Íslendingur - Ísafold

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - Ísafold - 27.05.1970, Qupperneq 4

Íslendingur - Ísafold - 27.05.1970, Qupperneq 4
4 ÍSLENDINGUR-ÍSAFOLD - MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 1970. PÓSTHÓLF118 HVER BORGAR? I sjónvarpinu sl. sunnudag voru maraþon-umræður fram bjóðenda stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram í Reykjavík. — Stóð þetta yfir í tvær jg hálfa klukkustund. — Mér þætti gaman að vita, hver borgar þessa útsendingu. — Eru það stjórnmálaflokkarnir, Re.ykja- víkurborg eða hinn almenni sjónvarpseigandi? — Það var sem sé tilkynnt á dögunum, að ákveðið væri að leggja útvarp og sjónvarp undir þessar um- ræður Reykvíkinga á vissum tímum, en jafnframt var sagt, að þeir, sem búa úti á landi, ættu lcost á að fá leigðar end- urvarpsstöðvar viðkomandi byggðarlaga til að útvarpa sín- um umræðum. Spurningin er sú, hvort Reykvíkingar borgi einnig slíka leigu, eða hvort þeir fái sjónvarp og útvarp til ókeypis afnota. Væntanlega birtir sjónvarpið skýr svör. Þá langar mig einnig til aö minnast á framkomu sjón- varpsins fyrir nolckru. Þá bar svo við á sunnudagskvöldi, að það vantaði allt hljóð fra því að útsending hófst kl. 20, til kl. 22, en þá komst hljóðið í lag. Þessi bilun náði a. m. k. bæði til Norður- og Austur- lands, en ekki hefur sjónvarp- ið minnst á þennan atburð, — hvað þá að biðja sjónvarps- notendur afsökunar eða end- urtaka eitthvað af því, sem flutt var í þessa tvo klukku- tíma. — Slík framkoma finnst mér óviðkunnanleg í hæsta máta. — Sjónvarpsnotandi. EFTIR BREYTINGUNA Pósthólf 118. Það veitti svo sannarlega elcki af að minnast á ástand- ið við mjólkurbúð KEA á sunnudagsmorgna. — Sérstak lega begar verzlunin hafði ver ið lokuð um lengri tíma vegna breytinga, sem virðast hafa mishepDnast með öllu ef til- gangurinn hefur verið sá að flýta fyrir afgreiðslu. Afqreiðsl an er stórum seinvirk^n eftir þessa breytinqu, on raunar virðast hvorki viðskiotavinir né afgreiðslufólk átta sig á því hagræði. sem hún átti að hafa í för með sér. En hún hefur vafa'aust kosiað sitt. — Er ekki hæ»t að taka upp fvrri háttu oq hafa hin ýmsu útibú opin einn eða tvo tíma fyrir háde.oi á sunnudögum. — Því myndu neytendur svo sannar- lega fagna. — BarnakaiT. Mmáinmi' -ísnfold Síminn er 2-15-00 Nokkrir þættir úr málefnayfirlýs- ingu Sjálfstæðismanna á Akureyri við bæjarstjórnarkosningarnar mai FRAMKVÆMDIR Af þeim mörgu stórframkvæmdum, sem eru framundan, vilja Sjálfstæðismenn einkum stuðla að eftirfarandi: • Að sem fyrst verði gert heildarskipulag bæjarins, sem miða ber við öra fólksfjölgun. • Að gerð verði framkvæmdaáætlun á grundvelli þessa skipulags, svo heildarsýn fáist yfir allar nauðsynlegar framkvæmdir og unnt verði að velja skipulega þýðingar- mestu þættina hverju sinni. • Að gerð verði sérstök áætlun um malbikun gatna og fjár aflað til þess þannig, að óhjákvæmilegum álögum vegna þessara brýnu framkvæmda verði dreift á hæfilega lang- an tíma.. • Að framkvæmdum við þjóðveginn gegn um bæinn verði hraðað og greiðslur hins opinbera samræmdar fram- kvæmdaþörfinni. • Að