Íslendingur - 29.10.1980, Síða 5
Útgefandi:
Ritstjóri og ábm.:
Auglýsingastjóri:
Gjaidkeri.
Dreifingarstjóri.
Ritstjórn, simi:
Auglýsingar, simi:
Áskriftargjald:
Lausasala:
Auglýsingaveró:
Prentun:
Islendingur hf.
Kristinn G. Jóhannsson
Guólaug Siguróardóttir
Ottó Pálsson
Sigurlina Sigurgeirsdóttir
21501
21500
kr. 3000 á ársfjóróungi
kr. 280 eintakió
kr. 2800 dáiksm.
Prentsmiója Björns Jónssonar
Baulaðu nú
BúkoIIa mín
Stefán Valgeirsson alþm. skrifar um þessar mundir
framhaldsgreinar í Dag undir fyrirsögninni „Hvað er
framundan?" Ef ætlun alþingismannsins með greinum
þessum hefur verið sú að leita svara við þessari spurn-
ingu þá hefurságóði ásetningurgloprastniðureinhvers
staðar á leiðinni. Það eina sem að mati alþingismanns-
ins réttlætir áframhaldandi setu þessarar ríkisstjórnarer
það að ef hún hrökklast frá geti enginn tekið við. Stefán
Valgeirssori segir m.a. „Þjóðin stendur því á krossgöt-
um og kemst ekki hjá að velja um leið. Valið ætti að vera
auðvelt. Því ef við beygjum ekki af leið óðaverðbólgu og
tryggjum eðlilegan rekstur framleiðslunnar, blasir við
atvinnuleysi og það böl og óréttlæti, sem slíku ástandi
fylgir.“
Nú er þetta í sjálfu sér kórrétt athugað en maður gæti
látið sér detta í hug að þetta væri brot úr framboðsræðu
frá því s.l. vetur. Þá boðuðu framsóknarmenn nefnilega
aldeilis gulltrygga aðferð að eigin sögn til að ráða niður-
lögum verðbólgunnar og nefndu niðurtalningu. Þeireru
að vísu orðnir sífellt feimnari við að nefna það orð eftir
því sem frá dregur kosníngunum. Þetta er þeim mun
furðulegra sem sami alþm. heldur því fram að það sé
stefna framsóknar sem ráði í ríkisstjórninni í fjármálum.
Við hvern er biessaður maðurinn þá að sakast þegar
hann segist nú allt í einu standa á krossgötum og ekkert
vita hvað sé framundan? Hvað dvelur niðurtalninguna
góðu sem fyrir kosningar átti allan vanda að leysa? Við
þessu fást ekki svör en annað hvort hlýtur að komatil að
framsóknarmenn séu hreint áhrifalausir innan ríkis-
stjórnarinnar eða þá hitt að niðurtalningin sæla hafi
verið blekking og kosningaglamur sem boðendur
hennar höfðu ekki hugmynd um hvernig framkvæma
átti. En hvor sem skýringin er þá liggur það Ijóst fyrir að
hlutur framsöknarmanna er ekki stjórnmannlegur nú
þegar þeir að eigin sögn, hafa töglin og hagldirnar í
ríkisstjórninni. Það er því von að þeir spyrji sjálfa sig og
aðra nú „Hvað er framundan?" Niðurtalningin virðist
týnd og tröllum gefin en boðendur hennar segjast nú
staddir á krossgötum og bíða þess að Búkolla bauli hvar
sem hún er niður komin.
Fijáíst og óháð
Dag-blað
Það var dálítið athyglisvert að hlusta á ritstjóra Dags lýsa
því í útvarpsþætti í gærkveldi hvernig stjórn blaðsins
er skipuð. Það kom nefnilega í Ijós að samkvæmt sam-
þykktum blaðstjórnar skal kaupfélagsstjóri KEA ætíð
vera formaður blaðstjórnar og þess vegna sagðist
ritstjórinn ætíð taka upp hanskann fyrir kaupfélagið
hvernig svo sem það nú samræmdist hans eigin sann-
færingu eða samvisku. Þetta er raunar augljóst af
málflutningi blaðsins en undirstrikar enn að blaðið
verður fyrst og síðast að ganga erinda KEA. Þetta eru
dapurleg örlög á þeim tímum þegar blöðin eru yfirleitt
að losa sig undan flokksvaldi og klíkum og taka uppsem
frjálsastan fréttaflutning að þá skuli slíkt nátttröll hafa
Dag-að uppi hér Norðanlands.
