Faxi

Volume

Faxi - 01.10.1948, Page 1

Faxi - 01.10.1948, Page 1
FAXI 8. tbl. 8. ár Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík Október 1948 Jón Tómasson: íþróttabandalag Suðurnesja og íþróttamót þess í sumar Þess mun haifa verið getið hér í blaðinu áður, að Iþróttabandalag Suðurnesja var. stofnað hér fyrir ári siðan með þáttöku allra þeirra félaga af Reykjanesskaganum, sem leggja nokkurn verulegan skerf til íþróttastarfs og fþróttarriála, en það eru Ungmennafélag Keflavíkur, scm er þeirra elzt og öflugast, Ungmennafélagið „Garð- ar“, Garði, Knaotspyrnrifélagið „Reynir“, Sandgerði og Iþróttafélag Grindavtkur í Grindavík. Randalágið 'beitti sér fyrir frjálsíþrótta- móti Suðurnesja, sem haldið var í Keflavík 21. og 22. 'ágúst í sumar, og svo bæja- keppni í frjálsum íþróttum milli Akra- ness og Kefkvvíkur, sem fram fór dagana 24. og 25. september í haust. Undirbúning- ur undir Olympíuleikiria í sumar og al- mennur áhugi fyrir þeim, mun 'hafa hvatt marga til íþróttaiðkana í sumar, eða svo mikið er víst, að aldrei hafa jafnmarg- ir, jafnt ungir sem gamlir sést að æfing- um á vellinum hér í Keflavík. Þar voru 3—4ra ára drengir að hástökks æfingum og jafnvel stangarstökki og all aldraðir menn á harðahlaupum. Arik þess má scgja að varla hatfi sést saman komin 3—4 ung- menni að ekki væru þau með kringlu eða kúlu og önnur 'íþróttatæki. Ekki var þá völlurinn alltaf vel haslaður, jafnvel notast við kargáþýfðan móa. Viljann vantaði ekki og þá var mikið fengið. Hingað til hdfur skrúðgarðssvæðið verið notað sem íþróttasvæði og þótt allgott, en þess má vænta að hafist verði frekar handa um skrúðgarðsgerðina og það útiloki íþróttamenn frá æfingum og mótum þar. Iþróttaleikvangur er ákveðinn á skipulagi Keflavíkur vestan Hringbrautar á ágætum stað. Teikning mun þegar vera fyrir hendi af Vellinum og nokkurt fé til framkvæmda. Það virðist því ekkert vera sjalfsagðara en að he'fjast handa nú þegar í haust. Völlur- inn þarf að komast upp fyrir næsta vor svo að vallarleysi dragi ekki úr æfingar- vilja íþróttamanna og annarra sem unna haldgóðri og hollri líkamsment. Iþrótta- menn og íþrótta unnendur beitið ykkur fyrir því að svo megi verða. Auk þeirrar heilbrigði sem íþróttalífinu er samfara má njóta ánægju af íþróttasýningum og í- þróttamótum og gleði atf unnum sigrum okkar nánustu eða okkar manna. Og þeir hafa þegar sýnt að þeir eru menn til að geta sigrað. Við vitum að sá sem ver frí- stundum sínum vel, sá verður meiri mað- ur en ella, og við vitum að fátt er betur gert við frístundirnar en nota þær til í- þróttaiðkana. Við höfum því varla ráð á að láta hjá líða að koma upp sæmilegu íþróttasvæði. Hér fylgir skýrsla af afrekum móta þeirra, sem að 'framan getur, með örfáum skýringum. Frjálsíþróttamót Suðurnesja haldið í Keflavík 21.—22. ágúst. I mótinu tóku þátt tvö félög í Iþrótta- bandalagi Suðurnesja: Ungmennafélag Þátttakendur í bæjakeppninni.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.