gert verði átak í vatnsöflun, sem tryggi nægilegt vatn til neyzlu og iðnaðar. FJÁRMÁL Sjálfstæðismenn líta svo á, að endurskoða þurfi í heild verka- skiptingu og fjármálasamskipti rílcis og sveitarfélaga í þeim til- gangi, að kerfið á þessu sviði verði einfaldara og sá aðili beri kostnað af viðkomandi verkefni, sem hefur ábyrgð á fram- kvæmd þess, eftir því sem við verður komið. Sjálfstæðismenn eru eindregið fylgjandi því, að skattlagningu á borgarana sé stillt í hóf, svo sem frekast er unnt, og telja, að eklci eigi að vera um umframálag á lögboðinn útsvarsstiga að ræða. I sam- bandi við útsvarsálagningu vill flokkurinn sérstaklega stuðla að eftirfarandi: • Að tekjur vegna bótagreiðslna frá almannatryggingum verði undanþegnar útsvari. ® Að verulega verði dregið úr álögum á elztu borgarana. Uin einstaka þætti þeirrar bæjarmálastefnu, sem hér er birt að framan, má ekki hending ein ráða um framkvæmdina. Þess vegna stefna Sjálfstæðismenn ákveðið að myndun ábyrgs íneiri- hluta á næsta kjörtímabili og munu leita samvinnu við aðra í því efni, ef með þarf. SHk meirihlutamyndun verður dinungis tryggð með sterkri aðstöðu Sjálfstæðisinanna í bæjarstjórn næsta kjörtíniabil. Þess vegna skora Sjálfstæðismenn á kjós- endur á Akureyri að veita þeim stuðning til þess að koma frain þstirri vaxtar- og framfarastefnu, sem nú skiptir höfuðmáli fyrir framtíð Akureyrar. sunnudaginn 31. HEILBRIGÐIS- OG FÉLAGSIVIAL Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér fyrir því, að gert verði mikið átak í heilbrigðis- og félagsmálum bæjarins næsta kjör- tímabil, enda auðveldar sú tekjuaukning og fjölgun íbúa, sem hlytist af framangreindri stefnu, uppbyggingu nauðsynlegra stofnana á þessu sviði. I þessu sambandi vill flokkurinn eink- um vinna að eftirfarandi verkefnum: • Undirbúningi og framkvæmd viðbyggingar FSA og bættri aðstöðu til sérfræðiþjónustu. • Byggingu heilsuverndarstöðvar og aukinni fjölbreytni í heilsugæzlu. • Að öll félagsmálastarfsemi bæjarins verði samræmd. • Að nýjum leikvöllum, dagheimilum og vöggustofum verði komið upp eftir þörfum. • Að heimilishjálp verði aukin. • Endurbótum á húsakosti elliheimilanna. ÍÞRÓTTA- OG ÆSKIJLÝÐSIVIAL Sjálfstæðismenn vilja efla til muna íþrótta- og æskulýðsstarf- semi í bænum á næsta kjörtímabili. Sórstaklega vilja þeir beita sér fyrir eftirfarandi í þessu efni: ® Að gerð verði heildarkönnun á íþróltaaðstöðu í bænum og bætt úr þörfurn skóla, íþróttamanna og ferðafólks. ® Að starfsaðstaða íþróttafélaganna verði bætt og þau fái afnot þeirra íþróttahúsa, sem reist verða við skólana í Glerár- og Lundshverfi, enda vcrði stærð húsanna við það miðuð. © Að lagður verði nýr vegur að Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. ® Að komið verði upp vélfrystu skautasvelli í bænum. © Að stuðningur við æskulýðsstarfsemi verði stóraukinn þannig, að unglingar fái aðstöðu til heilbrigðs skemmtana- halds og tómstundalðju.

x

Íslendingur - Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur - Ísafold
https://timarit.is/publication/677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.