Kr. G. Jóh.
4 - ÍSLENDINGUR
Litið inn hjá Þ. Björgúlfsson h.f
FRÉTTIR FRÁ
BÆJARSTJÓRN AKUREYRAR
Ungir, bjartsýnir menn
með myndarlegt fyrirtæki
Vikulok
fyrir
norðan
Björn og Áskell í útsendingu.
Á laugardaginn var hófst Reykjavík. Þeir sem tekið
útsending á þættinum „í hafa að sér þáttinn hérfyrir
vikulokin" með nýjum norðan eru Áskell Þóris-
hætti. Var útvarpað sam- son, blaðamaður og Björn
timis frá Akureyri og Arnviðarson, lögfræðing-
ur, en tæknimenn þeir
Björgvin Júníusson og
Ólafur Sigurðsson.
Bræðurnir Friðrik og Björgúlfur ásamt föður sfnum Þórði.
Þessi myndarlega kvíga fæddist að Ytri-Tjörnum í Eyjafirði hinn 16. september sl. Að sögn Benjamíns
Baldurssonar bónda mun hún ein hin fyrsta af Galloway kyni sem fæðist í landi þ.e. utan Hríseyjar.
Tæplega vikugömul reyndist hún 44 kg. að þyngd og hefur farið mjög vel fram síðan. - Að sögn Guð-
jóns í einangrunarstöðinni í Hrísey er gert ráð fyrir að um áramót verði búið að selja fimm þúsund
skammta í land. Guðjón sagði s Bðið sent til Hvanneyrar og þaðan væri því dreift.
bræður Friðrik og Björgúlfur
eru framkvæmdastjórar, báðir
samvinnuskólagengnir og hafa
auk þess stundað framhalds-
nám í verslunarfræðum erlend-
is. Þeir segjast bjartsýnir á
rekstur heildsölu hér þótt ýmsir
erfiðleikar hrjái m.a. þeir hve
bönkum er gert erfitt fyrir að
annast eðlilega fyrirgreiðslu og
síðan er blessuð verðbólgan sem
ekki bætir úr.
Fyrirtækið var stofnað 1973
og hefur þegar afiað sértraustra
viðskiptavina um land allt.
mmmm
„FJÖRULALLF
Bók eftir Jón Viðar Guðlaugsson að koma út
fslendingur leit á dögunum inn
hjá Þ. Björgúlfsson h.f. umboðs
og heildverslun og hitti þar fyrir
bræðurna Friðrik og Björgúlf
Þórðarsyni og innti þá eftir
starfsemi fyrirtækisins.
Fyrirtækið er umboðs og
heildverslun og hefur viðskipti
við aðila um land allt. Af inn-
fiuttum vörum er aðallega um
að ræða fatnað alls konar,
innréttingar s.s. skápa, baðklefa
auk ýmissa annara smærri
hluta. Einnig hafa verið flutt inn
ljós frá Danmörku og Spáni en
önnur viðskipti eru aðallega við
Norðurlönd, Bretland og Banda
ríkin.
Þá hefur fyrirtækið einkaum-
boð fyrir mælitæki frá
„Starret“. Matvörurhefurfyrir-
tækið síðan í umboðssölu fyrir
„íslensk matvæli“ og meðan
blaðamaður leit við gæddi hann
sér á nýjustu framleiðslunni,
síldarþrennu, en aðrar vörur frá
því fyrirtæki eru t.d. kryddsíld,
marineruð síld, reyktur lax og
grafiax en vörur þessar eru
raunar vel þekktar. Þá hefur
fyrirtækið umboðssölu fyrir
lagmetisiðjuna Garði h.f. auk
annara íslenskra fyrirtækja.
Hjá Þ. Björgúlfsson h.f. eru
nú fimm starfsmenn en beir
Á næstunni kemur út fyrsta bók
Akureyringsins Jóns Viðars
Guðlaugssonar á vegum bóka-
útgáfunnar Salt, Reykjavík.
Bókin mun bera nafnið „Fjöru-
lalli“ c g segir það nokkuð um
sögusvið sagnanna og uppruna
höfundar.
