj-
Framhald á bls. 6.
FLUGLEIÐIR OG HÓTEL HUSAVÍK:
Ekki rekstrarsamvinna að sinni
Heyrst hefur að forráðamenn Hótels Húsavíkur hafi gefið Fluglciðum kost á því að gerast
hluthafi í hótelinu og hefja nánari samvinnu milli þcssara tvcggja aðila en vcrið hefur. Einnig
hefur það heyrst að Ferðaskrifstofa Akureyrar og Ferðaskrifstofan Úrval, sem er eign Flug-
leiða að hálfu, séu að fjalla um hugsanlcga lilutdeild Úrvals í FA. íslcndingur hafði sam-
band við Svcin Sæmundsson hjá Flugleiðum og innti hann eftir því livað satt væri í þessum
orðrómi.
Sveinn sagði að komið hefði
í Ijós viss áhugi hjá Húsvík-
ingum um að Flugleiðir tækju
þátt í rekstri hótelsins, en sem
stæði væri ekki grundvöllur
fyrir slíku.
Þegar Sveinn var spurður
um það hvort Flugleiðir hefðu
yfirleitt áhuga fyrir slíkri
hlutdeild í hótelrekstri úti á
landi svaraði hann þessu: —
Það er áhugi hjá Flugleiðum
að styðja við bakið á túrism-
anum á íslandi almennt. Hins
vegar stendur fyrirtækið nú í
kostnaðarsömum flugvélar-
kaupum og fl. og því er ekki
grundvöllur fyrir þátttöku í
rekstri hótelsins á Húsavík né
öðrum hótelum að minnsta
kosti ekki að sinni.
Loks staðfesti Sveinn þann
orðróm að viðræður stæðu
yfir milli Úrvals og Ferða-
skrifstofu Akureyrar, en sagði
að enn væri ekkert komið út
úr þeim umræðum.
Mikið hefur verið talað um
neýðarbíl þann scm Norðlend
ingar ciga von á, en Blaða-
mannafélag Islands hefur haft
veg og vanda af fjársöfnun
vegna bílkaupanna. Margar
upphæðir hafa verið nefndar
í sambandi við kaupverð bíls-
ins og ótal dagsetningar verið
á væntanlegri komu bílsins til
landsins, en enn cr ekki farið
að bóla á bílnum á götum Ak-
ureyrar. Hve löng verður bið-
in enn?
Guðmundur Blöndal,
starfsmaður Rauða
Krossins á Akureyri,
svarar, en Rauði Kross-
inn hefur verið hægri
hönd Blaðamannafélags
ins við fjársöfnunina
Norðanlands:
— Það er varla að ég þori
að nefna nokkurn ákveðinn
komutíma, þar sem þær upp-
lýsingar sem við höfum feng-
ið frá verksmiðjunni hafa
brugðist svo oft. Bíllinn, sem
er af Range Rover gerð er
breskur, en yfirbyggður í
Noregi. Norska verksmiðjan
gaf okkur fyrir skömmu þær
uppl. að bíllinn yrði send-
ur frá Noregi um sl. mánaða-
mót, en nú er ég nýbúinn að
fá skeyti að utan þar sem sagt
er að honum verði skipað um
borð 10. sept. nk. og verði
hann fluttur beint til Akur-
eyrar. Ef þetta stenst þá mun
bíllinn verða hér um miðjan
sept.
Helgi Vilberg
sýnir í Hlíðarbæ
Fjórða september nk. opnar
Helgi Vilberg málverkasýn-
ingu í Hlíðarbæ, norðan við
Akureyri. Nefnir hann sýn-
inguna „Myndir 74—75“, en
þar verða sýndar alls 37 mynd
ir málaðar á þessu og sl. ári.
Þetta er fyrsta sjálfstæða sýn-
ing Helga, en hann hefur áður
tekið þátt í samsýningum í
Myndsmiðjunni. Flestar mynd
irnar á sýningunni í Hlíðarbæ
eru olíumálverk, en auk þess
eru þar nokkrar af myndun-
um, sem Helgi teiknaði við
ljóð eftir Jón Laxdal, sem
komu út í bókarformi í vetur.
HAKUREYRINGAR -
NORÐLENDINGAR!
Söluumboð fyrir
Færeyjaferjuna Smyril.
Ferðaskrifstofa Akureyrar/*
HÚSBYGGJENDUR!
Tiinbur í úrvali. - HAGSTÆTT VERÐ.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
TÓMASAR BJÖRNSSONAR H.F.
Glerárgötu 34. — Sími 2-39-60.