Við spurðum Jón nánar um
efni bókarinnar og sagði hann
að í henni væru um tíu þættir
eða frádsagnir sem hefðu raun-
ar allir „Fjöruna“ að sögusviði,
væru skáldskapur „en gætu þó
vel verið sannar", eins og Jón
komst að orði.
U m tilurð þessara sagna sagði
Jón að vegna starfa hans að
æskulýðsmálum einkum með
K.F.U.M. hefði æði oft komið
upp vandkvæði á að finna efni
til flutnings á kvöldvökum og
við fleiri tækifæri og þá ekki síst
í sambandi við sumarstarfið að
Hólavatni. Hefði hann því á
stundum gripið til þess ráðs að
setja eitthvað saman sjálfur.
Nú hefði síðan orðið að ráði
að gefa þessa frásöguþætti út.
Reynt hefur verið að vanda sem
best til útgáfunnar og hefur
ungur myndlistarmaður, Búi
Kristjánsson, myndskreytt bók-
ina.
Ymsir hafa haft orð á því við
blaðið, að lítið væri um fréttir af
því sem væri að gerast hjá
bæjarstjórninni. Nú eru hug-
myndin að bæta eitthvað úr
þessu, og birta þátt sem þennan
í hverri viku eftir bæjarstjórnar-
fundi, en þeir eru haldnir reglu-
lega annan hvern þriðjudag, og
verður jafnan reynt að birta það
sem markverðast þykir af mál-
um er berast bæjarráði og
bæjarstjórn frá nefndum bæjar-
ins, fyrirtækjum og einstakling-
um.
Miklir greiðsluörðugleikar
hafa verið hjá bæjarsjóði und-
anfarið, en rrú mun eitthvað
hafa ræst úr þeim málum,
annarsvegar vegna bættra skila
gjaldenda, svo og vegna aukins
yfirdráttar sem fékkst í Lands-
banka íslands upp á 300 millj.
Nýlega var Leikfélagi Akur-
eyrar veitt bæjarábyrgð fyrir
láni hjá Lífeyrissjóði leikara að
upphæð 10 milljónir. Miklir
fjárhagsörðugleikar hafa steðj-
að að félaginu, en bæjarstjórn
mun ekki hafa tekið endanlega
afstöðu til þess máls enn.
Níutíu karlar og konur hafa
nýlega sent bréf til bæjarstjórn-
ar, þar sem krafist er úrbóta
vegna slysahættu við leikskól-
ann Árholt í Glerárhverfi.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga
kynnti nýverið bæjarstjórn til-
lögur sínar um stofnun sjóðs til
athugunar á hugsanlegum
möguleikum á nýiðnaði á Eyja-
Qarðarsvæðinu. Hugmyndin er
að fá ýmsa aðila til samstarfs
um þetta mál, svo sem Dalvík-
ur- Olafsfjarðar- og Siglufjarð-
arkaupstaði, auk fl. aðila.
Skipulagsnefnd hefur fallist á
það fyrir sitt leyti, að Skjald-
borg h.f. verði veitt lóðin nr. 69
við Hafnarstræti til að byggja á
hús fyrir starfsemi sína. Leyfinu
fylgja ítarlegar kröfur um
notkun 1. hæðar og útlit húss-
ins. í þessu sambandi áskildi
formaður nefndarinnar sér rétt
til að skjóta málinu til félags-
málaráðuneytisins og Skipu-
lagsstjórnar, þar sem hann telur
meirihluta nefndarinnar vera að
brjóta gegn aðalskipulagi Ak-
ureyrar með umræddu leyfi.
Stjórn Hitaveitu Akureyrar
leggur til hækkun á gjaldskrá
frá 1. nóvember n.k. Eftir það
kostar mínútulítrinn kr. 18.102,
og nemur hækkunin 10%
Heilbrigðisnefnd hefur ítrek-
að áskorun sína til bæjarráðs
um úrbætur á skólplögnum
bæjarins. Er þar fyrst og fremst
um það að ræða, að skólplagnir
nái út fyrir stórstraumsfjöru-
borð.
Rafveita Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum 16. októ-
ber s.l. 5% hækkun á gjaldskrá
sinni.
Nýlega var skipuð byggingar-
nefnd verkmenntaskóla, en hug
myndin er að verkmenntaskóli
ásamt heimavist rísi á túninu
sunnan Suðubyggðar. Nefndin
hefur ráðið Geirharð Þorsteins-
son, arkitpkt, til að teikna
skólann, sem ætlunin er að
bjóða út á komandi vori, ef
nægar fjárveitingar fást frá
ríkinu. Jafnframt hefur nefndin
óskað eftir því við bæjarráð og
bæjarstjórn, að tekin verði
afstaða til tillagna framhalds-
skólanefndar Akureyrar um
skipan framhaldsskóla í bæn-
um.
Á bæjarstjórnarfundi 7. októ-
ber s.l. urðu miklar umræður
um hönnun og útboð á leigu-
íbúðum við Keilusíðu 1-3 og 5,
og þótti mörgum bæjarfulltrúan
um illa að þeim málum staðið af
hálfu bæjarins. Áætlað verð
hússins við afhendingu í janúar
1982, eru um 1100 milljónir, en
íbúðir eru 19 talsins. Að um-
ræðum loknum var samþykkt
tillaga frá Ingólfi Árnasyni
bæjarfl., og er þess nánar getið
annars staðar í blaðinu.
Holdakálfur að Ytri-Tjörnum
Mjólkurdagar
1980
Mjólkurdagsnefnd hefurákveð-
ið að efna til sérstakrar mjólkur-
viku. Það verður dagana 3. til 9.
nóvember. Víðtæk kynning
mun fara fram þessa daga á
helstu mjólkurafurðum. Dag-
ana 3.-7. nóvember verður
nemendum í grunnskólum utan
höfuðborgarsvæðisins gefinn
kostur á að heimsækja mjólkur-
búin. í Reykjavík og nágranna-
byggðum hafa á vegum Mjólk-
ursamsölunnar verið skipulagð-
ar. heimsóknir ákveðinna
bekkja í grunnskólunum. Þess-
ar kynnisferðir í Mjólkursam-
söluna verða flesta virka daga í
vetur. Nemendurnir fá nokkra
fræðslu um vinnslu mjólkurinn-
ar ogstarfsemi Mjólkurstöðvar-
innar, þeim verður sýnd kvik-
mynd og boðið upp á mjólkur-
drykk.
Dagana6.-9. nóvember verð-
ur sýning og markaður í húsi
Osta- og smjörsölunnar að
Bitruhálsi 2 í Reykjavík. Fram-
leiðsluvörur einstakra mjólkur-
samlaga verða sýndar og gefnar
verða bragðprufur af nýjum og
gömlum tegundum af ostum,
jafnframt sem þessir ostar verða
seldir á staðnum. Sýnikennsla
verður alla dagana, þar sem leið
beint verður um tilbúning
ýmissa mjólkurrétta. Sýni-
kennslan verður á vegum Osta-
og Smjörsölunnar og Mjólkur-
samsölunnar.
Seldar verða að minnsta kosti
tvær tegundir af tertum: rjóma-
ostterta og skyrterta. Þá verða
einnig seldir kynningarpakkar
með mismunandi mjólkurvör-
um. Hlutavelta verður í gangi
alla dagana, vinningar verða
ýmsar mjólkurafurðir. Sam-
tímis sem kynnt verður létt-
mjólk og óblönduðjógurt, mun
fara fram nokkurskonar neyt-
endakönnun.
Öflugar framhalds-
deildir við
Laugaskóla
Laugaskóli í S-Þing. var settur
sunnudaginn 5. október af
skólastjóranum Sigurði Krist-
jánssyni að viðstöddum nem-
endum, kennurum og gestum. f
skólanum eru í vetur 109
nemendur. f áttunda bekk
grunnskólans eru 13 nemendur
en í níunda bekk 46. í fram-
haldsdeildum skólans eru síðan
50 nemendur. Þar eru starfrækt-
ar eftirtaldar námsbrautir: Bók-
námsbraut 1. ár, uppeldisbraut
1. ár, viðskiptabraut 1. ár og 2.
ár, og tréiðnaðarbraut 1. og 2.
ár.
í skólaráði Laugaskóla eru
Eysteinn Sigurðsson, Arnar-
vatni, formaður, skipaður af
ráðherra, Ingi Tryggvason, Kár-
hóli, Jón Kristjánsson, Fremsta-
Felli, Sr. Sigurður Guðmunds-
son, Grenjaðarstað og Þráinn
Þórisson, skólastjóri Skútu-
stöðum,. en fjórir síðasttöldu eru
kosnir af sýslunefnd S.-Þing-
eyjarsýslu.
ÍSLENDINGUR - 5